Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 47

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 47
45 Ritrýnd grein | Peer review Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 AÐFERÐ Til að svara rannsóknarspurningunni var valin eigindleg rann- sóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði þar sem horft var á upplifun einstaklingsins af reynslu hormónauppbótarmeðferðar á breytingaskeiði. Hugmyndafræði fyrirbærafræði sem rann- sóknaraðferð felst í að skilja einstaklinginn, reynslu hans og sjá lífið eins og hann sér það. Rannsóknarferlið í Vancouver-skólanum er ákveðið ferli sem byggist á sjö meginþáttum (Sjá mynd 1) (Sigríður Halldórsdóttir, 2021). Þátttakendur Notast var við tilgangsúrtak við val á þátttakendum og er helsti kostur þessarar úrtaksaðferðar að hún er einföld í notkun en ókostur er að ekki er hægt að segja hvort úrtakið sé dæmigert fyrir hópinn og því erfitt að yfirfæra niðurstöður yfir á allt þýðið (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2021). Auglýst var eftir þátttakendum á Facebook-hóp sem kallast Breytingaskeiðið. Tuttugu og fimm þátttakendur buðu sig fram og fyrstu 12 sem höfðu samband og uppfylltu skilyrði fyrir þátttöku voru valdir í úrtakið. Skilyrði fyrir þátttöku var að konur væru komnar á breytingaskeiðið og hefðu verið á hormónum í 3-24 mánuði. Þátttakendur urðu að vera á aldrinum 45-55 ára. Gagnasöfnun og greining gagna Gagnasöfnun og gagnagreining fór fram samhliða en það var gert samkvæmt Vancouver-skóla aðferðinni. Rannsóknargögnum var safnað með því að nota hálfstaðlaðan viðtalsramma og í viðtölunum var reynt að ná ákveðinni dýpt í samræður um viðfangsefnið. Viðtalsramminn samanstóð af átta opnum spurningum. Upphafsspurning viðtalsins var; fannst þú fyrir einhverjum líkamlegum einkennum sem þú upplifðir í tengslum við breytingaskeiðið áður en þú byrjaðir að taka hormón og getur þú sagt mér frá þeim einkennum? Síðar var spurt um hvort konurnar hefðu fundið fyrir, annars vegar breytingu á líkamlegri líðan og hins vegar á andlegri líðan eftir að þær hófu inntöku hormóna. Einn höfundur tók öll viðtölin, en allir höfundar komu að gagnagreiningu. Virkri hlustun var beitt í viðtölum sem þýðir að reynt var að skilja bæði tilfinningar og það sem viðmælandinn segir. Borin var virðing fyrir hverjum og einum þátttakanda og reynt að mynda gott traust milli viðmælenda og rannsakanda. Rannsakandi sýndi heiðarleika og einlægni sem er mikilvægur þáttur í viðtölum eigindlegra rannsókna (Helga Jónsdóttir, 2021). Gagnagreining var gerð samkvæmt tólf þrepum Vancouver-skólans (Tafla 1). Í byrjun var tekið eitt einstaklingsviðtal við hvern þátttakanda, samtals 12 viðtöl. Viðtölin voru tekin á tveggja mánaða tímabili. Hvert viðtal tók 34–68 mínútur. Viðtölin voru skrifuð upp orðrétt og þess gætt að ekki væri hægt að persónugreina þau og var nöfnum þátttakenda breytt ásamt ýmsum staðháttum. Þátttakendur fengu að ráða hvar viðtöl færu fram. Þrír þátttakendur völdu stað sem rannsakandinn bauð upp á, þrjú viðtöl fóru fram á heimilum þátttakenda og sjö viðtöl voru tekin með myndsamtali. Viðtöl með aðstoð tölvutækninnar hafa notið vaxandi vinsælda undanfarið. Kostir tölvustuddra viðtala er að rannsakandinn og þátttakandinn geta verið í gagnvirkum samskiptum óháð staðsetningu, þarf af leiðandi getur þátttakandinn búið hvar sem er á landinu eða í öðru landi. Rannsakandinn getur einnig greint svipbrigði þátttakandans í gegnum myndsamtalið (Helga Jónsdóttir, 2021). Til viðbótar var tekið eitt viðtal símleiðis við ellefu þátttakendur þar sem meginþemu og undirþemu viðtals voru útskýrð og heildargreiningarlíkan borið undir þátttakendur. Réttmæti og áreiðanleiki Til að auka trúverðugleika rannsóknar var öllum þrepum Vancouver-skólans fylgt eftir. Rannsakandi hélt rannsóknar- dagbók og ígrundaði hvert viðtal. Rannsóknargögn voru aftur lesin eftir mótun heildargreiningarlíkans og var haft samband við ellefu þátttakendur til staðfestingar á réttri túlkun rannsakanda. Í niðurstöðum var vitnað beint í þátttakendur til að auka innra réttmæti rannsóknar. Rannsóknarsiðfræði Vísindasiðanefnd staðfesti símleiðis að ekki þyrfti leyfi hennar fyrir rannsókninni. Þátttakendur tilheyra ekki viðkvæmum hópi og taldi rannsakandi ekki líkur á að þessi rannsókn myndi valda þátttakendum vanlíðan og engin áhætta var fólgin í þátttöku. Rannsakandi tryggði siðferðilega hagsmuni þátttakenda með því að afhenda þátttakendum kynningarbréf með kynningu á rannsóknarefni, tilgangi rannsóknar og hvernig niðurstöður yrðu birtar. Þátttakendur skrifuðu einnig undir upplýst samþykki. NIÐURSTÖÐUR Þátttakendur voru samtals tólf konur á aldrinum 45-53 ára sem höfðu verið á hormónauppbótarmeðferð í 3-24 mánuði. Yfirþema rannsóknarinnar Mér fannst ég verða aftur ég sjálf lýsir reynslu þátttakenda af þeim breytingum sem urðu á líðan þeirra eftir að þær byrjuðu að taka inn hormóna. Þátttakendur í rannsókn áttu það sameiginlegt að upplifa, að eftir að þær byrjuðu á hormónauppbótarmeðferð endurheimtu þær það líf sem þær áttu áður. Bára sagði til dæmis: „Ég bara finn það að ég er búin að endurheimta gömlu mig … Ég er orðin ég sjálf aftur. Manneskja sem þú veist að gat gert alveg fullt af hlutum.“ Alls voru greind sex meginþemu: Líkaminn varð aftur eins og ég þekkti hann; Það kviknaði aftur á mér; Félagslegu tengslin byggð upp; Eftirsjá að tímanum sem ég missti; Virk hlustun og samskipti og Þetta þroskar mann. Að lokum voru greind nokkur undirþemu undir hverju meginþema, mynd 2. Að vera kyrr 1. Að ígrunda 2. Að koma auga á 3. Að velja4.Að túlka5. Að ræða saman 6. Að sannreyna 7. Mynd 1. Vitrænn vinnuferill Vancouver-skólans í fyrirbærafræði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.