Úrval - 01.02.1979, Page 5
3
Var nokkur leið fráþessari heljar sjálfsmorðs örvæntingu,
sem þróast hafði af sjálfu sér?
ÚTÚR
ÖRVÆNTINGUNNI
— Mackey Brown —
***** UNGLYNDI. Lítið orð.
* Ekkert til að hræðast. Ef
^ átt er við skaplyndi getur
% það þýtt vonda mánu-
***** daga eða vonbrigði. En
þær milljónir manna sem steypast á
káf í þunglyndi, svo djúpt og
gegnum þrengjandi að það breytir
lyndiseinkunn þeirra, þekkja annars-
konar örvæntingu. Oeðlileg sekt og
angist heltekur þá, öll gleði og von
hverfur. ,,Farðu meira út,” er sagt í
gððri meiningu og ,,Reyndu að
hjálpa þeim sem verr eru settir” —
en það íþyngir manni frekar en
hjálpa.
Sumir síga hægt og bítandi niður í
þennan örvæntingar kviksand. Ég
rann niður langa slétta rennu, þar
sem ekkert var til að grípa í svo hægt
væri að stöðva fallið. Dag nokkurn í
janúar man ég eftir sjálfri mér í
eldhúsinu þar sem ég var að vaska
UPP- °g tárin streymdu niður
kinnarnar, hversvegna hafði ég ekki
hugmynd um. Næsta sem ég vissi var
að hugur minn, sem var venjulega
líflegur, varð sljór og ég átti jafnvel
erfitt með að taka smáákvarðanir. I
stórmarkaðinum komst ég í uppnám
af því að þurfa að velja á milli bauna-
tegunda. Ef kunningi minn ávarpaði