Goðasteinn - 01.09.1969, Síða 89
lcið hefur íslenzk mannfræði auðgazt unt einn mann og íslenzkar
minjar um enn eitt helgitákn hins hrjáða konungs, Ólafs Haralds-
sonar, sem vann sigur í dauða og ríkti yfir norrænni kristni um
500 ár.
Steinn Vigfúsar Sigurðssonar er fljótt á litið heldur ólögulegur
grjóthnullungur, en í ljósi trúar og sögu getur hann brúað alda-
haf og fært okkur á fund þeirra manna, sem áttu heill sína undir
hcilögum Ólafi kóngi og fyrirbón hans í ríki himnanna.
Úr handraðanum
Ef þú telur fugla á flugi, máttu ekki telja „einn, tveir, þrír“ o. s.
frv. Ekki man ég hvers vegna. Hret, scm kemur snemma á hausti
nefnist haustkálfur og átti að boða góðan vetur. Þar af er komið
máltækið: „Snemma gýtur góður vetur kálfi.“
„Að rembast cins og rjúpa við staur.“ Ef spýtu er stungið nið-
ur í rjúpuhreiður, þá rembist hún við að verpa spýtuna í kaf, en
hún deyr, þegar eggin eru orðin 20.
Guðlaugur E. Einarsson.
Pað er gaman
Gaman að hafa góðan penna,
á góðan pappír orðum renna,
í góðum fáki fjörið kenna
og fljóðin góð um mitti spcnna.
Árni Ingvarsson á Mið-Skála, 1942.
Goðasteinn
87