Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 76

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 76
74 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Næringarástand eldra fólks á Akureyri og nágrenni hreyfigetu og lélegri samhæfingu geta leitt til aukinnar byltuhættu ásamt því að beinþynning og samfallsbrot aukast með hækkandi aldri (Norman o.fl., 2021). Sár gróa einnig verr hjá vannærðum og hefur næringarástand áhrif á teygjanleika húðarinnar og þar með sáramyndun. Skortur á prótíninntöku hægir á gróanda sára, lengir bólgutíma og sýkingar verða algengari (Norman o.fl., 2021). Í rannsókn Lim og félaga (2012) reyndust vannærðir sjúklingar dvelja að meðaltali 1,5-1,7 sinnum lengri sjúkrahússlegur en aðrir og legudagar voru að meðaltali 6,9-7,3 dagar hjá þessum hópi samanborið við 4,6-5,6 daga hjá vel nærðum sjúklingum. Einnig reyndust vannærðir sjúklingar mun líklegri til að leggjast inn aftur ásamt því að dánartíðni þeirra var þrefalt hærri innan árs frá útskrift (Lim o.fl., 2012). Rannsóknir hafa leitt í ljós að stór hluti eldri skjólstæðinga á sjúkrahúsum eru vannærðir eða með sterkar líkur á vannæringu ásamt því að næringarástandi þeirra hrakar á meðan á sjúkrahúsdvölinni stendur (Thorsdottir o.fl., 2005; Shin o.fl., 2018). Rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið síðasta áratuginn á öldrunardeildum Landspítalans sýna að 66% skjólstæðinga voru með ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu árið 2016 (Katrín Sif Kristbjörnsdóttir 2016) og 49% árið 2019 (Ásdís Lilja Guðmundsdóttir, 2019). Greint hefur verið frá sambærilegum niðurstöðum á sjúkrahúsum á hinum Norðurlöndunum (Sobestyansky, 2021; Thomsen o.fl., 2022). Sömuleiðis sýndi nýleg rannsókn meðal íbúa á Heilsuvernd (n=197) hjúkrunarheimilum á Akureyri svipaðar niðurstöður en þar reyndust 56,3% íbúa vannærð eða í mikilli áhættu á vannæringu ásamt því að 24,4 % voru í áhættu á vannæringu (Blondal, 2022.) Vandinn er því mikill á íslenskum stofnunum en fáar rannsóknir hafa skoðað stöðuna meðal eldra fólks í sjálfstæðri búsetu. Erlendar rannsóknir benda til þess að tíðni vannæringar meðal eldra fólks í sjálfstæðri búsetu sé oftast undir 10% (Cereda o.fl., 2015; Lozoya o.fl., 2017; Leij-Halfwerk o.fl., 2019) en að meira en helmingur þessa aldurshóps sé þó í mikilli áhættu á vannæringu (Poínhos o.fl., 2021). Þær rannsóknir sem hafa verið framkvæmdar hér á landi hafa fyrst og fremst beinst að eftirfylgni skjólstæðinga eftir útskrift af sjúkrahúsi (Blondal o.fl., 2022a;2022b). Greining á vannæringu Snemmtæk greining á vannæringu er einn af mikilvægustu þáttunum til að koma í veg fyrir eða hægja á vannæringu (Norman o.fl., 2021). Skimun fyrir áhættu á vannæringu er fljótlegt ferli, framkvæmt með matstæki sem hefur verið gildismetið fyrir viðkomandi þjóðfélagshóp og auðvelt í notkun (Mathewson, 2021). Mikilvægt er að skimun fari fram reglulega til að hægt sé að greina áhættu á vannæringu tímanlega og að viðeigandi inngrip verði framkvæmd (Embætti landlæknis, 2018). Í ráðleggingum frá Embætti landlæknis (2018) kemur fram að allt eldra fólk á að vera skimað fyrir áhættu á vannæringu innan heilbrigðiskerfisins og nota eigi skimun til að meta næringarástand hjá eldra fólki sem fær þjónustu heilsugæslu, heimaþjónustu, dagvist eða á hjúkrunarheimili. Mati á næringarástandi hefur ekki verið sinnt eins og ráðleggingar segja til um og hefur það verið rakið til tímaskorts og vanþekkingar hjá læknum og hjúkrunarfræðingum (Norman o.fl., 2021). Næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu er lítið rannsakað en ef næringarþörf þessa viðkvæma hóps er mætt má mögulega stuðla að auknum lífsgæðum, lægri þjónustuþörf, færri legudögum á sjúkrahúsum og ótímabærum búferlaflutningi á öldrunarheimili. