Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 10
Viðtal 8 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Ört stækkandi hópur fólks með ópíóíðavanda stærsta áskorunin Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir Varst þú alltaf ákveðin í að verða hjúkrunarfræðingur? Nei en ég var alltaf viðloðandi heilbrigðisgeirann, til dæmis var ég læknaritari um tíma á röntgendeildinni í Fossvogi. Ég held að það að verða hjúkrunarfræðingur hafi verið í undirmeðvitundinni alla tíð því ég fann fyrir nokkrum árum minningabók sem ég hafði skrifað í þegar ég var sjö ára og þar stóð að ég ætlaði að verða hjúkrunarkona þegar ég yrði stór. Ég fór í Háskóla Íslands í hjúkrunarfræði þegar ég var 25 ára og útskrifaðist í janúar árið 2004. Hvert lá leiðin eftir útskrift? Við fjölskyldan fluttum þá strax til Kaupmannahafnar þar sem maðurinn minn var að fara í nám og ég fór að starfa við heimahjúkrun. Það var mikill lærdómur og góð reynsla, skjólstæðingarnir voru á öllum aldri og hjúkrunin fjölbreytt. Við fluttum heim haustið 2004 og þá fór ég að starfa á gjörgæslunni í Fossvogi sem var rosalega góð deild að vera á og ég fékk dýrmæta reynslu þar. Það sem er öðruvísi á gjörgæsludeild er að þar er ekki bara verið að hjúkra sjúklingum sem liggja inni á deildinni heldur líka aðstandendum sem finnst aðstæður á gjörgæslu oft ógnandi. Þetta var eins og fyrr segir dýrmæt reynsla en líka erfið; hjúkrunin sjálf var þung og maður þurfti alltaf að vera í viðbragðsstöðu og til taks í akút aðstæðum. Ég fann fljótt að þetta var ekki mín hilla í faginu og fór þá að leita fyrir mér. Ég sá svo auglýsingu frá SÁÁ, að hjúkrunarfræðing vantaði til starfa á Vogi, ég ákvað að sækja um og fékk starfið. Ég hóf störf árið 2006 og nú 18 árum seinna er ég enn á Vogi. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að sækja um stöðu aðstoðardeildarstjóra? Árið 2017 bauðst mér að taka við stöðunni en ég hafði þá verið deildarstjóranum innan handar í nokkur ár. Það má kannski segja að ég hafi unnið mig upp í starfið, sérstaklega varðandi daglega stýringu á deildinni og yfisýn yfir mönnun og starfsmannamál. Á vaktinni starfa um það bil 35 manns; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, meðferðarfulltrúar og næturverðir. Vogur er lítil stofnun og hér er gott flæði á milli hlutverka deildarstjóra og aðstoðardeildarstjóra, störf okkar skarast að ákveðnu leyti sem skapar góða samvinnu okkar á milli. Bryndís Ólafsdóttir er deildarstjóri, við bætum hvor aðra upp, vinnum vel saman og deilum með okkur verkefnum. Hvaða eiginleika þarf góður leiðtogi í hjúkrun að hafa? Góður leiðtogi þarf að hafa mikla og góða samskiptahæfileika, búa yfir jákvæðu viðmóti og vera lausnamiðaður. Mér finnst líka mikilvægt að það sé auðvelt að leita til leiðtoga eða yfirmanna með öll mál, líka litlu málin. Leiðtogi þarf líka að geta tekið ákvarðanir, staðið með þeim og keyrt þær í gegn, hann má ekki efast um sjálfan sig og starfsfólk verður að geta treyst á sinn yfirmann. Hverjar eru helstu áskoranirnar í þínu starfi? Ört stækkandi hópur skjólstæðinga með ópíóíðavanda, það þarf að sinna þessum skjólstæðingum og grípa þá sem vilja aðstoð fljótt því þetta er hópur sem þolir ekki bið. Umsvifin í kringum hvern skjólstæðing með ópíóíðavanda eru mikil og rýmin hér á Vogi þyrftu að vera mun fleiri ef við eigum að ná að sinna öllum sem þurfa og vilja fá hjálp við sinni fíkn. Þetta er auk þess hópur sem þarf sérhæfða göngudeildarþjónustu sem fer fram hér á Vogi. Húsnæðið sem við höfum í dag undir þessa þjónustu er sprungið og við þurfum einnig fleiri hjúkrunarfræðinga til að sinna þessum hópi. Afeitrun fer fram á Vogi og svo fara margir á Vík í meðferð en einnig er göngudeild í Efstaleiti og á Akureyri eru margir meðferðarmöguleikar. Hvernig hlúir þú að starfsfólki þínu sem þarf stundum að takast á við krefjandi aðstæður? Við tölum mikið saman og styðjum þannig hvert annað. Það fer enginn starfsmaður einn inn í krefjandi aðstæður og ef starfsmaður lendir í atviki sem tengist ofbeldi, hótun eða akút ástandi hjá Leiðtoginn Ásdís M. Finnbogadóttir Starfstitill: Aðstoðardeildarstjóri á sjúkrahúsinu Vogi. Aldur: 49 ára. Fjölskylduhagir: Gift Magnúsi Magnússyni, við eigum þrjú börn. Leiðtoginn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.