Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 57
55
Ritrýnd grein | Peer review
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024
hjá sér minnispunkta varðandi hik eða önnur viðbrögð sem gætu
gefið til kynna að eitthvað við innihald eða orðalag listans þætti
torskilið eða skrýtið. Eftir að þátttakandi hafði svarað listanum
spurði höfundur út í atriðin sem punktuð voru niður og fékk þar
með ábendingar um orðalag og innihald spurninga. Heildartími
hvers viðtals var á bilinu 40 til 60 mínútur.
Ábendingar sem komu úr þessum viðtölum voru teknar saman og
unnið úr til frekari lagfæringar á PREMIS-IS. Tvöföld neitun einnar
fullyrðingar listans var tekin út til að gera fullyrðinguna skýrari. Sú
fullyrðing þýddist upprunalega „Það er engin ástæða nógu góð
til að fara ekki úr ofbeldisfullu sambandi“ en allir þátttakendur
stoppuðu á þessari fullyrðingu. Henni var því breytt í „Það er
engin ástæða nógu góð til að vera áfram í ofbeldisfullu sambandi“.
Breytingin hafði ekki áhrif á kóðun spurningarinnar. Aðrar
ábendingar úr viðtölunum sneru m.a. aðallega að orðanotkun,
sem dæmi að nota orðið „starfsvettvangur“ í stað „deilda“
þar sem starfssvið er mjög breitt. Prófgráðum var bætt við í
valmöguleika um menntun. Í spurningu um fjölda starfsmanna
á vinnustað var valmöguleikinn „enginn“ settur inn í spurningu
um fjölda starfsmanna á vinnustað sem hefur sótt fræðslu um
ONS. Þátttakendum fannst vanta möguleikann að t.d. karlmenn
gætu verið þolendur ofbeldis, að hægt væri að benda þolendum
á rafrænt fræðsluefni og að vettvangur til að kynna sér efni um
ONS getur verið fjölbreyttari en sá sem gefinn er upp í PREMIS.
Þessum atriðum var ekki bætt við að svo stöddu þar sem það
gæti haft áhrif á tölfræðilega úrvinnslu PREMIS-IS. Niðurstöður
hugaferlaviðtalanna nýttust við að setja saman skýrari útgáfu af
PREMIS-IS m.t.t. orðanotkunar og þess að sjá heilt yfir hvernig
þátttakendur upplifðu að svara PREMIS-IS. Þetta samræmist
Collins (2003) og ITC (2017) um að hugræn viðrun sé gagnleg við
þýðingu mælitækja.
Mælitæki
PREMIS inniheldur 67 atriði sem taka á þekkingu og reynslu
heilbrigðisstarfsfólks á ONS, ásamt fjórum spurningum um
akademískan og klínískan bakgrunn viðkomandi svaranda.
Atriðum listans er skipt í fjóra aðalkvarða/lykilkvarða og þrjá
undirkvarða til að auðvelda tölfræðilega úrvinnslu og túlkun. Fyrsti
lykilkvarðinn er bakgrunnskvarði og skiptist í þrjá undirkvarða.
Þeir eru 1a) áætlaður undirbúningur; 1b) áætluð þekking og 1c)
fyrri þjálfun. Aðrir lykilkvarðar listans eru 2) raunveruleg þekking
á ofbeldi í nánum samböndum; 3) skoðanir þátttakenda og 4)
klínískir þættir (nefnt verklag og starfsumhverfi í þessari grein til
aðgreiningar á lykilkvörðum og þáttum). Í þessum kvörðum eru
atriði sem snúa meðal annars að því hversu oft þátttakendur
spyrja um ofbeldissögu, hvaða hópa fólks þeir spyrja, hvort til séu
verklagsreglur á vinnustaðnum, aðgengi að úrræðum, aðgengi
að fræðsluefni og fleira sem snýr að vinnulagi og vinnuumhverfi
þeirra.
Úrvinnsla PREMIS-IS
Töluleg úrvinnsla var unnin í forritinu SPSS, útgáfu 28 (IBM, 2021).
Úrvinnslan fól í sér greiningu á bakgrunnsbreytum (t.d. kyni og
aldri) og meginhlutagreiningu (e. Principal Components Analysis)
á skoðanakvarða PREMIS. Einnig var fjölbreytuaðhvarfsgreining
(e. Multiple Regression) gerð til að kanna hvort þættir úr
þáttagreiningu hefðu forspárgildi fyrir svör úr kvarðanum verklag
og starfsumhverfi samanber Short o.fl. (2006). Áreiðanleiki
PREMIS-IS var mældur með mælitölunni Cronbach‘s alpha,
sem metur innra samræmi í svörum. Þáttagreining felur í sér að
skoða samband atriða á spurningalista innbyrðis og greina með
Tafla 2. Bakgrunnur þátttakenda í forprófun
Aldur Fjöldi %
21-25 ára 1 0,6
26-30 ára 11 6,2
31-35 ára 17 9,6
36-40 ára 28 15,8
41-45 ára 23 13,0
46-50 ára 21 11,9
51-55 ára 24 13,6
56-60 ára 22 12,4
61-65 ára 22 12,4
71 árs eða eldri 8 4,5
Alls 177 100
Hvar vinnur þú?
Höfuðborgarsvæðinu 102 58
Landsbyggðinni 74 42
Alls 176 100
Hver er aðalstarfsvettvangur þinn?
Lyfjasvið 23 13,6
Heilsugæslusvið 61 36,1
Barnasvið 3 1,8
Geðsvið 8 4,7
Bráðaþjónusta 10 5,9
Skurðsvið/Aðgerðasvið 22 13
Kvennasvið/
Fæðingarsvið 10 5,9
Annað 32 18,9
Alls 169 100
Hvaða gráðu eða starfsréttindi hefur þú?
B.Sc.gráða 87 49,4
Meistaragráða 43 24,4
Ph.D. 5 2,8
M.D. 6 3,4
Embættispróf 12 6,8
Annað 23 13,1
Alls 176 100
Hversu marga sjúklinga hittir/sinnir þú að meðaltali í viku?
Hitti ekki sjúklinga 16 9
Færri en 20 57 32,2
20-39 59 33,3
40-59 19 10,7
60 eða fleiri 26 14,7
Alls 177 100
Að þér meðtöldum/talinni hve margir heilbrigðisstarfsmenn hafa farið
á námskeið í ofbeldi í nánum samböndum (ONS) á vinnustað þínum
undanfarna sex mánuði?
Enginn 58 32,8
Fáeinir 12 6,8
Nokkrir 6 3,4
Næstum allir 2 1,1
Ég veit það ekki 99 55,9
Alls 177 100