Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 38
36 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024
Hver var þinn uppáhaldskennari á námsárunum?
Guðrún Pétursdóttir og Pétur Tyrfingsson skurðlæknum.
Hverjar eru helstu áskoranir háskólakennarans?
Stækkandi árgangar og að fylgja nýjustu breytingum í tækni
varðandi kennslu. Það getur líka verið áskorun að viðhalda áhuga
sínum og annara á efninu.
Er Eirberg sjarmahöll eða lúið og lélegt húsnæði
undir háskólakennslu?
Eirberg er sjarmahöll en hún er orðin gömul þessi höll, hún
geymir mikla sögu en ég hlakka til þegar við flytjum í nýtt og betra
húsnæði.
Uppáhaldskennslustofan þín að kenna í?
Færinstofan í kjallaranum, þar eru nánast engir gluggar að horfa
út um svo athyglin er öll á því sem er að gerast inni í stofunni.
Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið?
Ég myndi ekki segja að neitt fag vanti í hjúkrunarfræðinámið en
það mætti auka kennslu í næringarfræði að mínu mati, sem og í
endurhæfingu og hreyfingu.
Hressasti kennarinn á kennarastofunni?
Erfitt að gera upp á milli þeirra en ég myndi segja Þóra Jenný,
Þórdís Katrín og Herdís.
Eftirminnilegasta kennslustundin?
Þegar ég var í námi þá kom einn kennarinn inn í stofuna of seint
og hafði ekki tekið herðatréð úr frakkanum sem hann var í. Ég
brjálaðist úr hlátri og hann spurði hvað væri svona fyndið. Ég
þurfti að segja honum frá herðatrénu og þá segir hann: Það er
ekki skrítið að fólkið hafi horft á mig í strætó þegar ég fór út við
geðdeildina.
Flottasta fyrirmyndin þín í hjúkrunarfræði?
Þær eru nokkrar, ég vil nefna Kristínu Höllu Marinósdóttur, Arndísi
Henriksdóttir, Ellen Björnsdóttur og Signhildi Sigurðardóttur. Allt
flottar fyrirmyndir.
Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í
kennarastarfinu?
Skýrleika, sanngirni, húmor og gleði.
Hvernig tilfinning er að útskrifa nemendur?
Hún er blendin, sumpartinn saknar maður þess að hafa þá ekki
áfram í skólanum en mest megins er það gleði að þau hafi klárað
sitt nám og geti farið að gera góða hluti á sínum forsendum.
Hvernig mætti bæta hjúkrunarfræðinámið að þínu
mati?
Það mætti bæta klíníska námið á spítalanum og auka tækjakost
okkar í færnisetrinu. Sýndarveruleiki er eitthvað sem er að koma
meira inn í nám og það væri gaman að geta leyft nemendum að
njóta þess besta sem tæknin hefur upp á að bjóða.
Hvernig myndir þú sannfæra áhugasama um að
skella sér í nám í hjúkrunarfræði?
Ég myndi segja að hjúkrun væri ótrúlega gott og gefandi starf
þar sem hjúkrunarfræðingur fær að vera með fólki á erfiðustu og
bestu stundum lífsins. Ef hjúkrunarfræði verður fyrir valinu eru
störfin fjölbreytt; það er hægt að velja að starfa í forvörnum, við
að bjarga mannslífum, við að fylgjast með þroska barna, í skólum,
á skurðstofum, gjörgæslum, í geðinu og við lífslok fólks. Það er
flókið að finna sér nám sem gefur eins marga starfsmöguleika og
hjúkrun.
Hvernig nærir þú andann?
Með því að fara út í gönguferðir, í útilegur í hjólhýsinu, vera úti í
náttúrunni og snæða kvöldmat með fjölskyldunni. Það getur líka
verið nærandi að tala við kettina mína.
Hvað gleður þig mest í lífinu?
Þegar ég sé að fólki gengur vel í sínu, hvort sem það er í námi eða
starfi. Það gleður mig líka þegar fjölskyldan situr saman og ræðir
málin yfir kvöldmatnum og þegar ég man eftir því að anda djúpt
og njóta þess að vera í núinu.
Hvað hryggir þig helst?
Fólk sem kemur illa fram við aðra, dauðsföll og veikindi.
Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að læra hjúkrun?
Með fræðslu, við þurfum að kynna fyrir íslenskum karlmönnum
hve margir karlar fara í hjúkrun erlendis. Við verðum að leiðrétta
þessa skökku ímynd að hjúkrun sé kvennastarf. Hjúkrun er
krefjandi starf fyrir fólk sem vill sigrast á áskorunum og starfa við
eitthvað sem skiptir máli í stóra samhenginu.
Ef þú ættir eina ósk fyrir heilbrigðiskerfið á Íslandi
hver væri hún?
Að stjórnvöld og við sem þjóð myndum hætta að líta á heilbrigði-
skerfið sem kostnaðarlið og fara líta á það sem sparnaðarlið. Þessi
þreytta umræða um hve mikill kostnaðurinn er við heilbrigðiskerfið
þegar við ættum frekar að ræða hve mikill sparnaður felst í því
að geta lengt líf fólks og haldið fleiri einstaklingum í vinnu fyrir
samfélagið sem annars hefði kannski dáið eða orðið öryrkjar.
Eitt dæmi gæti hljómað svona: Landspítali gerði 100 liðskipti-
aðgerðir á síðustu þremur mánuðum, það mun lækka sjúkradag-
peninga um xx milljóir á ári og skila ríkinu og samfélaginu xx
milljónum í formi framleiðslu og skatta.
Falin perla í náttúru Íslands?
Borgarfjörður eystri og Rauðasandur.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu þínu?
Kannski ég reyni að skrifa eina grein. Ég ætla líka að ferðast um
landið með hjólhýsið mitt og fara á Bræðsluna.
Að endingu, hvert er þitt mottó?
Það er nú svolítið kaldhæðnislegt, eins og ég á til að vera, en það
hljómar svona: Til langs tíma litið þá deyjum við öll.