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna næringarástand eldra fólks í sjálfstæðri búsetu á Akureyri sem fékk þjónustu í mars 2022, frá heimahjúkrun Heilbrigðistofnunar Norðurlands (HSN), þ.e. skoða hversu stór hluti eldra fólks hafði ákveðnar eða sterkar líkur á vannæringu samkvæmt mati fyrir áhættu á vannæringu og hverjir voru veigamestu áhættuþættirnir hjá þessum hópi. AÐFERÐAFRÆÐI Rannsóknarsnið og þátttakendur Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn (e. descriptive cross sectional study). Úrtakið var hentugleikaúrtak og í þýðinu (n=193) voru allir skjólstæðingar heimahjúkrunar HSN á Akureyri í mars 2022 sem uppfylltu gefin skilyrði. Skilyrði fyrir þátttöku voru að skjólstæðingarnir væru 65 ára eða eldri, í sjálfstæðri búsetu og þjónustuþegar heimahjúkrunar HSN á Akureyri. Gagnaöflun – mælitæki Starfsfólk heimahjúkrunar HSN skimaði skjólstæðinga sína með mælitækinu „mat á áhættu fyrir vannæringu“ sem finnst í Sögu sjúkraskrárkerfi. Áreiðanleiki mælitækis Mælitækið „Mat fyrir áhættu á vannæringu“ er gildismetið (e. validated) og hefur verið notað á Landspítala (LSH) síðan 2001, í klínískri meðferð til að bera kennsl á sjúklinga með litlar, ákveðnar eða sterklar líkur á vannæringu (Thorsdottir o.fl., 2001; 2005; Thorsdottir og Geirsdóttir, 2008). Mælitækið hefur næmni (e. sensitivity) 0,83 og sértækni (e. specifity) 0,96 hjá sjúklingum með krabbamein (Thorsdottir og Geirsdóttir, 2008) en hjá sjúklingum með COPD var næmni 0,69 og sértækni 0,90 (Thorsdottir o.fl., 2001). Framkvæmd Skjólstæðingar voru vigtaðir og svöruðu spurningum um heilsufar sitt sl. tvo mánuði. Þegar hæð og þyngd var skráð í matstækið reiknast líkamsþyngdarstuðull sjálfkrafa og fást stig fyrir að vera undir viðmiðunarmörkum (tvö stig þar fyrir að vera 18,5-20 kg/m2 í LÞS og fjögur stig fyrir að vera undir 18,5 kg/m2 í LÞS). Þyngdarsaga skjólstæðings undanfarið var einnig skoðuð í Sögu og gefin stig eftir hversu mikið þyngdartap var (>5% sl. mánuð eða >10 % sl. mánuði 4 stig, 5-10% sl. mánuði 2 stig). Ef hakað er í „Veit ekki“ fást 2 stig og „Nei“ (ekkert þyngdartap) 0 stig). Í spurningum um vandamál sl. vikur eða mánuði, þ.e. dagleg uppköst í meira en þrjá daga, daglegan niðurgang (þunnar hægðir þrisvar á dag eða oftar), viðvarandi lélega matarlyst eða ógleði, erfiðleika við að kyngja eða tyggja, sjúkrahúsdvöl í fimm daga eða lengur sl. tvo mánuði og hvort skjólstæðingur hafi gengist undir aðgerð sem telst veruleg sl. mánuð fékkst eitt stig fyrir hverja spurningu sem svarað var játandi. Spurningar um sjúkdóma, bruna >15%, innlögn v/vannæringar eða fjöláverka (e. multiple trauma) gáfu fimm stig fyrir hvert ef svarað var játandi. Eitt stig kemur sjálfkrafa ef skjólstæðingurinn er 65 ára eða eldri og þarf ekki að reikna það sérstaklega eða slá inn kennitölu því mat fyrir áhættu á vannæringu er gert á svæði skjólstæðingsins innan Sögu. Heildarniðurstaða fæst þegar öllum spurningum skimunarinnar hefur verið svarað og er stigagjöf á bilinu 0-30 stig. Stig 0-2 flokkast sem litlar líkur á vannæringu, 3-4 stig sem ákveðnar líkur á vannæringu og fimm stig eða fleiri sem sterkar líkur á vannæringu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.