Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 45
43 Ritrýnd grein | Peer review Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Mér fannst ég verða aftur ég sjálf - Reynsla kvenna af notkun hormóna- uppbótar meðferðar á breytingaskeiði INNGANGUR Náttúruleg tíðahvörf eru skilgreind sem varanleg stöðvun tíða eftir 12 mánaða tíðateppu án annarra meinafræðilegra eða lífeðlisfræðilegra orsaka (La Rosa o.fl., 2019). Talað er um þrjú stig breytingaskeiðs: Breytingaskeið, tíðahvörf og eftirtíðahvörf. Breytingaskeið er tímabil frá fyrstu einkennum að tíðahvörfum sem getur hafist allt að 10 árum áður en tíðahvörf eiga sér stað. Á þessu skeiði getur konan upplifað ýmis líkamleg og andleg einkenni. Tíðahvörf eru greind þegar tólf mánuðir eru liðnir frá síðustu blæðingum (Verdonk o.fl., 2022). Skeiðið eftirtíðahvörf tekur síðan við sem er skilgreint sem „allt æviskeið konunnar eftir að tíðahvörf eru að fullu komin fram“ ( CEMCOR, ed.). Meðalaldur kvenna sem fara í tíðahvörf er 51 ár. Þegar kona er í kringum 45 ára þá lækka kvenhormón í líkama hennar og þessi lækkun getur leitt til aukinnar hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Þetta getur leitt til þess að helmingur kvenna þrói með sér háþrýsting en einnig aukast líkur á hækkun á kólesteróli, aukningu á líkamsþyngd og þróunar á sykursýki tegund 2 (Verdonk o.fl., 2022). Tíðahvörf kvenna marka varanleg lok tíðablæðinga og einkenni geta jafnvel aukist. En einkennin eru t.d. hitakóf, liðverkir, skapsveiflur, svefntruflanir, minnistap, þurrkur í leggöngum, rýrnun í slímhúð legganga og þyngdaraukning (Jayasena o.fl., 2019; Samarasiri o.fl., 2017; Vaccaro o.fl., 2021). Talið er að 60-80% kvenna í Bandaríkjunum upplifi hita- og svitakóf á breytingaskeiði eða tíðahvörfum og finna 32-46% kvenna fyrir miðlungs eða alvarlegum einkennum. Miðgildið í árum hjá konum sem upplifa hita- og svitakóf er 7,4 ár (Shiozawa, 2023). Í rannsókn Yisma et al. (2017) þar sem tíðni ýmissa tíðahvarfaeinkenna voru skoðum meðal kvenna á aldrinum 30-49 ára kom fram að algengustu einkenni tíðahvarfaeinkenna voru; hitakóf (65,9%), erfiðleikar við að sofna (46,6%), þunglyndiseinkenni (46,0%) pirringur (45,1%) og kvíði (39,8%). Á eftirtíðahvörfum stuðlar lækkandi magn hormóna að aukinni hættu á vöðvarýrnun, þunglyndi, beinþynningu, aukinni hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og illkynja sjúkdómum (La Rosa o.fl., 2019). Eftir tíðahvörf kvenna aukast líkur á mjaðmagrindarbroti og þvagleka. Sumar konur upplifa einnig minnkaða kynhvöt og minni tíðni kynferðislegra hugsana á breytingaskeiðinu og eftir tíðahvörf (Jayasena o.fl., 2019). Þessi einkenni geta haft mikil áhrif á daglegt líf kvenna og geta leitt að lokum til verri lífsgæða (Samarasiri o.fl., 2017). Lífslíkur kvenna hafa aukist talsvert síðustu áratugi og í dag má búast við að 50% kvenna muni ná 90 ára aldri árið 2030 (Lambrinoudaki o.fl., 2022). Niðurstöður Moser og félaga (2020) sýndu að konur sem eru með einkenni breytingaskeiðs eru marktækt líklegri til þess að upplifa þunglyndi, kvíða og svefnleysi. Mjög fáar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi um breytingaskeiðið og tíðahvörf og engar tölulegar upplýsingar eru fáanlegar um tíðni einkenna eða hormónauppbótarmeðferðar meðal kvenna. Í rannsókn Ásthildar Björnsdóttur (2017) á reynslu kvenna á breytingaskeiði, Höfundar ÍRIS DRÖFN BJÖRNSDÓTTIR Hjúkrunarfræðingur, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja SIGFRÍÐUR INGA KARLSDÓTTIR Prófessor við Háskólann á Akureyri SÓLRÚN ÓLÍNA SIGURÐARDÓTTIR Hjúkrunarfræðingur, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.