Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 56
54 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Samkvæmt höfundum PREMIS má aðlaga listann að öðrum heilbrigðisstéttum, nota efni hans sem útgangspunkta í fræðslu um ONS eða nota til að kanna þekkingu sama hóps fyrir og eftir fræðslu. Áreiðanleiki (Cronbach‘s alpha (a), jafnframt kallað innra samræmi) upprunalega PREMIS er a=0,65-0,96 fyrir lykilkvarða og undirkvarða listans (Short o.fl., 2006). PREMIS hefur verið þýddur og staðfærður á grísku og spænsku og þar hélt mælitækið áreiðanleika sínum gegnum þýðingarferlið (Cases o.fl., 2015; Papadakaki o.fl., 2013; Papadakaki o.fl., 2012; Rodríguez-Blanesa o.fl., 2017). Eins hefur PREMIS verið aðlagaður og notaður að hluta eða öllu leyti til að kanna þekkingu ýmissa heilbrigðisstarfsstétta og nemenda á ONS eða þá verið notaður í fræðslu (Baird o.fl., 2015; Connor o.fl., 2011; McAndrew o.fl., 2014; Sawyer o.fl., 2017). Staðfærsla spurningalista Mikilvægt er að vanda til við þýðingu og aðlögun spurningalista að nýrri menningu svo spurningalistinn haldi áreiðanleika sínum og hugsmíðaréttmæti í gegnum þýðingarferlið (American Educational Research Association (AERA) o.fl., 2014; Hambleton, 2005; International Test Commission (ITC), 2017; Wild o.fl., 2005). Ástæðan er sú að þegar spurningalistar eru þróaðir, þá eru þeir hannaðir fyrir ákveðinn hóp fólks, fyrir ákveðið tungumál og ákveðna menningu. Þegar heimfæra á spurningalista yfir á annað menningarsvæði er ekki sjálfgefið að hugsmíðaréttmæti haldi sér. Helstu samtök innan mælifræðigreina hafa gefið út staðlahandbók um gerð og notkun matstækja á spurningalistaformi (AERA o.fl., 2014). Samkvæmt handbókinni og viðmiðum ITC (2017) verður að gæta þess að listinn endurspegli menningu þess lands sem nota á hann í og að hann passi fyrir þann úrtakshóp, að hafa hæfa þýðendur sem hafa gott vald á upprunalegu tungumáli og því máli sem á að staðfæra listann yfir á. Þó er tungumálaþekking ein og sér ekki nægjanleg, því þýðendur og ritrýnar þurfa einnig að hafa góða þekkingu á þeirri menningu sem listinn er ætlaður fyrir sem og tungutakinu sem svarendahópur listans notar. Í þessu tilfelli er átt við tungutak heilbrigðisstarfsfólks. Mælt er með því í flestum tilfellum að nota bæði þýðingu og bakþýðingu. Bakþýðing felur í sér að listinn er þýddur aftur yfir á upprunalegt tungumál til að ganga úr skugga um að innihald spurninga haldi sér í þýðingunni. Sömuleiðis er mælt með að ritrýna niðurstöður bakþýðingar og leiðbeininga með mælitækinu, með hliðsjón af skýrleika texta og málvenjum viðkomandi hóps (AERA o.fl., 2014). Megindleg prófun á borð við þá sem hér er lýst er nauðsynlegur þáttur góðrar staðfæringar á spurningalista ætluðum öðru menningarsvæði (Einar Guðmundsson, 2006; Guðmundur T. Heimisson, 2021b). Með prófun er ekki bara verið að kanna hvort þátttakendur geti svarað spurningum mælitækis, heldur er líka verið að kanna uppbyggingu, orðanotkun, skýrleika og annað sem tengist spurningalistanum (Beatty og Willis, 2007; Collins, 2003, Einar Guðmundsson, 2005-2006¸ Guðmundur T. Heimisson, 2021a). AÐFERÐ Haft var samband við dr. Short, aðalhöfund PREMIS, og leyfi fengið fyrir notkun. Ásamt listanum komu leiðbeiningar um hvernig á að vinna úr listanum og kóða til að nota við úrvinnslu. Auk þess bauðst dr. Short til þess að yfirfara ensku bakþýðinguna á PREMIS til að tryggja að upprunalegt innihald spurninganna myndi halda sér í gegnum þýðingarferlið. Þýðingarferli PREMIS var sett upp í tíu skref