Goðasteinn - 01.09.1969, Qupperneq 23
var ckki hátt, aðeins kr. 100,00 yfir vertíðina og svo fæði, húsnæði
og þvottur fata.
Þetta var önnur vertíð mín í Vestmannaeyjum og sú síðasta,
því að síðan ég fór þangað um lokin 1915 hef ég ekki þangað
komið. Einnig var þá lokið vinnumennskuferli mínum. Um vorið
réðst ég sem fullgildur kaupamaður til Guðmundar, því að nú
ætlaði ég mér ekki að vera í vinnumennsku lengur. Hafði ég helzt
í huga að fara á einhvern skóla mér til menningarauka. Mátti það
varla lengur dragast, því að vorið 1915 varð ég 20 ára að aldri.
Kom helzt til álita að fara til Reykjavíkur um haustið á lýðskólann
að Bergstaðastræti 3. Síðari hluta sumars 1915 fékk ég snert af
heilahimnubólgu og var talsvert þungt haldinn um tíma. Guð-
mundur Guðfinnsson læknir á Stórólfshvoli hjálpaði mér til heilsu
aftur, svo að ég gat farið að vinna, eftir að hafa verið frá í næst-
um þrjár vikur.
í byrjun október kvaddi ég húsbændur mína á Stóra-Hofi, lagði
af stað fótgangandi til Reykjavíkur og var tvo daga á leiðinni.
Ég bar hnakktösku með farangri mínum. Það hefði ég ekki átt
að gera, því að ég fékk slæman verk í vinstri öxl og upp í höfuð
aftanvert, er suður kom. Þoldi ég ekki að lesa, og virtist sú veiki,
er ég lá í um sumarið, hafa tekið sig upp aftur. Ég leitaði þriggja
lækna í Reykjavík, en það reyndist árangurslaust. Faðir minn
þekkti Lárus Pálsson hómópata og fór með mig til hans. Eftir að
hafa skýrt Lárusi frá veikindum mínum, lagði hann mér lífsreglur,
sem ég fylgdi nákvæmlega. Lét hann mig bæði fá meðul til inn-
töku og ráðlagði einnig sjóböð. Ekki mátti ég líta í bók, en liggja
á bakið. Eftir rúma viku var ég orðinn alheill og tók til við nám
í skólanum sem fullfrískur maður. Stundaði ég námið af áhuga
og held ég, að það hafi komið mér að góðum notum. Skólastjóri
lýðskólans í Bergstaðastræti 3 var þá Ásmundur Gestsson kennari.
En þenna skóla hafði Ásgrímur Magnússon kennari stofnað rétt
eftir aldamótin. Hann andaðist 1912, en skólanum var haldið
áfram lengi eftir það.
Um vorið 1916 stundaði ég byggingarvinnu á ýmsum stöðum
í Reykjavík og nágrenni og var meðal annars við fjósbyggingu á
Vífilsstöðum. En um sumarið fór ég í kaupavinnu að Brciða-
Godaste'mn
21