Úrval - 01.02.1979, Side 78
76
ÚRVAL
þeirra. Áfengið eyðir testosterone-
hormóninu, sem stjórnar kyngetu
karla, en þess í stað örvar það
framleiðslu hormðns þess sem eykur
löngunina. — Það virðist því vera á
flestum sviðum, sem áfengið vekur
falskar vonir!
GRÆNMETISÆTUR EIGA JÁRN-
SKORT Á HÆTTU
Grænmetisætur eiga á hættu að
verða fyrir járnskorti, segir næringar-
fræðingurinn Kay Munsen við Ríkis-
háskðlann í Iowa. Líkaminn á
auðveldara með að vinna járn úr
einni fæðu en annarri, segir hún. Járn
er vissulega til staðar í brauði, ekki
síst því sem bakað er úr vítamín
bættum efnum; það er í kornmat
hvers konar, ávöxtum, grænmeti —
og líka í kjöti. ,,En,” segir hún,
„líkaminn fær tvisvar til fjórum
sinnum meira járn úr kjöti heldur en
sama magni af nokkrum öðmm mat,
brauði og kornmat þar með töldum
— jafnvel þótt vítamínbætt sé. Þar að
auki hjálpar kjötmeti líkamanum
bókstaflega til við að vinna járnið úr
grænmeti og korni. ”
Við þetta má bæta annarri frétt,
sem eflaust kemur mörgum á óvart —
og vafalaust vekur hún tortryggni: En
samkvæmt niðurstöðu læknanna R. J.
Dobbs og I. McLean í West Middles-
ex spítalanum í Isleworth í Englandi,
er óhyggilegt að borða of mikið af
heilhveiti og rúgi. Þeir rannsökuðu
blóð 13 sjálfboðaliða meðan þeir
undirgengust margskonar matarkúra,
og gerðu þá uppgötvun að járn-
innihald blóðsins var verulega miklu
minna þegar sjálfboðaliðarnir höfðu
nærst á 100 grömmum af heilhveiti-
brauði heldur en venjulegu hveiti-
brauði.
ÖHÖFLEG DRYKKJA SKEMMIR
LITARSKYNIÐ
Öhófleg og varanleg áfengisnotkun
getur skemmt litarskynið varanlega,
segja vísindamenn við Læknaskóla í
Maryland háskóla í Baltimore og við
John Hopkins háskólann. Áfengið
verkar sem eitur á sjónhimnuna og
með tímanum skaddar það hana
varnlega, einkum þann hluta hennar
sem stjórnar litarskyninu.
Það eru ekki ný vísindi, að jörðin sé að fyllast af fólki. Dr. Irving F.
Fellows, prófessor í landbúnaðarhagfræði við Connecticutháskóla
lýsirþessu þannig:
Árið 0 var mannfjöldi jarðarinnar um 250 milljónir. Það tók 1600
ár að tvöfalda þennan fjölda, upp I 500 milljónir. En aðeins 250
árum eftir það, var mannfjöldin orðinn milljarður. Síðasta tvöföldun
mannfjöldans, úr tveimur milljörðum í fjóra, tók aðeins 45 ár,
segir Irving F. Fellows.
National Enquirer