Goðasteinn - 01.09.1969, Síða 56
vel um. Kúabólusetníngu hafði hann á hendi, og á ég enn bólu-
attest frá honum, dagsett io. júlí 1894. Og það er einmitt í sam-
bandi við bólusetningu, sem ég á fyrstu minningar um þcnna
mann, blandnar ótta og vanþóknun. Það var svo, að ég var bólu-
settur oftar en einu sinni án árangurs, og varð ég hræddur og
gramur við þessa aðgerð. Ingimundur í Rofabæ varð í mínum
augum hættulegur maður, sem vildi hrekkja og meiða öll börn.
En svo rénaði þessi tilfinning með vaxandi viti.
Eg var orðinn tíu ára. Þá kom Ingimundur einn morgun og
bað míg að fara fyrir sig með blað um bæina í kring. „Þú getur
lesið það fyrir þá, sem ekki geta það,“ sagði hann, „og svo skal
ég ljá þér sögubók, þegar þú kemur aftur með blaðið." Þetta blað
kvaddi öll börn að koma að Rofabæ til bólusetningar næsta dag.
Já, mér hefur víst fundizt nokkur upphefð í því, að þessi maður
treysti mér til þessa erindis - og svo; að eiga von á bók, það var
nú ekki svo lítið.
Erindi mínu gat ég lokið, og meðal margra annarra, var ég
bólusettur þenna dag eins og bóluattestið vottar.
Ingimundur fæddist að Rofabæ 1828, og munu ættir hans að
mestu hafa verið innan héraðs. Kona hans var (1869) Ragnhildur
Þorsteinsdóttir. Þau bjuggu fyrst að Oddum og svo að Rofabæ til
ævíloka, en þau dóu bæði árið 1903, hún 2. des. og hann 20. s. m.
Börn þeirra voru: Stefán hreppstjóri, Agnes og Þórey, öll dáin.
Aldrei var auður nc híbýlaskraut á heimili þeirra hjóna, enda
mun hugur Ingimundar fremur hafa hnigið að öðru en búskap.
En greiðvikin og góðgjörðasöm voru þau hjón, oft meira en efni
þoldu. Margur kom að Rofabæ svangur eða hryggur en fór þaðan
saddur og hrcssari, þó naumar byrgðir væru þar í búi.
Ingimundur var fjölfróður og kunni skil á mörgu, fornu og nýju,
var vel að sér í lögum og réttarvenjum. Hann var því oft settur
til að gegna sýslumannsstörfum og öðrum fremur kvaddur til
ýmissa mála. Jafnan voru orð hans og álit mikils metin. Ég hygg
að minni hafi verið traust og hugsun glögg til æviloka. Ekki þurfti
hann alltaf að gá í almanakið, fingrarímið var honum tiltækt,
hvenær scm var, en hann var einn af fáum, sem kunnu það, og
svo var með fleiri fræðigreinar.
54
Godasteinn