Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 64
Ritrýnd grein | Peer review
„Suma daga nær maður ekki höfðinu
upp úr vatninu“
Reynsla hjúkrunarfræðinga af starfi
teymisstjóra í heimahjúkrun
ÚTDRÁTTUR
Heimahjúkrun er þjónustuform sem ætlað er að mæta hjúkrunarþörfum
og aðstoða skjólstæðinga við að vera sem mest sjálfbjarga heima.
Teymisstjórar í heimahjúkrun hafa yfirumsjón með ákveðnum teymum
sem fara inn á heimili fólks og bera ábyrgð á að skjólstæðingar fái þá
þjónustu sem þeir þurfa
Tilgangur
rannsóknarinnar var að skoða starf teymisstjóra heimahjúkrunar til að
varpa ljósi á umfang og ábyrgð starfsins og hvaða leiðsögn og stuðning
teymisstjórar fengu til að takast á við starfið.
Aðferð
Notuð var eigindleg aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við 10 starfandi
teymisstjóra innan heimahjúkrunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Við greiningu gagna var stuðst við vinnulag grundaðrar kenningar og
niðurstöður settar fram í flokkum.
Niðurstöður
Þrír meginflokkar komu fram, hver með tveimur undirflokkum, umfang
starfsins, flókin vinnuaðstaða og stuðningur og skipulag. Teymisstjórunum
gekk misjafnlega að hafa yfirsýn yfir allt sem tilheyrði starfinu og að
forgangsraða verkefnum. Við það skapaðist álag sem meðal annars leiddi
til þess að mörgum reyndist erfitt að skilja á milli vinnu og einkalífs.
Dæmi voru um að teymisstjórar upplifðu kvíða þegar umfangið varð of
mikið. Einnig gat verið áskorun að viðhalda dagskipulagi og bregðast við
breytingum með stuttum fyrirvara. Starfsaðstæður í heimahúsum voru
mismunandi og aðstæður til hjúkrunar oft erfiðar. Teymisstjórar fengu litla
aðlögun í upphafi starfs en meirihluti þeirra var með stutta starfsreynslu.
Stuðningur fyrir teymisstjórana var þó til staðar ef þeir báru sig eftir honum
sjálfir.
Ályktanir
Teymisstjórastarfið er umfangsmikið starf og töluvert álag sem því fylgir.
Niðurstöður sýndu að hlúa þarf betur að teymisstjórum og þá sérstaklega
þeim sem eru nýir í starfi og veita þarf betri stuðning til þess að takast á við
þetta krefjandi starf.
Lykilorð
Teymisstjóri, eigindleg rannsókn, grunduð kenning, starfsaðstæður,
stjórnun.
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
Nýjungar rannsóknar: Niðurstöður
rannsóknarinnar varpa ljósi á umfang starfs
teymisstjóra í heimahjúkrun og hvaða
stuðning þeir fá við að að koma sér inn í
starfið og takast á við krefjandi aðstæður.
Hagnýting niðurstaðna: Niðurstöðurnar
geta veitt mikilvægar upplýsingar fyrir
yfirstjórn heilsugæslunnar með því að varpa
ljósi á umfang og ábyrgð starfs teymisstjóra
og á hvaða hátt er best að veita þeim leiðsögn
og stuðning.
Þekkingarleg viðbót: Niðurstöðurnar eru
mikilvæg viðbót til fræðasamfélagsins og
innlegg í umræðu til að takast á við sívaxandi
hjúkrunarþyngd í starfsemi heimahjúkrunar
á Íslandi.
Áhrif á störf: Niðurstöðurnar gefa ákveðna
mynd af áhrifum starfsumhverfis á störf
teymisstjóra og hvernig umhverfisþættir
geta haft áhrif á líðan þeirra við að starfa í
heimahúsum.
doi: 10.33112/th.100.2.4