Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 93

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 93
Fræðslugrein 91Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Á milli kafla í fræðslugreininni eru verkefni (merkt ,,staldraðu við“) sem ætluð eru til þess að styðja við nám lesenda. Eftir að hafa lesið greinina og lokið verkefnunum sem henni fylgja ætti lesandi að: 1. Geta útskýrt hvað felst í endursagnaraðferðinni. 2. Geta útskýrt af hverju er mikilvægt að nota aðferðina í sjúklingafræðslu. 3. Geta beitt aðferðinni í samskiptum við sjúklinga. 4. Hafa ígrundað eigin hæfni í samskiptum og fræðsluhlutverkinu. Staldraðu við Ígrundaðu starf þitt Manstu eftir atviki þar sem sjúklingur sem þú veittir fræðslu: - Sýndi lítinn áhuga á fræðslunni? - Tók ekki þátt í fræðslunni, hlustaði en spurði einskis? - Fylgdi ekki þeim leiðbeiningum sem komu fram í fræðslunni? - Spurði þig spurninga um það sem þú taldir þig þegar hafa frætt hann um? Hvernig brást þú við? - Veltir þú því fyrir þér hver ástæðan gæti verið? - Hvað hefðir þú getað gert öðruvísi? Sjúklingafræðsla Skýr upplýsingagjöf og sjúklingafræðsla er mikilvæg í heil- brigðisþjónustu. Það er sífellt lögð meiri áhersla á samráð og þátttöku sjúklinga í ákvarðanatöku um eigin meðferð og sjálfsumönnun. Einnig er lögð áhersla á þátttöku þeirra á öllum stigum í undirbúningi og framkvæmd rannsókna, við gerð klínískra leiðbeininga og þegar opinberar stefnur eru mótaðar samanber Heilbrigðisáætlun Íslands til 2030 (heilbrigðisráðuneytið, 2019). Til þess að sjúklingar geti verið þátttakendur þurfa þeir meðal annars að búa yfir nægilegri færni og þekkingu og skilja þær upplýsingar og leiðbeiningar sem þeir fá. Í sjúklingafræðslu hefur notkun endursagnaraðferðarinnar verið skilgreind sem einn af tíu mikilvægum þáttum sem einkenna árangursríka sjúklingafræðslu (HCEA, 2022; Institute for Healthcare Advancement, e.d). Þessir 10 þættir eru sýndir í töflu 1. Þættir sem hafa áhrif á nám sjúklinga Það eru margir þættir sem geta hindrað nám sjúklinga og dregið úr árangri fræðslu. Þessir þættir geta tengst stofnunum, heilbrigðisstarfsmönnum eða sjúklingunum sjálfum eins og fram kemur á mynd 1. Staldraðu við - Kynntu þér hvort stofnunin sem þú starfar hjá hafi stefnu um fræðslu til notenda þjónustunnar og ef svo er, hvað stendur í henni? - Ígrundaðu hvernig fyrirkomulag fræðslu er á stofnuninni. - Ígrundaðu eigin hæfni til að skipuleggja og veita fræðslu. Hversu góð er hún, hvar og hvernig öðlaðist þú hæfnina og eru einhverjir þættir sem þú myndir vilja bæta hæfni þína í? Fræðsluferlið í fjórum skrefum Til þess að sjúklingafræðsla beri árangur þarf að nota gagn- reyndar aðferðir við framkvæmd hennar. Leiðbeiningar um slíkar aðferðir má finna í nýlegum klínískum leiðbeiningum um skipulagningu og framkvæmd sjúklingafræðslu en íslensk útgáfa þeirra er aðgengileg á heimasíðu Miðstöðvar sjúklingafræðslu á Landspítala (HCEA, 2022). Fræðsla byggð á gagnreyndri þekkingu felur í sér að fylgja fjórum skrefum fræðsluferlisins sem eru forkönnun (upplýsingaöflun eða mat á sjúklingi og aðstæðum), skipulagning, framkvæmd og mat á árangri fræðslu (HCEA, 2022). Það er okkar reynsla að heilbrigðisstarfsfólk leggur megináherslu á að veita upplýsingar þegar það fræðir sjúklinga og aðstandendur en mat á árangri fræðslunnar sem er eitt það mikilvægasta, er það skref sem oftast er vanrækt í fræðsluferlinu. Mælt er með að nota endursagnaraðferðina til þess að meta árangur af fræðslunni. Staldraðu við Skoðaðu eftirfarandi efni og umfjöllun þar um fræðslu: 1. Heilbrigðisstefnu til 2030¹ 2. Leiðbeiningar um skipulagningu og framkvæmd sjúklingafræðslu² 3. Siðareglur hjúkrunarfræðinga³ Hvar sérðu tækifæri til að efla þig í hlutverki fræðarans í starfi þínu? Vefslóðir: ¹https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/ Heilbrigdisstefna_4.juli.pdf ²https://www.landspitali.is/library/Sameiginlegar-skrar/Fagfolk/Midstod-sjuklingafraesdlu/ Leidbeinginar-um-skipulag-og-framkvaemd-sjuklingafraedslu.pdf ³https://prismic-io.s3.amazonaws.com/hjukrun/62abbf82-8c5f-446b-9991-638795d72fa0_ Si%C3%B0areglur_2022.pdf Tafla 1. Tíu atriði sem einkenna árangursríka sjúklingafræðslu 1. Fræðsla er einstaklingshæfð og tekur mið af þörfum og aðstæðum sjúklinga og aðstandenda. 2. Fræðsla er byggð á mati á fræðsluþörfum og heilsulæsi. 3. Valin er sú fræðsluaðferð sem hentar sjúklingi. 4. Sjúklingur tekur þátt í fræðslunni. 5. Notað er lesvænt skriflegt fræðsluefni til stuðnings munnlegri fræðslu. 6. Notað er einfalt og skýrt mál, án slangurs. 7. Áhersla er lögð á 2-3 mikilvæg lykilatriði hverju sinni og byrjað á mikil- vægustu atriðunum. 8. Fræðsla er ferli. Hún þarf að fara fram reglulega og endurtekið og taka mið af breytingum á þörfum sjúklings yfir tíma. 9. Aðstandendur eru þátttakendur ef sjúklingur samþykkir það. 10. Endursagnaraðferðin er notuð til að meta árangur fræðslunnar. Þættir sem geta ha áhrif á nám sjúklinga STOFNUN -Sýn og stefna -Forgangur í daglegri þjónustu -Aðstaða, kennslugögn -Hæfni starfsfólks HEILBRIGÐISSTARFSMAÐUR -Hæfni í samskiptum og fræðsluhlutverki -Beiting gagnreyndrar þekkingar SJÚKLINGUR -Ófullnægjandi heilsulæsi -Tungumálaerfiðleikar -Hugræn skerðing -Vanlíðan og einkenni Mynd 1. Nokkrir þættir sem geta haft áhrif á nám sjúklinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.