Úrval - 01.04.1978, Page 20

Úrval - 01.04.1978, Page 20
18 ÚRVAL sig gjarnan frá keppnisbrautunum. Að þessu sinni höfðu þau hjónin komið sér saman um að hittast á flugvellinum eftir keppnina og fljúga saman heim til Salzburg. Niki beið hennar ekki í flughöfninni. Þess í stað tóku ókunnir menn á móti henni og báru henni vondar fréttir: Það hafði orðið slys. Niki var í sjúkrahúsi í Mann- heim, 240 km í burtu. Eftir óskilgreindan tíma var Marlene stödd í gjörgæsludeildinni á spítalanum í Mannheim og horfði á ófrýnilegt flykki, sem minnti ekkert á manninn hennar. Andlitið var skaðbrennt og svo bólgið að það vat margfalt stærra en venjulega. Augu og nef voru sokkin í uppbólgið, brunnið hold. Hver andardráttur var með svo miklum etfiðleikum að ekki varð annað séð en hann myndi fljótlega stöðvast með öllu. ,,Lifír hann af?” spurði Marlene lækninn, sem leiddi hana út aftur. Hann hristi höfuðið. Það hefði verið hægt að ráða við húðbrunann, en Niki hafði andað að sér loga og eitruðum reyk. Lungun voru mikið skemmd og voru að gefast upp. Þarna var varla nema um klukkustundir að ræða. Marlene beið og grét alla nóttina. En bak við lokaðar dyrnar skynjaði Niki Lauda návist dauðans og neitaði að gefast honum á vald. ÞAÐ HAFÐI RIGNT um morguninn, svo keppnisbrautin var ennþá hættulegri. Ökubrautin í Nurburgring er gjarnan talin hættu- legasta brautin í Grand Prix keppn- inni. Niki hafði árangurslaust reynt að fá keppnina flutta á betri stað þetta árið. Hann hélt því fram, að það væri sambærilegt að aka tólf strokka, 500 hestafla Formula 1 kappakstursbíl í Nurburgring eins og að lenda risaþotu á túnbleðli. Hver hringur er 8,4 km á lengd með 176 beygjum og yfir óteljandi hæðir. Flestir ökumenn eru sammál um að það sé of lítið undanfæri til þess að bjarga sér heilu og höldnu út af brautinni ef eitthvað kemurfyrir. Grand Prix kappakstur reynir nóg á menn og vélar án þess að svona erfiðar brautir komi til. Á hverju ári leggja ökumenn, aðstoðarmenn og bílar — allt upp í 15 fyrir hvern hóp — upp í tíu mánaða ferðalag, í 17 erfiðar keppnir í fjórum heimsálfum. I hita bardagans skilja aðeins fáeinar sekúndur í milli sigurvegarans og þess, sem kemur síðastur í mark að öllum skilyrðum fullnægt. Af þeim 25 ökumönnum, sem hefja hverja keppni, fá aðeins þeir fyrstu sex í mark stig, sem fleyta þeim áfram til sigurs — en sigurinn er milljóna virði fyrir sigurvegarann. Það er ekkert smávegis, sem lagt et undir, frá verði Formula 1 kapp- akstursbíls (frá 25,5 milljónum króna og upp úr — ekki miðað við inn- flutningsgjöld til íslands — þýð.) upp í tollinn reiknaðan í manns- lífum,- Af þeim 14 ökumönnum, sem hafa sigrað í Grand Prix
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.