Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 19
17Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024
Þrettánda þing Samvinnu
hjúkrunarkvenna á Norður-
löndunum var haldið í Reykja-
vík dagana 6.–9. júlí 1970.
Fimmtíu ára afmælishátíð,
yfir 700 þátttakendur og
mikið um dýrðir. Hjúkrun í
brennidepli var umræðu-
efni þingsins og Elín Eggerz
Stefánsson var aðalfyrirlesari.
Þar leggur hún áherslu á
mikilvægi þess að hjúkrun sé
starf hugar, hjarta og handar.
Veltir upp spurningum hvert
stéttin stefni, framtíðarþróun, menntun hennar og mikilvægi
gagnreyndra aðferða.
Elín Eggerz lauk hjúkrunarnámi við The Royal Surrey County
Hospital, School of Nursing í mars árið 1952 og B.S.-gráðu
við University of Washington Seattle árið 1961. Í millitíðinni
hafði hún lokið fyrri hluta ljósmæðranáms við Hackney
Hospital í London og framhaldsnámi í hjúkrunarkennslu við
Svensk Sjuksköterskeforeningens Institut för Högre Utbilding
í Stokkhólmi, ásamt því að starfa við sitt fag á Landspítala,
Akureyri, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Vífilsstöðum og við
Hjúkrunarskóla Íslands.
María Pétursdóttir, formaður Hjúkrunarfélags Íslands, hafði í þriðja
tölublaði árið 1967 vakið athygli á 5. skýrslu sérfræðinganefndar
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar um hjúkrunarmál er kom út
árið 1966 þar sem segir að „öll menntun hjúkrunarkvenna, bæði
grunn- og framhaldsmenntun verði, eins fljótt og unnt er, innan
vébanda æðri menntastofnana landsins.“
Í maí árið 1970 kemur til landsins að tilhlutan landlæknis, sem
var formaður skólanefndar Hjúkrunarskóla Íslands, dr. Maria P.
Tito de Moraes, yfirmaður hjúkrunardeildar Evrópusvæðis (WHO).
Þorbjörg Jónsdóttir skólastjóri, María Pétursdóttir formaður HFÍ
og Elín Eggerz höfðu veg og vanda af dagskránni.
Menntamálaráðuneytið skipaði síðan þann 6. nóvember árið 1970
nefnd til að kanna möguleika á hjúkrunarnámi á háskólastigi
þ.e.a.s. grunnnámi og framhaldsmenntun hjúkrunarkvenna innan
háskóla. Þorbjörg Jónsdóttir, skólastjóri Hjúkrunarskóla Íslands,
var formaður nefndarinnar en hana skipuðu María Pétursdóttir
formaður Hjúkrunarfélags Íslands, Elín Eggerz Stefánsson
hjúkrunarkona tilnefnd af menntamálaráðuneytinu, Snorri Páll
Snorrason læknir tilnefndur af Háskóla Íslands og Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Niðurstöður nefndarinnar birtust í Tímariti Hjúkrunarfélags Íslands,
fyrsta tölublaði, árið 1972.
Í sama blaði birtist grein um að fulltrúi WHO Evrópudeild dr. Vera
Maillart hafi komið hingað að ósk skólanefndar Hjúkrunarskóla
Íslands.
Elín brann fyrir menntunarmálum stéttarinnar, var þar bæði
stefnuföst og rökvís og taldi að líta þyrfti á þau heildstætt. Í
2. tölublaði tímaritsins árið 1974 setur hún fram tillögur sínar
um menntun hjúkrunarmannaflans, þær tillögur tengdust veru
hennar í nefnd er vann að undirbúningi frumvarps til laga um
hjúkrunarmenntun. Fjölbrautaskólar eru þá að hefja starfsemi og
sýn menntamálaráðuneytisins sú að hjúkrunarnám ætti þar vel
heima. Kennaradeild félagsins var nýstofnuð og deildi ekki þeirri
sýn fremur en félagið sjálft. Undirrituð var formaður í deildinni,
þar var oft hart tekist á, þannig að óhörðnuðum kennara þótti nóg
um. En markmiðið var öllum ljóst.
Elín var í undirbúningsnefnd er vann að námi í kennslu og
uppeldisfræði fyrir hjúkrunarfræðinga í Kennaraháskóla
Íslands árin 1977–1979. Námið var mikil lyftistöng fyrir hjúkrun.
Nefndarstörfum fyrir Hjúkrunarfélagið gegndi hún fjölmörgum,
sat í stjórn þess og ritstjórn ásamt að vera fulltrúi félagsins hjá
BSRB. Einnig var Elín í nefnd á vegum Samvinnu hjúkrunarkvenna
á Norðurlöndum þar sem verið var að vinna að rannsóknum í
hjúkrun. Elín sat í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar og var einnig
formaður heilbrigðismálaráðs bæjarins. Hún kynnti sér mál,
skrifaði greinar, var hreinskiptin og skoðanaföst. Elín las mikið
og áhugi hennar á málefnum stéttarinnar hélst óbreyttur. Ég
tók viðtal við Elínu fyrir nokkrum árum, þar kom glöggt í ljós að
neistinn var enn til staðar, þrátt fyrir að vera á tíræðisaldri.
Græðum saman mein og mein,
metumst ei við grannan.
Fellum saman stein við stein,
styðjum hverjir annan,
plöntum, vökvum rein við rein
ræktin skapar framann.
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggjum saman.
Matthías Jochumsson
Með Elínu er gengin einn af brautryðjendum okkar stéttar.
Hafi hún heila þökk fyrir.
Sigþrúður Ingimundardóttir.
Elín Eggerz Stefánsson
fædd 6. mars 1926
dáin 8. nóvember 2023
Brautryðjandinn