Úrval - 01.03.1978, Side 16
14
ÚRVAL
þúsun, skíðakennslu, sumarbúðum,
skíðaútbúnaði og txu gíra hjóli, eða
mótorhjóli eða bíl þegar þau verða 17
ára, eða utanlandsferð þegar þau
ljúka stúdentsprófi.
Ég held því fram að foreldrar
skuldi börnum sínum ekki mennta-
skólanám. Sendið þau í menntaskóla
ef þið hafið ráð á þvð, en ekki fyllast
sektarkennd, ef þið getið það ekki. Ef
þau vilja eindregið fara 1 mennta-
skóla, þá finna þau sjálf einhvern
útveg. (Þó að námsstyrkir nái ekki til
þessa stigs menntakerfisins, hefur
sumarið orðið mörgum unglingi
mikil hjálp fjarhagslega, og þótt
sumarfríið sé ekki langt, hafa
unglingar í nágrannalöndum okkar
tæplega þennan möguleika opinn,
þvx þeirra sumarfrí er ennþá
skemmra. Innsk. Úrvals.)
Þegar börnin em gift, skuldið þið
þeim enga peninga til að stofna
heimili eða kaupa húsgögn fyrir og
þið eruð heldur ekki skyldug til að
sitja yfir barnabörnunum á kvöldin
eða taka þau til ykkar þegar
foreldrarnir fara í sumarfrí. Ef þið
gerið þetta, á að skoða það sem góð-
vilja ekki skyldu.
Foreldrarnir skulda börnunum
engan arf. Sama hve mikla peninga
þeir eiga. Eitt af bestu ráðunum til að
framleiða slæpingja og kæruleysinga
er að láta börnin vita að framríð
þeirra sé örugg.
En skulda foreldrarnir börnunum
eitthvað?Já, heilan helling.
Ein aðalskylda hvers foreldris er að
kenna börnum að meta manngildið.
Sjálfsvirðing er hornsteinn andlegrar
heilbrigði. Unglingur sem er sífellt
verið að setja út á og „kjarkurinn
dreginn úr, ’ ’ látinn finna að hann sé
heimskur og óhæfur, stöðugt borinn
saman við bræður og systur eða
frænkur og frænda sem gera betur,
verður óöruggur, og svo óttasleginn
við að gera mistök að hann eða hún
þora alls ekki að reyna.
Barn sem í sífellu er kallað
,,slæmt” eða ”óþekkt” eða
„ómögulegt” hagar sér þannig til að
fullnægja dómi foreldranna. Börn
hafa óhugnanlega næmi til að haga
sér vel eða illa, alveg eftir því hverju
er búist við af þeim.
Auðvitaðs á að leiðrétta þau og
koma á réttan kjöl á þann hátt læra
þau — en gagnrýninni á að fylgja
hrós á öðrum sviðum. Móðir nokkur,
sem átti greindan, en óákveðinn
ellefu ára son, sem féll næstum á
hverju prófi, fékk þau ráð frá mér að
hlusta vandlega á allt sem hún segði
við drenginn heilan dag. Eftir
tilraunina tilkynnti móðirin að hún
væri hissa og sjálfri sér reið. , ,Ég hafði
ekki hugmynd um að ég talaði aldrei
til Jimmy án þess að skamma hann
eða skipa honum að gera eitthvað. ’ ’
Sumum foreldrum finnst erfitt að
láta í ljósi ánægju sína við börnin
með orðum. Þeir foreldrar geta sýnt
ánægju sína á annan hátt — með
brosi eða klappi.Snertinger mikilvæg.
Börn þarfnast þess að vera tekin í