Úrval - 01.04.1971, Side 102
100
ÚRVAL
gagnvart áframhaldandi kínverskri
byltingu í brjósti sérhvers karl-
manns, sérhverrar konu og sérhvers
barns í gervöllu landinu. Og sú
staðreynd, að hann yrði að ráðast
á og eyðileggja heila hópa innan
Kínverska kommúnistaflokksins,
hafði engin áhrif á þessa ákvörðun
hans.
Það myndaðist andstaða gegn
Mao, og var Liu Shao-chi leiðtogi
kjarna þessarar andstöðu, en hann
hafði starfað og barizt við hlið Ma-
os í næstum 40 ár til þess að beina
Kína að endanlegu marki kommún-
ismans. En goðsögnin um Mao er
svo yfirþyrmandi í Kína, að það var
óhugsandi fyrir Mao að bíða ósigur
í átökum þessum. Hann varð að
sigra.
í ágústmánuði árið 1966, eða
nokkrum mánuðum áður en ég kom
til Kína, var Liu Shao-chi lækkað-
ur að flokkstign, og komst hann
nú í 8. flokk, en hafði áður verið í
2. flokki. Nú hlaut hann nafngift-
ina „Khrushchev Kína'1 vegna end-
urskoðunartilhneiginga þeirra, sem
honum voru eignaðar. Og nokkr-
um dögum síðar var hið mikla
fjöldamót Rauðu varðlðianna hald-
ið í- Peking. Rúmlega ein milljón
þeirra þrammaði yfir Torg hins
himneska friðar í augsýn Maos.
Var þar um eins konar hergöngu
að ræða.
Brátt lögðu þeir undir sig borg-
arstrætin og hófu ógnaherferð gegn
„borgaralegum öflum", og endur-
ómuðu atburðir þessir á forsíðum
blaða um víða veröld. í sumum
skólum börðu Rauðir varðliðar
kennara í hel. Sagt var, að ótta-
slegnir prófessorar hafi framið
sjálfsmorð með því að kasta sér
niður úr gluggum á efri hæðum
háskólabygginganna. Útlendingar
urðu vitni að því, að fólk, sem var
ákært um að ala í brjósti „smá-
borgaralegar kenndir og andstöðu
gegn flokknum", var lamið og því
misþyrmt á strætum úti. Einnig
var sagt, að nokkrir Rauðir varð-
liðar hafi verið drepnir, er ýmsir
snerust til varnar gegn þeim. Æð-
isleg fjöldamóðursýki hafði nú haf-
ið innreið sína í Kína.
Er ég kom til Kína, var ástandið
orðið svo hættulegt, að byrjað var
að láta herinn stilla til friðar og
hafa hemil á þróun atburðanna. Ég
hafði orðið vitni að því í Kanton á
leið minni til Peking, er hermenn
voru fyrst notaðir til þess að halda
uppi nokkurri röð og reglu. En
ástandið hélt áfram að versna. Og
svo var komið, er ég var settur í
stofufangelsi, að andstaðan gegn
Mao náði hámarki sínu með ráni
öryggismálaráðherrans í Wuhan-
fylki í Mið-Kína. Atburður þessi og
sívaxandi ofbeldi um gervallt land
olli miklum ótta, er stappaði næst
ofsahræðslu, meðal helztu leiðtoga
Maos í Peking. Þeir æstu viljandi
til alls konar ofbeldisverka gegn
útlendingum í Kína til þess að
beina andstöðunni gegn Mao í ann-
an farveg. Og ég varð einn skot-
spónn þeirrar ógnaherferðar. Upp-
þotin og handtökurnar í Hong-
Kong, sem áttu sér stað um sama
leyti, urðu aðeins til þess að gera
Breta í Peking að sérstaklega eftir-
sóttum fórnardýrum þessa fjölda-
æðis.