til að uppfylla áðurnefndar kröfur um þýðingu spurningalista (sjá töflu 1). Tveir hjúkrunarfræðingar með meistaragráðu þýddu PREMIS. Báðir hafa íslensku að móðurmáli en hafa gott vald á ensku og reynslu innan heilbrigðiskerfisins á Íslandi. Annar þýðandinn hefur einnig reynslu af því að vinna í bandaríska heilbrigðiskerfinu. Þýðendurnir þýddu PREMIS hvor í sínu lagi. Fyrsti höfundur fór yfir þýðingar, skoðaði vafaatriði með þýðendum, hvorum í sínu lagi, og setti saman fyrstu útgáfu af íslenska PREMIS sem hér eftir verður kölluð PREMIS-IS. Einn bakþýðandi var fenginn til að þýða PREMIS-IS aftur yfir á ensku. Bakþýðandinn var ekki kunnugur PREMIS-listanum fyrir og hafði ekki komið að þýðingar- ferlinu fram að þessu. Það er mikilvægt að bakþýðandi sé ekki kunnugur upprunalega listanum til að skekkja ekki bakþýðinguna (ITC, 2017). Bakþýðandi er íslenskur læknir með M.D.-gráðu frá enskumælandi háskóla. Bakþýðingin var borin saman við frumþýðinguna og síðan við upprunalegu ensku útgáfuna. Eftir lagfæringar var bakþýðingin send dr. Short til yfirferðar. Eftir nokkrar lagfæringar var PREMIS-IS tilbúinn fyrir hugarferlaviðtöl. Þátttakendur Úrtakið fyrir forprófun PREMIS-IS var heilbrigðisstarfsfólk sem nálgast var með hentugleika- og snjóboltaúrtaki gegnum samfélagsmiðla og tölvupóst. Hentugleikaúrtak varð fyrir valinu þar sem markmið rannsóknarinnar var ekki að yfirfæra niðurstöður yfir á þýðið. Hentugleikaúrtök eru notuð til að kanna tengsl breyta innbyrðis (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2021) þ.e. að kanna hvort innihald PREMIS héldi sér í gegnum þýðingarferlið. Þar sem erfiðlega gekk að fá þátttakendur í upphafi var snjóboltaúrtaksaðferð bætt við. En þá eru þátttakendur beðnir að benda á aðra hugsanlega þátttakendur (Hjördís Sigursteinsdóttir, 2021). Í forprófun svöruðu samtals 177 heilbrigðisstarfsmenn listanum að hluta til eða í heild. Svarendahópurinn var mjög breiður og kom víða úr heilbrigðiskerfinu. Sjá bakgrunn svarenda í töflu 2. Fimm heilbrigðisstarfsmenn sem valdir voru með hentugleikaúrtaki voru fengnir í hugarferlaviðtöl. Framkvæmd Spurningalistinn var settur upp á Google Forms og forprófunin fór eingöngu fram í gegnum netið. Svartími var áætlaður um það bil 25 mínútur. Hugarferlaviðtölin fóru fram fyrir forprófun með fyrsta höfundi og einum þátttakanda í einu. Fyrst las þátttakandi listann upphátt um leið og hann svaraði listanum skriflega. Á meðan skrifaði höfundur Þýðing og prófun á PREMIS: Spurningalisti til að kanna þekkingu heilbrigðisstarfsmanna á ofbeldi í nánum samböndum Tafla 1. Þýðingarferlið 1. Nákvæm undirbúningsvinna og almenn grunnvinna fyrir þýðingu. 2. Þýðing frá ensku yfir á íslensku. Tveir þýðendur með reynslu úr heil- brigðiskerfinu og málnotkun heilbrigðisstarfsmanna. 3. Þýðingar bornar saman og sett saman fyrsta íslenska útgáfan, PREMIS-IS. 4. Bakþýðing PREMIS-IS yfir á ensku. Einn bakþýðandi. 5. Bakþýðing borin saman við upprunalegu þýðingu. Kanna innihald spurninga gegnum bakþýðingarferlið. 6. Samræming bakþýðingar. Bæði við upprunalega PREMIS og Dr. Short fór einnig yfir bakþýðingu. Lagfæring á PREMIS-IS. 7. Hugarferlaviðtöl við fimm heilbrigðisstarfsmenn. Rýnt í orðalag og skilning þátttakenda á orðanotkun í PREMIS-IS. Eins hvort listi passi inn í íslenskt heilbrigðiskerfi hvað varðar orðanotkun og málnotkun. 8. Lagfæringar á PREMIS-IS út frá niðurstöðum úr hugarferlaviðtölum. 9. Prófarkalestur á PREMIS-IS. 10. Skýrsla um ferlið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.