Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 25
23Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024
eru forvarnir, fræðsla og heilsuefling, skimanir og skoðanir,
bólusetningar, umönnun veikra og slasaðra barna, ráðgjöf til
nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans. Heilsuvernd
skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd sem flestir
þekkja vel. Skipulagðar skoðanir eru gerðar hjá öllum nemendum
í 1. bekk, 4. bekk, 7. bekk og 9. bekk þar sem mæld er hæð og
þyngd í þeim tilgangi að fylgjast með vexti og þroska, gert er
sjónskerpupróf og tekin einstaklingsviðtöl um lífsstíl og líðan þar
sem tilgangurinn er að með áhugahvetjandi samtali sé fræðsluþörf
barnsins metin og fræðsla veitt í samræmi við það. Auk þess að
sitja þverfaglega fundi með öðru fagfólki sem kemur að málefnum
nemenda. Unnið er í náinni samvinnu við foreldra og forráðamenn
nemenda, skólastjórnendur, kennara og aðra svo sem lækna eða
sálfræðinga. Skipulögð heilbrigðisfræðsla er síðan veitt í öllum
árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta.
Mánudagsvakt
Þennan mánudagsmorgun hringir klukkan 6:30 eins og venjulega
á virkum dögum. Mér finnst mjög gott að byrja daginn á því að eiga
rólega stund með sjálfri mér áður en sú litla sem er fjögurra ára
orkubolti fer á fætur. Ég sýð mér tvö egg og við mæðgur græjum
okkur síðan út í daginn. Við búum svo vel að geta farið okkar ferða
hjólandi þegar vel viðrar og nýtum okkur það þennan morguninn.
Í dag er ég með hjúkrunarnema sem er í verknámi á heilsugæslu.
Ég legg mikla áherslu á að segja sem allra mest og best frá
heilsuvernd skólabarna þennan stutta tíma sem nemar fá
að kynnast því. Mín reynsla var nefnilega ekki þannig þegar
ég var í grunnnáminu, sem er synd, enda datt mér alls ekki í
hug að ég myndi vilja starfa á heilsugæslu í framtíðinni, hvað
þá sem skólahjúkrunarfræðingur. En ég dýrka það að vera
skólahjúkrunarfræðingur og finnst ég mjög lánsöm að fá með
minni vinnu að stuðla að heilbrigði grunnskólabarna og er mjög
stolt af því sem ég geri. Það eru skilaboðin sem ég vil koma áfram
til þeirra hjúkrunarnema sem koma til mín í verknám.
Ef ég tala út frá minni reynslu af grunnnáminu og síðan starfs-
reynslu á heilsugæslunni þá myndi ég vilja sjá miklu meiri áherslu
á heilsugæsluna í hjúkrunarnáminu, sem ég upplifði sem mjög
sjúkrahúsmiðaða. Bæði í akademísku námi og klínísku verknámi
er hægt að gera betur varðandi heilsugæsluna. Ekki óraði mig
fyrir því þegar ég var að læra um heilsugæsluhjúkrun eða var
í því verknámi að þetta væri nú eitthvað fyrir mig. Ég hef lokið
framhaldsnámi í klínískri heilsugæsluhjúkrun og er í meistaranámi
í heilbrigðisvísindum, því mér finnst svo brjálæðislega gaman
að vera hjúkrunarfræðingur og læra meira um það sem nýtist
mér í mínu starfi. Með því að kynna starfsemi heilsugæslunnar
vel, tryggja nemum sem fjölbreyttust námstækifæri í verknámi
og koma því til skila hversu skemmtilegt og fjölbreytt er að
starfa á heilsugæslu skilar það sér vonandi í auknum áhuga.
Þetta á auðvitað líka við um alla hjúkrunarfræðinga sem hafa
áhuga á heilsueflingu og ættu að geta fundið sína fjöl innan
heilsugæslunnar þar sem verkefnin eru alls konar og fólki er sinnt
frá vöggu til grafar.
Þegar ég mæti í vinnuna hengi ég af mér, fer í inniskóna og ræsi
tölvuna. Ég þarf að opna Ískrá sem er rafrænt sjúkraskrárkerfi
Vaktin mín
„Ég dýrka það að vera skóla-
hjúkrunarfræðingur og finnst ég
mjög lánsöm að fá með minni
vinnu að stuðla að heilbrigði
grunnskólabarna og er mjög stolt
af því sem ég geri.“