Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 28
Viðtal
26 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024
„Heilsugæslan er frábær vinnustaður“
Eftir útskrift fyrir 30 árum starfaði Jórlaug í nokkur ár á hjartadeild,
slysadeild og barnadeild. Hún flutti svo til Kaupmannahafnar
þar sem hún tók meistaragráðu, flutti aftur heim til Íslands árið
2004 og fór þá að starfa á Lýðheilsustöð sem var þá ný stofnun.
„Þar starfaði ég að lýðheilsuverkefnum með sveitarfélögum og
heilsugæslunni til ársins 2012 þegar Lýðheilsustöð rann inn í
Embætti landlæknis en þá fór ég að sinna öðrum verkefnum sem
tengdust heilbrigðisþjónustunni.
Minnisstæðast hvað hjúkrunarfræðingar voru
fljótir að stökkva til
Tíminn leið og árið eftirminnilega rann upp. „Þegar covid-
faraldurinn skall á árið 2020 var ég lánuð yfir til heilsugæslunnar
til að sinna ýmsum verkefnum og þar á meðal sýnatökum
á Keflavíkurflugvelli. Á þessum tíma réð ég mig til starfa á
Þróunarmiðstöð og var svo lánuð þaðan í bólusetningar í
Laugardalshöll,“ útskýrir Jórlaug og það er örugglega flestum í
fersku minni hvað bólusetning heillar þjóðar var umfangsmikið
verkefni og hvað hjúkrunarfræðingar voru áberandi í því. Nú
þremur árum síðar er farið að fenna í covid-sporin og áhugavert
að heyra hvað Jórlaugu finnst standa upp úr eða hefði mátt gera
betur? „Mér er minnisstæðast hvað allir unnu vel saman að þessu
verkefni og hvað hjúkrunarfræðingar voru fljótir að stökkva til
þegar það vantaði að manna vaktir, til dæmis við bólusetningar
eða blöndun bóluefna. Það komu hjúkrunarfræðingar alls staðar
að, þetta var samvinnuverkefni margra aðila og allir lögðust á
eitt sem gerði það að verkum að þetta gekk eins vel og raun ber
vitni,“ segir hún og við höldum áfram að ræða heimsfaraldurinn
og spyrjum Jórlaugu hvað henni hafi fundist taka mestum
framförum á þessum fordæmalausu tímum? „Tæknin tók risastór
skref,“ segir hún án þess að hugsa sig um og bætir við að Embætti
landlæknis ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafi þar
verið í fararbroddi. Hún segist aðspurð ekki sakna þessa tíma
en tækniframfarir og samtakamáttur allra sem að þessu stóra
verkefni komu situr eftir.
Mikilvægt að skipuleggja þjónustuna heildstætt
Við vindum við okkur í aðra sálma sem snúa að heilsugæslunni
og þeim verkefnum sem Jórlaug sinnir þar og snúa að því að
samræma þjónustu í heilsugæslunni á landsvísu. Hún segir að
ein áherslan sé að auka heilsulæsi fólks. Hugtakið er frekar nýlegt
en gott heilsulæsi á að geta aukið líkur á heilsusamlegu líferni og
einnig haft áhrif á það hvernig fólk notar heilbrigðisþjónustu og
geti þannig dregið úr bæði álagi og kostnaði í heilbrigðiskerfinu.
Eins og fyrr segir þá stýrir Jórlaug verkefni sem snýr að því að
samræma þjónustu fyrir fólk með langvinnan heilsuvanda og
aldraða og tryggja að allir fá grunnheilbrigðisþjónustu, óháð
búsetu. „Þegar við erum að horfa á hóp fólks sem er kominn með
langvinnan heilsuvanda og jafnvel fleiri en einn sjúkdóm þá þurfum
við að skipuleggja þjónustuna heildstætt og horfa á þá verkþætti
sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði fólks. Í þessu samhengi má nefna
skipulag þjónustunnar, stuðning við ákvarðanir um meðferð,
verkfæri sem styður einstaklinginn til að taka málin í sínar hendur,
rafrænar heilbrigðislausnir og upplýsingatækni,“ útskýrir hún.
Jórlaug segir mikilvægt að áherslan sé einnig á heilsueflingu og
forvarnir: „Áherslan á ekki bara að vera á sjúkdóminn, heldur
einnig á þætti sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði. Þar má nefna
svefn, geðheilsu, næringu, munnheilsu, hreyfingu, áfengi og
tóbak, sem og lyf sem fólk tekur. Allir þessir þættir hafa áhrif á
lífsgæði og þarna þurfum við að auka heilsulæsi og leggja áherslu
á hegðunarbreytingu. Þetta á einnig við um lyfjanotkun.“
Hún bætir við að að sjálfsögðu sé líka lögð áhersla á blóðprufur og
gerðar klínískar skoðanir og mælingar á öllum sem greinast og eru
í eftirfylgd. „Tryggja þarf að eftirfylgd sé einstaklingsmiðuð en hún
getur farið fram með viðtali á stöð, í fjarsamtali eða með símtali,
allt eftir þörfum og sjúkdómsástandi skjólstæðingsins.“
Öðruvísi lýðheilsutengd nálgun
Jórlaug segir að allt sem tengist heilsu og lífsstíl fólks séu margir
samverkandi þættir og að mikilvægt sé að leggja áherslu á
lífsgæði ekki bara sjúkdóminn sjálfan. „Að fólk fái greiningu og
meðhöndlun við einkennum með það að markmiði að auka
lífsgæðin og draga úr áhrifum einkenna. Það er þessi heildstæða
mynd í kringum skjólstæðinginn sem við leggjum svo ríka áherslu
á. Það eru margir áhrifaþættir sem hafa áhrif á framgang sjúkdóma
og lífsgæði fólks, þetta er öðruvísi nálgun sem tengist lýðheilsunni,
útskýrir hún og talið berst að þeim áskorunum sem heilsugæslan
stendur helst frammi fyrir núna.
,,Ein af áskorununum er langvinnur heilsuvandi, andleg líðan og
þar kemur svefnvandinn inn, kvíði og ýmislegt annað. Langvinnir
sjúkdómar eins og t.d. offita, hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki
og háþrýstingur. Einnig er þjóðin að eldast og það eru sóknarfæri í
að bæta þjónustu við þann hóp.“
Jórlaug Heimisdóttir, hjúkrunarfræðingur
Jórlaug Heimisdóttir hjúkrunarfræðingur ólst upp á Grenivík, hún fór suður til náms og útskrifaðist úr
hjúkrunarfræði frá HÍ árið 1994. Seinna ákvað hún að bæta við sig meistaragráðu í lýðheilsu með áherslu á
faraldsfræði, sem og í stjórnun. Ritstýran hitti Jórlaugu yfir kaffibolla í húsnæði Félags hjúkrunarfræðinga og
spjallaði meðal annars við hana um störf hennar hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu þar sem hún er
verkefnastjóri heilsueflandi þjónustu. Jórlaug segir að starf sitt felist í því að þróa, leiða og samræma starfsemi í
heilsugæslu á landsvísu með áherslu á fólk með langvinnan heilsuvanda og áherslu á aldraða.
Texti og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir