Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 69

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 69
67 Ritrýnd grein | Peer review Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 Þótt ég þekki kannski verkefnin sem ég á að fara í, eins og vitjanir og svona og hvað þarf að gera svona flest, eins og þvagleggsskipti og sáraskipti, þú veist allt þetta „basic“, en svona allt þetta umfang í kringum starfið, mér fannst ég svolítið lengi að átta mig á því hvað ég átti að vera að gera. Starfslýsing teymisstjóra var til að mynda ekki nægjanleg skýr og það tók nokkra af teymisstjórunum töluverðan tíma að gera sér fyllilega grein fyrir hlutverkum sínum þegar þeir hófu störf. Diljá og Bogga nefndu að þær fyndu fyrir reynsluleysi hjá þeim teymisstjórum sem höfðu ekki starfað lengi og að það bæri á úrræðaleysi hjá þeim, sem stuðlaði að auknu álagi á samstarfsfólk. Flestir teymisstjórar nefndu að þeir reyndu að vera duglegir að spyrja samstarfsfólk og systrateymisstjóra ef þá vantaði upplýsingar og lýstu góðum stuðningi frá nánasta samstarfsfólki. Að fá stuðning í starfi Teymisstjórar sóttu mikið í stuðning frá samstarfsfólki ef vantaði ráð tengd ákveðnum sviðum hjúkrunar til skjólstæðinga. Ef upp komu ágreiningsmál tengd skjólstæðingum og/eða starfsfólki eða áföllum sem starfsfólk varð fyrir tengt skjólstæðingum eða inni á heimilum reyndist óljósara hvert hægt væri að leita eftir stuðningi eða hvers konar verklagi ætti að fylgja. Í þessu samhengi kom skortur á stuðningi frá stjórnendateymi til tals í mörgum viðtölum. Erna hafði sjálf leitað eftir að fá handleiðslu en fannst vanta að slíkt væri í boði á vinnustaðnum, sérstaklega í tengslum við svo erfið mál, hún sagði: Það vantar svolítið held ég, eins og ég lenti í, að það var einn í teyminu mínu sem framdi sjálfsmorð og það kannski hefði eitthvert ferli átt að fara í gang, þegar þú lendir í því, Það ætti eiginlega eitthvert ferli að fara í gang. Þegar leið á viðtölin kom í ljós að ýmiss formlegur stuðningur var til staðar fyrir teymisstjórana en þeir þurftu sjálfir að bera sig eftir honum. Það var til dæmis geðhjúkrunarfræðingur á staðnum sem þeir gátu leitað til. Þótt hægt væri að biðja um stuðning þá upplifðu sumir neikvætt viðmót frá aðilum innan stjórnendateymis þegar leitað var til þeirra. Þá var mjög persónubundið hvort og hvenær teymisstjórarnir leituðu eftir formlegum stuðningi. Þótt mál byrjuðu ekki erfiðlega gátu þau verið fljót að vinda upp á sig og reyndu þá á teymisstjórana persónulega. Misjafnt var hversu fljótt teymisstjórarnir áttuðu sig á að þörf væri á aðkomu fleiri aðila til að leysa úr málum. Bæði Bogga og Diljá upplifðu að stundum hefði verið hægt að grípa fyrr inn í og veita stuðning áður en málin yrðu of umfangsmikil. Bogga sagði: „Og það hefði verið hægt að grípa inn í þó nokkuð marga hérna sem hafa svo dottið í veikindi og annað, miklu fyrr“. UMRÆÐUR Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að teymisstjórunum gekk misjafnlega að hafa yfirsýn yfir allt sem tilheyrði starfinu og að forgangsraða verkefnum. Við það skapaðist álag sem meðal annars leiddi til þess að mörgum reyndist erfitt að skilja á milli vinnu og einkalífs. Sumir þeirra upplifðu kvíða þegar umfang starfsins varð of mikið og breyta þurfti dagskipulagi með stuttum fyrirvara. Í heimahúsum reyndist oft erfitt að sinna skjólstæðingum við mismunandi krefjandi starfsaðstæður. Í ljós kom að aðlögun inn í starfið var lítil sem engin og meirihluti teymisstjóranna var með stutta starfsreynslu sem teymisstjórar. Þeir gátu þó fengið stuðning en þurftu sjálfir að bera sig eftir honum. Athygli er vakin á því að sjö af tíu teymisstjórunum höfðu minna en