Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 23
21Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Það geta ekki allir flutt heim til mömmu og pabba eða farið á stúdentagarðana. Einstæðir foreldrar sem vilja mennta sig þurfa að reikna dæmið langt fram í tímann til að sjá hvort það gangi upp. Staðan er því miður sú að mörg þurfa einfaldlega að vinna mikið með skóla. Sjálfur veit ég um dæmi þar sem hjúkrunarnemar taka 16 tíma vinnudaga, jafnvel í prófatíð, þar sem þau taka morgunvakt í verknámi og kvöldvakt á heimadeild. Við sleppum því að taka okkur sumarfrí og söfnum upp orlofsdögum til að nýta þá í prófatíð eða fyrir lotur og verknám. Við útskrift höfum við mörg þá verið í því sem samsvarar 180% vinnu með litlu sem engu fríi í um fjögur ár. Það kemur mér því ekkert á óvart að kulnun sé vandamál. Það er hlutverk mitt og kollega minna, sem kjörnir fulltrúar stúdenta, að standa vörð um réttindi nema í skólastofum, það er okkar hlutverk að útrýma því öráreiti sem fylgir því að vera kallaður einn af stelpunum, eða sterkur strákur. Það er okkar hlutverk að berjast fyrir bættum kjörum og mannsæmandi framfærslulánum. Það er okkar hlutverk að stuðla að öruggu og uppbyggilegu námi fyrir öll. En það er ykkar hlutverk að gera slíkt hið sama á vinnustaðnum. Það er ykkar að byggja skjaldborg um okkur nemana, það er ykkar að taka öllum með opnum örmum – fylgist með okkur – gerið allt sem þið getið til að fyrirbyggja kulnun, útrýmið öráreyti og fordómum, haldið í höndina á okkur ef við þurfum. Styðjið okkur ... standið með okkur ... en umfram allt verið fyrirmynd framtíðarhjúkrunarfræðinga sem munu taka við keflinu á næstu árum. Takk fyrir mig. Heimildir: Flygenring, B. G., Sveinsdóttir, H., Björndsóttir, R. D., & Jónsdóttir, S. (2021). Streita og kulnun hjúkrunarfræðinema. Tímarit Hjúkrunarfræðinga, 97(3), 76–85. Reform, Research Center for Men. (2019). Men in Nursing Education. Neminn Jón Grétar sló í gegn með ræðu sinni. Jón Grétar á vakt.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.