Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 34

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 34
Viðtal 32 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 að láta hitt foreldrið vera með barnið í nokkra daga. Við vorum í eilífum vandræðum með að láta allt ganga upp og þess vegna hætti ég á gjörgæslunni. Reyndar var ég komin í annað samband á þessum ferðalagatíma og seinni maðurinn minn tók dætur mínar alveg að sér á meðan ég var á ferðalögum, sem var alveg einstakt.“ Eftir að þessum kafla hjá Taugagreiningu lauk fór Sjöfn að vinna á skurðstofu og kunni vel við sig. „Þar var rosalega mikill hraði og hálfgerð akkorðsvinna – annaðhvort inni á skurðstofu, í aðgerð eða inn á vöknun,“ lýsir Sjöfn en hún stoppaði þó stutt við á skurð- stofunni áður en næsta tækifæri bauðst. Starfaði í ferðaþjónustu en fór svo aftur í heilalínuritabransann Ári eftir að hún hóf störf á skurðstofu dembdi Sjöfn sér óvænt inn í ferðabransann. „Bróðir minn sem var þá búsettur í Þýskalandi, hafði verið að selja Þjóðverjum ferðir til Íslands í nokkurn tíma og hann vantaði aðila til að taka á móti þessu fólki. Mér finnst gaman að breyta til og að láta reyna á mig og sló því til. Þetta var árið 2006 og eiginlega engir innviðir hér á Íslandi til að taka á móti ferðamönnum. Þarna starfaði ég til ársins 2012 og var eiginlega stanslaust á símavakt því við þjónustuðum þessa ferðamenn vel,“ segir Sjöfn en hún segist hafa verið farin að sakna þess að starfa í heilbrigðisgeiranum. „Þó að ferðaþjónustan sé að mörgu leyti heillandi bransi, þá togaði alltaf í mig að starfa frekar í heilbrigðisgeiranum. Þess vegna var ég fljót að ákveða mig þegar ég fékk símtal frá gömlum kollega úr heilalínuritabransanum sem bauð mér vinnu hjá fyrirtæki sem heitir Mentis Cura. Ég stoppaði samt frekar stutt hjá þeim, því að fyrrum samstarfsfélagar mínir hjá Taugagreiningu höfðu stofnað fyrirtæki sem heitir Kvikna og vissu af mér og ég færði mig yfir til þeirra. Þar fór ég að vinna í svipuðu starfi og ég sinnti hjá Taugagreiningu. Við tóku ferðalög og ég hitti gamla félaga í bransanum á ný. Ég hafði mjög mikla trú á heilasíritanum sem fyrirtækið hafði þróað en eins og með Taugagreiningu þá kom bandarískt fyrirtæki fáum árum síðar og keypti fyrirtækið Kvikna. Þar var ekki áhugi fyrir því að halda áfram þróun síritans fyrir gjörgæslu svo ég hætti hjá fyrirtækinu. Þetta var árið 2019 og ég ákvað að taka mér frí og njóta þess að verða amma í fyrsta skiptið. En svo fór ég að hugsa hvað tæki næst við.“ Vissi að það yrði átak að byrja aftur á gjörgæslu Í gegnum þau 24 ár sem Sjöfn starfaði ekki á gjörgæslunni leitaði hugur hennar ítrekað þangað aftur. Og fyrrum kollegar voru sama sinnis: „Þegar ég hitti gömlu vinnufélagana fékk ég spurningar hvenær ég ætlaði að koma aftur, jafnvel að öllum þessum árum liðnum. Eftir því sem lengra leið fannst mér þessi hugmynd fráleitari. Ég veit að það er löng og ströng þjálfun að byrja að vinna á gjörgæslu. Það breytist margt og ég vissi að það yrði talsvert átak að byrja aftur. En mér þótti vænt um þessi tengsl og það var alltaf eitthvað sem togaði í mig að byrja aftur,“ útskýrir Sjöfn og bætir við að hún hafi nefnt það við eiginmann sinn að kannski væri kominn tími til að snúa aftur. „Honum fannst það frábær hugmynd og hvatti mig áfram,“ segir Sjöfn sem segist einnig hafa fengið mikinn stuðning frá fjölskyldu og vinum. „Ég ræddi þetta við vinkonur mínar sem vinna á gjörgæslunni og fékk mikinn stuðning frá þeim. Ein sagði reyndar að ég sæi þetta í of miklum dýrðarljóma, þetta væri ekki alveg svona gott,“ segir Sjöfn og skellir upp úr. „Ég hugsaði þetta fram og til baka og nefndi þetta við Ólöfu, þáverandi deildarstjóra og vinkonu mína, sem tók svakalega vel í þessa hugmynd. Við ákváðum í sameiningu að ég myndi byrja þann 1. apríl 2020. Svo skall á heimsfaraldur.