Úrval - 01.02.1979, Side 17
ÁRÁSINÁ FORSETAHÖLLINA
15
smáiðnaðinum leynilega í samtals 18
mánuði.
Þegar að valdaráninu kom höfðu
erindrekar CIA smeygt sér inn í
helstu stjórnmálasamtök 1 Chile og
grafíð undan þjóðlegu einingar-
samfylkingunni innan frá. Vestrænir
fréttaskýrendur segja, að þessar
aðgerðir hafi aflað fasistísku
herforingjaklíkunni nákvæmra
upplýsinga um marga
stuðningsmenn vinstri aflanna, sem
urðu fórnarlömb ofbeldisins er fylgdi
í kjölfar valdaránsins.
Að Morgni 11. september gaf
Troncoso aðmíráll — sem hafði
hreinsað flotann af öllum lýðræðis-
lega hugsandi liðsforingjum — merki
um að valdaránið skyldi hefjast.
Baeza hershöfðingi, sem var
viðstaddur hinn minnisverða hádegis-
verð í Washington, þar sem Mazote
hafði heitið að brenna niður
forsetahöllina, stjórnaði árásinni á La
Moneda, og það var hann sem gaf
fyrirskipun um að kveikja í henni.
WE-57S flugvél, sem flogið var af
Duenas og Shell majorum og
Lemmons og Bride kafteinum í
bandaríska flughernum, stjórnaði
aðgerðum sveita chileanska
flughcrsins, sem réðust á forsetahöll-
ina. „Sprengjuárásin á La Moneda,”
sagði franska vikuritið Nouvel
Observateur, ,,sem vakti jafnvel
furðu sérfræðinga vegna þess hve
nákvæm hún var, var verk úrvals-
flugmanna, sem komið höfðu frá
Bandaríkjunum til Chile og áttu að
taka þátt í flugsýningu, sem halda
átti 18. september á sjálfstæðisafmæli
landsins.”
„Sýningin” fór fram viku fyrr.
Herforingjarnir hrifsuðu til sín völdin
í Chile. ★
David Cargo fyrrverandi borgarstjóri í New Mexiko fullyrðir að
síminn á lögfræðiskrifstofunni hans hafi verið hleraðurí kosningaher-
ferðinni fyrir forsetakosningarnar 1966. ,,Mér var alveg sama,” sagði
hann. ,,í þá dagahafði ég hvort eð er ekki svo marga áheyrendur.”
Ég var nýbúin að gera flotta afmæiisköku fyrir kunningja minn og
þurfti að koma henni í hús nágranna okkar. Ég kallaði á son minn,
sagði honum að þvo sér um hendurnar, halda diskinum svona, halda
beinustu leið án nokkura útúrkróka eða stoppa, í stuttu máli sagt
engan kjánaskap. Meðan ég talaði kinkaði hann kolli eins og hann
væri fyllilega sammála og skildi mig. En þegar ég þagnaði leit hann
uppogsagði: ,,Má ég fara á brunbrettinu mínu?” -K.V.