Úrval - 01.04.1971, Page 103
GÍSL í PEKING
101
Og síðan varð viss atburður til
þess að auka mína persónulegu erf-
iðleika um allan helming. Ofbeld-
issinnaður öfgaseggur náði töglum
og högldum á öllu í Utanríkisráðu-
neytinu og varð utanríkisráðherra í
ágústmánuði. Og það virðist ein-
mitt hafa verið þessi öfgasinni, sem
gaf fyrirskipun um innrás Rauðu
varðliðanna á heimili mitt og hin
auðmýkjandi og kvalafullu „réttar-
höld“ yfir mér í augsýn múgsins.
Atök þau og ringulreið, sem ríkti
um þetta leyti í Utanríkisráðuneyt-
inu, leiddi til þess, að í nokkra daga
ríkti algerlega brjálæðiskennt
ástand, hvað snerti skipti Kínverja
við alla útlendinga þar í landi.
Nýi utanríkisráðherrann hélt velli
í aðeins 14 daga. Svo var hann
dreginn fyrir „alþjóðadómstól“ og
látinn játa sekt sína sem „hroka-
fullur vandræðaseggur og djöfull,
er hlýddi engum lögum“. Upp úr
því náðu hófsamari öfl smám sam-
an yfirhöndinni í Utanríkisráðu-
neytinu, og allt féll í eðlilegra horf
en áður. En það reyndist samt ekki
verða nein breyting á mínum hög-
um.
IÐNIR FÉLAGAR
Þegar ég vaknaði að morgni þ. 19.
ágúst, gerði ég mér í fyrsta skipti
grein fyrir því, hversu ofboðslega
takmarkað „lífsrúm" mér hafði nú
verið skammtað. Þegar ég tók að
þramma fram og aftur um gólfið
í algeru uppnámi, komst ég að raun
um, að ég gat aðeins tekið hálft
níunda skref frá öðrum vegg ör-
litla íveruherbergisins míns í gegn-
um dyrnar inn í litla þvottaher-
bergið og yfir að fjarlægari vegg
þess.
Áróðursblöð höfðu verið límd
þarna á alla veggi. Og á þeim öll-
um var mynd af Mao með þessari
ensku áletrun „Lengi lifi Mao for-
maður“. Gluggar höfðu verið negld-
ir aftur. Og fjalir höfðu verið negld-
ar fyrir þá að utanverðu. Fyrstu
tvo dagana fékk ég alls ekkert
ferskt loft. Síðan var örlítil rúða
ofan til í einum glugga opnuð um
nokkra þumlunga.
É’g varð að borða máltíðir mín-
ar húkandi framan á brík svefn-
bálksins. Bakkinn var látinn á stól-
setu, og hana varð ég að nota fyrir
borð. Mér var ekki leyft að hafa
borð inni hjá mér. Ég hélt enn
áfram að greiða fyrir máltíðirnar
(og einnig húsaleigu), en matar-
skammtur minn var mjög strang-
lega takmarkaður. Morgunverður-