Úrval - 01.03.1978, Page 36

Úrval - 01.03.1978, Page 36
ÚRVAL i4 Archie byggði 28 herbergja höll í Hapstead. Gracie hafði andstyggð á því, af því henni fannst það bera vitni um flottræfilshátt. Hún gat heldur ekki hugsað sér að þurfa alltaf að sýna sfnar bestu hliðar með því að koma fram við formlegar góðgerða- samkomur. Kvöld eitt dýfði gestgjafinn par sem hún var stödd, brauðinu í súpuna sína, og Gracie gat ekki á sér setið: ,,Mér hefur verið sagt að þetta megi aldrei gera.” Hann svaraði: „Skeyttu engu um hvað þér hefur verið sagt, góða. Ef þér finnst gott að hafa brauðið í súpunni — fyrir alla muni láttu þá andskotans brauðiðí hana!” Slitin bönd Þetta ráð gaf Gracie hugrekki til að yflrgefa Archie og taka að lifa sínu eigin lífi. Seinna leitaði hún eftir skilnaði frá honum. En peningarnir héldu áfram að streyma inn. Hátind- urinn kom, þegar hún réðist til Twentieth Century-Fox til að leika í fjómm kvikmyndum fyrir 200 þúsund pund — ,,hæstu laun sem nokkurn tíma hafa verið greidd nokkurri manneskju” — og metið á núverandi peningagildi um tvær milljónir punda. Uppskurður á henni seinna, sem batt enda á vonir hennar um að verða .móðir, varð vendipunktur. Nálægð dauðans vakti henni skilning á trúnni. Og nú, þegar hún syngur helgisöng, svo sem í Stars on Sunday dagskránni í sjónvarpinu. meinar hún hvert orð. Skömmu eftir að stríðið braust út gekk hún að eiga Monty Banks, litla, fjöruga ítalann, sem hafði stjórnað mörgum þeim kvikmyndum, sem hún hafði leikið í. Vinir hennar vöruðu hana við og leiddu henni fyrir sjónir, að hann yrði að fara frá Bret- landi áður en Ítalía segði því stríð á hendur, eða hann yrði settur inn sem hættulegur óvinur. Hann neitaði að fara án hennar. ,,Eg unni landi mfnu og ég unni manni mínum,” sagði hún, , ,svo ég fór bil beggja. Hún þáði boð um að syngja í Kanada til fjáröflunar fyrir þá, sem voru hjálpar þurfi af völdum stríðsins, og Monty fór til Bandaríkj- anna, þar sem hann hafði fengið vilyrði fyrir borgararétti. Tvær Kanadaferðir öfluðu nærri hálfrar milljónar punda, en milli þeirra dvaldi hún viku í Kaliforníu hjá Monty — og bresku blöðin réðust á hana af mikilli grimmd og sökuðu hana um að hafa svikið Bretland og smyglað fjármunum sínum úr landi. Seinna mótmælti fjarmálaráðuneytið þessum ásökunum opinberlega, en Gracie var særð og undrandi. Hún sneri aftur heim til að syngja i verksmiðjum og herbúðum, en kveið því hvernig tekið yrði á móti henni. En hún þurfti engu að kvíða. Þegar starfsmenn skipasmíðastöðvar í Glasgow fréttu að hún ætlaði að koma fram i annarri skipasmíðastöð hótuðu þeir að leggja niður vinnu nema hún kæmi líka til þeirra. Næstu fjögur ár skemmti hún
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.