Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 44
Ritrýnd grein | Peer review Mér fannst ég verða aftur ég sjálf - Reynsla kvenna af notkun hormónauppbótarmeðferðar á breytingaskeiði ÚTDRÁTTUR Tilgangur Tilgangur þessarar rannsóknar var að afla aukinnar þekkingar á reynslu kvenna af hormónauppbótarmeðferð á breytingaskeiði. Breytingaskeið getur hafist allt að 10 árum áður en tíðahvörf skella á. Á þessu skeiði getur konan upplifað ýmis líkamleg og andleg einkenni. Hormónameðferð tengd breytingaskeiði er árangursríkur meðferðarmöguleiki til meðhöndlunar á líkamlegri og andlegri vanlíðan. Aðferð Eigindleg fyrirbærafræðileg aðferð var valin og stuðst við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru 12 íslenskar konur á aldrinum 47-53 ára sem höfðu verið á hormónauppbótarmeðferð síðustu 3-24 mánuði og voru valdar með tilgangsúrtaki. Tekin voru 12 einstaklingsviðtöl, rituð upp orð fyrir orð og að lokum þemagreind. Niðurstöður Yfirþema rannsóknarinnar var: Mér fannst ég verða aftur ég sjálf. Jafnframt voru sex meginþemu greind: Líkaminn varð aftur eins og ég þekkti hann, Það kviknaði aftur á mér, Félagsleg tengsl byggð upp, Eftirsjá að tímanum sem ég missti, Virk hlustun og samskipti og Þetta þroskar mann. Konurnar greindu frá jákvæðum líkamlegum, andlegum og félagslegum breytingum eftir að þær byrjuðu á hormónauppbótarmeðferð. Til dæmis hurfu verkir í liðum og þær hvíldust betur á nóttunni sem var ein af ástæðum þess að þær byrjuðu á hormónameðferð. Í rannsókninni kom fram að konurnar hefðu viljað fá greiningu fyrr þar sem þær áttu nokkrar læknisheimsóknir að baki og upplifðu eftirsjá að tímanum þegar þær voru að kljást við einkenni breytingaskeiðs. Einnig hefðu þær viljað fá meiri skilning frá fagfólki þegar þær leituðu eftir aðstoð. Ályktun Álykta má að hormónauppbótarmeðferð bæti verulega líkamlega-, andlega- og félagslega líðan kvenna á breytingaskeiði. Mikilvægt er að heilsugæslan komi til móts við konur sem eru að ganga í gegnum breytingaskeiðið og bæti stuðning og fræðslu til þeirra um breytingaskeiðið þannig að þær geti tekið upplýsta ákvörðun um ávinning og áhættuþætti hormónauppbótarmeðferðar. Lykilorð Hormónauppbótarmeðferð, breytingaskeið, reynsla, konur, fyrirbærafræði. HAGNÝTING RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA Hvaða nýjungar koma fram í niðurstöðum þessarar rannsóknar? Konur upplifa mikla byltingu á lífsgæðum við að fara á hormónauppbótarmeðferð. Það tók oft langan tíma fyrir þær að fá rétta greiningu og upplifðu þær eftirsjá að tíma þegar þeim hefði getað liðið betur. Konurnar hefðu viljað fá meiri hlustun og viðurkenningu frá heilbrigðisstarfsfólki. Hagnýting Mikilvægt er að bæta fræðslu til einstaklinga og fagfólks heilsugæslunnar um breytingaskeiðið og hormónauppbótarmeðferðir. Síðustu ár hefur orðið mikil vitundarvakning í samfélaginu og bæði hið opinbera og einkareknar heilbrigðisþjónustur boðið upp á fræðslu um breytingaskeiðið. Mikilvægt er að halda áfram þessari vinnu og bæta fræðslu til einstaklinga og fagfólks heilsugæslunnar um breytinga- skeiðið og hormónauppbótarmeðferðir. Hvaða þekkingu bæta niðurstöður þessarar rannsóknar við hjúkrunar- fræði? Niðurstöður gefa til kynna að þátttakendur endurheimtu það líf sem þær áttu áður en þær fóru á breytingaskeiðið. Þátttakendur upplifðu eftirsjá að tímanum sem þær hefðu getað verið á fullum dampi ef þær hefðu verið meðhöndlaðar fyrr með hormónauppbótarmeðferð. Einnig hafði vanlíðan fyrir hormónauppbótarmeðferð áhrif á félagsleg tengsl þátttakenda. Áhugavert væri að rannsaka reynslu kvenna af hormónauppbótarmeðferð með megindlegum aðferðum þar sem hægt væri að nota stærra úrtak og greina betur hvaða áhrif slík meðferð hefur á líðan kvenna. Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga Rannsóknin sýnir að mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga að halda áfram að efla fræðslu og ráðgjöf um breytingaskeiðið og tíðahvörf til kvenna. Í dag mega heilsugæslu- hjúkrunarfræðingar sem eru með meistarapróf og hafa farið í námið Ráðgjöf um getnaðarvarnir og lyfjaávísanir, skrifa upp á getnaðarvarnir. Mögulegt er að víkka út þetta starfssvið og bjóða hjúkrunarfræðingum einnig upp á menntun um hormónauppbótarmeðferðir hjá konum. Það er því mikilvægt að hjúkrunarfræðingar taki það hlutverk að sér að sinna aukinni þörf kvenna fyrir fræðslu og stuðning í kringum breytingaskeiðið. En með því gætu hjúkrunarfræðingar sinnt aukinni ráðgjöf á heilsugæslu til kvenna um breytingaskeiðið og mögulega skrifað upp á hormónauppbótameðferð ef þörf er á því. doi: 10.33112/th.100.2.1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.