“ Hálfgert brjálæði að hefja störf í fyrstu bylgju covid Það gefur því augaleið að endurkoma Sjafnar á gjörgæslu kom á krítískum tíma en hún hefur aldrei skorast undan áskorunum og fannst enn mikilvægara að koma aftur til starfa við slíkar aðstæður. „Við Covid varð ég eiginlega enn spenntari fyrir því að byrja aftur að vinna á sjúkrahúsi. Mig langaði svo að leggja mitt af mörkunum. Ég mætti með uppbrettar ermar og tilbúin þann fyrsta apríl en þegar ég lít til baka sé ég að það var hálfgert brjálæði að byrja þarna á þessum tímapunkti. Fyrsta bylgjan var í hámarki og spítalinn varla búinn að ná tökum á aðstæðum. Þegar mest var vorum við með 22 öndunarvélapláss. Svo fór að róast í maí og allir héldu að þetta væri búið en þá kom næsta bylgja,“ segir Sjöfn og finnst, þegar litið er í baksýnisspegilinn, að mögulega hafi það verið aukaálag að fá hana í aðlögun á þessum tímapunkti. „En eins og hjúkrunarfræðinga er von og vísa, þá gekk þetta þó upp og mér finnst ótrúlegt hvað mér var vel tekið og hvað mér var sýnd mikil þolinmæði. Sumt þurfti ég algjörlega að læra upp á nýtt. Ég kunni varla að draga upp lyf í sprautu. En svo voru önnur handtök sem voru í bókstaflega í vöðvaminninu líkt og að soga úr barkarennu sjúklinga. Allt saman rifjaðist þetta svo hægt og rólega upp. Á þessu tímabili voru allir í framandi aðstæðum, ekki bara ég. Ég fann samt að ég hafði góða reynslu í farteskinu. Til dæmis hafði ég góða þekkingu á menningarlegum samskiptum og ég hafði öðlast mikla reynslu í samskiptum sem nýtist vel bæði sambandi við sjúklinga og aðstandendur.“ Sjöfn lýsir aðlögun sinni í heimsfaraldri með kostum og göllum. „Það sem var jákvætt við að byrja í heimsfaraldinum var að ég lærði það mjög vel að sinna þessum sjúklingahópi. Það var lítið um önnur veikindi eða slys á þessum tíma. Þegar covid lauk fóru að leggjast inn sjúklingar með fjölbreyttari veikindi og eftir slys og þá upplifði ég að ég væri í smá vandræðum. Ég þurfti að spyrja mjög mikið og læra enn þá meira. En sem betur fer er þannig menning á þessari deild að það þykir sjálfsagt og eðlilegt að spyrja hvert annað og samvinna milli stétta er mjög góð,“ segir Sjöfn og bætir við að teymi sjúklings sé alltaf að ræða saman um hvernig megi koma sjúklingnum í gegnum veikindin á sem bestan hátt. „Maður er aldrei einn á vaktinni. Það er svo mikill stuðningur í umhverfinu frá hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, læknum og öðrum fagstéttum. Teymisvinnan er eitt af því sem mér þykir svo skemmtilegt við að vinna á gjörgæslunni.“ Vaktavinnan hentug Í dag þykir Sjöfn vaktavinnan henta sínu fjölskyldumynstri mun betur en hún gerði fyrstu árin eftir útskrift. „Í seinni tíð, nú þegar börnin eru uppkomin, kann ég sérstaklega vel við að vinna á vöktum. Mér finnst frábært að eiga frí á virkum dögum og eiga tíma fyrir sjálfa mig. Í vaktavinnu á maður frí í miðri viku meðan aðrir eru í vinnu eða skóla og það er algjör draumur. Mér finnst líka gaman að vinna allar vaktir og hver vakt hefur sinn sjarma. Á tímabili hætti ég að vinna næturvaktir en svo saknaði ég þess þannig að núna tek ég nokkrar næturvaktir í hverjum mánuði þótt ég þurfi þess ekki, vegna aldurs,“ segir Sjöfn brosandi. „Maður lærir að hafa kjark til að efast um aðferðir og meðferðir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.