Úrval - 01.03.1978, Page 43
EKKlFARA AFTUR MEÐ MIG ÞANGAÐ!
41
hann skref aftur á bak. Hann dró
vasaklút upp úr vasanum og þurrkaði
vangann. Svo sagði hann í lægri tón:
,,Ef það er þetta sem það kostar að
ná til þín og fær þig til að uppgötva
hvað þú ert að gera úr eigin lífi, skal
ég þola það. Það sýnir að minnsta
kosti að þú hefur kjark. Hversvegna
ekki nota hann til einhvers betra?”
Tíminn var útrunninn.
Þögulir stóðu drengirnir upp og
einn 1 einu tíndust þeir í gegnum sjö
stáldyr, gegnum herbergið þar sem
ósýnilega blekið á úlnliðnum var
skoðað með svörtu ljósi, til að ganga
úr skugga um einkennislit dagsins,
í gegnum málmleiartækið, gegnum
ganginn fram hjá klefanum með
uppþotaútbúnaðinum. Að lokum
komu þeir út í blindandi sólskinið.
Það voru græn tré fyrir framan
fangelsið — sjón sem sumir fanganna
höfðu ekki séð áratugum saman.
Drengurinn sem var tólf ára faðmaði
unglingalögreglumanninn sem hafði
flutt þá á staðinn: „Aldrei fara aftur
með mig þangað! ’ ’ bað hann.
Enginn var hissa á þessu.
Drengirnir biðu rólegir eftir rútunni
og höfðu engin strákslæti í frammi
eða gerðu að gamni sínu. Seinna
sagði ökumaður rútunnar að þetta
væri þöglasti hópur unglinga sem
hann hafði nokkurn tíma ekið.
/ seþtember 1976 fór fyrsti hópur
unglinga í gegnurn fangelsisdyr
Rahway. Þá var hugmyndin að taka á
móti einum hópi t viku, en
hugmyndin varð svo vinsæl að brátt
voru þetta tveir hópar á dag, fimm
daga vikunnar. Nú hafa um 4.300
ungltngar — drengir og stúlkur, milli
8 og 20 ára farið í gegnum Rahway
,,kennsluna. ” Af fystu 3.200, hafa
aðeins 6% lent t vandræðum aftur.
Nicola dómari sem sjálfur kefur sent
hópa af afbrotaunglingum til
Rahway, hefur aðeins þurft að fást við
fjóra aftur fyrir sínum dómstóli. ,,Ef
farið hefði eins og búast mátti vtð,
myndi ég hafa séð um 70% af þeim
aftur, ” segir hann. Meira en þrjátíu
ríki hafa sent menn til Rahway til að
lœra af þeim og staðfæra hugmyn-
dina.
Sonur Rowes — 12 ára drengurinn,
sem átti á vissan hátt þátt í þessari
tilraun varð til — var meðal þeirra
fyrstu sem var sendur í Rahwayferð.
Það var erfið reynsla, en hún hreif.
Hann hefur ekki lent í vandræðum
síðan. ★
<t> «l> 'if
7jv 7JV
Nemendur, sem óskuðu að njóta kynfræðslu í skólanum, áttu að
koma með skriflegt leyfi frá foreldrum sínum. Einn nemandinn
framvísaði svohljóðandi blaði frá móður sinni: ,,James hefur leyfi
mitt til að þiggja kynfræðslu — FRÆÐILEGA!”
N.M.