tveggja ára starfsreynslu í starfi teymisstjóra og því mætti að einhverju leyti rekja skort á yfirsýn yfir verkefnin og leikni við forgangsröðun á reynsluleysi þeirra, því eins og Norlyk og félagar (2023) segja þá er skipulagsvinnan sem teymisstjórastarfinu fylgir flókin og krefst mikillar skipulagshæfni. Jafnframt bendir Kristín Björnsdóttir (2018) á að teymisstjórastarfið krefjist flókinnar þekkingar og færni á sviði hjúkrunar og kannski ekki óeðlilegt að það taki tíma að komast inn í starfið. Hins vegar má einnig ætla að skortur á yfirsýn geti stafað af auknum umsvifum í heimahjúkrun, fleiri skjólstæðingum, stöðugum breytingum á dagskipulagi og auknum samskiptum við aðrar heilbrigðisstofnanir, félagþjónustu og ættingja. Einnig nefnir Kristinsdottir o.fl. (2021) að hjúkrunarþyngd hafi aukist og því fylgi gjarnan fleiri áhyggjufullir aðstandendur. Eins og fram kom í máli teymisstjóranna leiddi undirmönnun til þess að þeir höfðu minni tíma til að sinna skjólstæðingum og skráningu. Teymisstjórarnir upplifðu viðvarandi starfsálag sem þeir réðu illa við og fylgdi þeim heim að vinnudegi loknum, sérstaklega þeir sem höfðu styttri starfsaldur. Þeir sem tóku vinnuna með sér heim upplifðu kvíða þegar umfangið reyndist of mikið. Ef umfangið verður of mikið hefur það áhrif á færni og getur haft neikvæð áhrif á heilsu (WHO, 2015). Niðurstöðurnar koma heim og saman við niðurstöður Solbakken o.fl. (2019) sem telja það yfirþyrmandi fyrir teymisstjóra að bera ábyrgð á gæðum þjónustunnar, starfsfólki og skipulagi. Leiða má líkum að því að skortur á yfirsýn, undirmönnun og reynsluleysi komi niður á gæðum þjónustu við skjólstæðinga í heimahjúkrun og því sé nauðsynlegt að finna leiðir til að létta álagi af teymisstjórunum og veita þeim betri stuðning í starfi, sérstaklega þeim reynsluminni. Eitt af því sem teymisstjórunum var tíðrætt um var að erfiðlega gekk að halda dagskipulagi, einkum vegna veikinda starfsfólks og undirmönnunar. Stöðug endurskipulagning vinnuferla og aukin vitjanabyrði teymisstjóra vegna veikindanna skapaði aukið álag. Johannessen o.fl. (2020) benda á að slíkt valdi bæði stjórnendum og starfsfólki auknu álagi en ófullnægjandi mönnun leiðir óhjákvæmilega til þess að dagskipulagið fari úr skorðum (Nakrem og Kvanneid, 2022). Það reyndist teymisstjórunum krefjandi að starfa á heimilum fólks. Aðbúnaður var mismunandi og það reyndi á að þurfa einir að taka ákvörðun um meðferð skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar í rannsókn Arab o.fl. (2022) lýstu sambærilegum áskorunum innan heimahjúkrunar en það sem er ólíkt með niðurstöðum þeirra og þessarar rannsóknar er að lítil aðlögun inn í starfið sem og reynsluleysi teymisstjóranna sem stjórnenda hafði einnig áhrif. Til að greina betur hvaða þættir það eru sem valda álagi eða ánægju í starfi er mikilvægt að taka tillit til einstaklingsbundinna þátta (WHO, 2015), líkt og menntun og reynslu, og samspili þeirra við starfsumhverfið hverju sinni (Escorpizo o.fl. 2011). Hartviksen o.fl. (2020) benda á að starfsfólk sé gjarnan ráðið í stöður millistjórnenda án þess að hafa menntun eða reynslu af stjórnun. Hæft og reynslumikið starfsfólk sem fær góða innleiðingu í starfið er hins vegar ein af forsendum þess að hægt sé að tryggja gæði þjónustu til skjólstæðinga (Nakrem og Kvanneid, 2022). Þótt ekki sé vitað um stjórnunarreynslu eða viðbótarmenntun teymisstjóranna í þessari rannsókn má ljóst vera að sú aðlögun sem þeir fengu við upphaf starfs var lítil sem engin og að reynsluleysi og úrræðaleysi þeirra endurspeglast í álagi og óöryggi í starfi. Að auki voru starfslýsingar óskýrar og hlutverk
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.