Úrval - 01.04.1971, Side 81
SKÝRSLAN SEM HNEYKSLAÐI ÞJÓÐINA
79
aðalkjarna efnisins í heild vekja
saurlífisáhuga.“ Hæstiréttur lýsti
ekki yfir því, að efnið yrði að vera
algerlega án jákvæðs þjóðfélags-
giltlis til þess að vera úrskurðað
klámefni.“ Hæstiréttur lýsti aftur á
móti yfir þessu í þessu sambandi:
„Það er skilyrðislaus þáttur í sögu
„Fyrstu stj órnarskrárbreytingar-
innar“, að hún hafnar klámi sem
efni, er sé algerlega án jákvæðs
þjóðfélagslegs gildis.“ Það er aug-
sýnilegt, að þessi yfirlýsing var
ekki hluti af skilgreiningu Hæsta-
réttar á því, hvað sé klám.
ÞAÐ ER UNDIR YKKUR
KOMIÐ
Það ríkir mikil ringulreið og efi
meðal almennings viðvíkjandi þessu
flókna lögfræðilega vandamáli. En
hvað er hægt að gera? Ég mælti
aðallega með tvennu í minnihluta-
skýrslu minni:
í fyrsta lagi: Herferð í hinum
ýmsu bæjar- og sveitarfélögum
gegn klámi ætti að halda áfram af
fullum krafti. Við ættum að krefj-
ast þess, að klámsalar verði hand-
teknir, dæmdir og fangelsaðir.
í öðru lagi: Þjóðþingið ætti að
setja lög, sem geti hindrað Hæsta-
rétt í að ógilda klámdómsúrskurð
aðeins vegna þess, að hann er ekki
samþykkur ákvörðun undirréttar
um það, hvað skilgreinast skuli sem
klám. Það er viðurtekin meginregla,
sem lengi hefur verið við lýði, að
hlutverk Hæstaréttar sé að skoða
lögin ofan í kjölin og ákvarða,
hvernig beri að túlka þau, en að
hann sé ekki réttur, sem vinna
skuli að því að afla staðreynda.
Everett M. Dirksen öldungadeild-
arþingmaður hefur lagt þess konar
lagafrumvarp fyrir Þjóðþingið, sem
enn er óafgreitt. Slík lagasetning
mundi „veita kviðdómum, skipuð-
um borgurum hvers bæjar- eða
sveitarfélags, leyfi til þess að
ákvarða endanlega, hvort viss bók,
tímarit eða kvikmynd sé klámefni
eða ekki.“ Samtímis því mundi slík
lagasetning hrekja á áhrifaríkan
hátt hinar ofboðslega hlutdrægu
niðurstöður nokkurra manna, sem
læddu eigin hugmyndum sínum og
skoðunum inn í skýrslu nefndar-
meirihlutans.
Afdrif þessa máls eru eingöngu
undir almenningi komin. Borgarar
geta setið með hendur í skauti, að-
gerðarlausir með öllu, og látið hina
siðferðilegu uppgjöf hafa sinn gang,
vaxa og magnast. En þeir geta líka
tekið þátt í herferðinni til þess að
bægja burt klámflóðinu, einmitt
núna, þegar slík ofboðsleg þörf er
fyrir skynsamlegar hömlur á og
varnir gegn því eitri, sem ógnar
okkur og komandi kynslóðum.
☆
Sönglistin virðist vera á ihraðri niðurleið í Feneyjum. Raddlausu
ræðararnir, og heir virðast orðnir nokkuð margir, eru n:ú allir með
útvarpstæki í gondólu.m sínum.