Úrval - 01.04.1971, Page 72
70
ÚRVAL
að skemmdist svo mikið, að hann
sér aðeins í gegnum „glugga“, sem
er ekki stærri en títuprjónshaus.
Hann getur ekki lesið nema hann
haldi bókinni um einum þumlungi
frá auganu. Og hann þarf mjög
sterkan sjónauka til þess að geta
lesið götuskilti, séð kvikmyndir eða
aðra fjarlægari hluti.
Genensky hefur alltaf reynt að
komast hjá því að verða að lifa lífi
því, sem hinir blindu hafa verið
dæmdir til að lifa. Hann á móður
sinni að þakka þennan ásetning
sinn að miklu leyti, því að hún
sagði við hann æ ofan í æ: „Sam,
þér mun ekki ganga vel í hverju
því, sem þú reynir. Slíkt tekst eng-
um. En þú mátt ekki sætta þig við
ósigur og uppgjöf, og þú mátt ekki
bera fram einhverjar tylliástæður
þér til afsökunar.“ Hann' hefur að
vísu orðið að reyna mjög á aðlög-
unarhæfileika sína á ýmsum svið-
um. En samt segir hann: „Eg álít
því sjálfan mig alls ekki vera
blindan, og sama er að segja um
flesta vini mína og starfsfélaga."
Og með hjálp Randsight-vélarinnar
les hann nú eins hratt og fólk al-
mennt eða 130 orð á mínútu. Hann
hefur þessu við að bæta: „Eg get
gert flest sem mig langar í raun og
veru mikið til að gera, flest nema
að aka bifreið og skoða stúlkurnar
vandlega í laumi.“
Persónulegur skilningur Sams
Genenskys á vandamálum sjón-
deprunnar er auðvitað ein af helztu
ástæðunum fyrir því, að Rand-
sight-vélin hefur reynzt vera svo
geysilega hagkvæm uppfinning,
þótt fyrri vélar, sem studdust einn-
ig við lokað sjónvarpskerfi, hafi
ekki náð útbreiðslu. Auk þess að
stækka hluti er hægt að stilla Rand-
sight-vélina til þess að magna gagn-
stæðu birtu og myrkurs og magna
einnig birtuna sjálfa. Slíkt gerir
mögulegan sjónþátt, sem er miklu
þýðingarmeiri en stækkun ein.
Þáttur þessi gerir allt skýrara og
greinilegra. Langflestir þeir, sem
haldnir eru alvarlegum sjóngöllum,
sjá heiminn í gegnum eins konar
móðu. Það, sem þeir þarfnast fyrst
og fremst, er aukin birta og aukin
gagnstæða birtu og myrkurs til þess
að skýra ýmsa hluti, svo sem út-
línur stafa á blaðsíðu.
Eftir nokkurra mínútna kennslu
og ' tæprar klukkustundar æfingu
lærist flestum þeim, sem reyna
Randsight-vélina, að nota hana án
minnstu erfiðleika. Þeir skoða hana
strax sem eðlilega viðbót augna og
handa sinna. Genensky róar þá í
þessu efni með því að segja strax
í byrjun: „Sko, ég veit ekki, hvers
konar sjóngalla þið hafið við að
stríða, en ég þori að veðja, að þið
sjáið betur en ég.“ (Sjón hans er
verri en 60% allra þeirra, sem eru
blindir í lagalegum skilningi). Sá,
sem vélina notar, situr við borð, og
er skermurinn í augnhæð. Hann
leggur bók, bréf eða skrifblokk
beint undir litla sjónvarpsmynda-
vél, sem beint er niður á við. Og
svo fylgist hann með myndinni af
hinu prentaða eða skrifaða efni,
sem fram kemur á skerminum.
Hann getur síðan með fingrum
sínum fært vélina upp eða niður,
þangað til efnið sést sem bezt. Og
hann getur fengið þá stækkun þess,