Úrval - 01.02.1979, Síða 100
98
URVAi
^Viltu auka oröaforöa þinij?
Hér á eftir fara 20 orð og orðasambönd með réttri og rangri merkingu.
Prófaðu kunnáttu þína 1 íslenskri tungu og auktu við orðaforða þinn með því
að fínna rétta merkingu. Gættu þess, að stundum getur verið um fleiri en eina
rétta merkingu að ræða.
. 1. brimill: ólgusjór, öldurót, undiralda, björn (karldýr), karlselur, mjög salt
kjöt, saltpækill.
2. kæringur: stríðni, blandin gremju, væntumþykja, áhyggjur, umhyggja
klögun, ástvinur, ákærandi.
3. snerra: rifrildi, harka, vaskleiki, kuldagrettaí andliti, grátviprur, hurðar-
loka, ákafur bardagi.
4. ambolti: leikfang, fyrirgangur, steðji, slóði, auli, heyvinnuáhald, skel.
5. að verða andurorða: að verða orðlaus af undrun, að verða sundurorða.
6. hnjóður: auðn, kryppa, kýli, galli, fúinn trjádrumbur, hallmæli.
7. að ör(ð)ga: að hreyfa, að sjást, að koma auga á, að gera gramt í geði, að
rífast, að skæla, að reyna að hindra.
8. að sjást lítt fyrir: að vekja litla athygli, að sýna fyrirhyggju, að vera
unglegur eftir aldri, að vera óásjálegur, að vera fyrirhyggjulaus.
9. kæpa: lítill árabátur, duttlungafull kona, ýlda, kvenrefur, fyrirtekt,
kvenselur, gola.
10. snefsi: bræði, áreitni, pjatla, horn, skækill, hundstrýni.
11. gaurildi: rifín flík, drusla, hávaði, óþokki, deila, hávær persóna.
12. maurungur: skordýr, ormur, þorskur, sem veiðist 1 ósöltu vatni, spendýr,
sem lifir á skordýrum, mest maurum, ljósfyrirbrigði í sjó af völdum
einfrumunga, kláðamaur, nirfíll.
13. ámæli: minningarorð, átölur, úrtölur, samkomulag, ávítur, úrskurður.
14. kyrki: samdráttur, vanþrif, kæfíng, eyðilegging, miðhluti guðshús,
skrúðhús, jafðfall, sem vatn rennurí.
15. snefjar: afgangur, ögn, lítilræði, deilur, þræðir, höfnun, druslur.
Sjá svör á bls. 128