Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 95

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 95
Fræðslugrein 93Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 100. árg. 2024 ekki endursagt efnið eftir 2-3 skipti þarf að íhuga aðrar leiðir, svo sem að bjóða honum að hafa aðstandanda með, gera hlé, ákveða annan tíma seinna eða biðja annan í meðferðarteymi sjúklings að taka yfir fræðsluna. Við lok fræðslunnar, þegar sjúklingur hefur náð tökum á efninu eða verkinu, er spurt hvaða (ekki hvort) spurningar hann hafi að lokum. Mikilvægt er að nota opnar spurningar og forðast lokaðar spurningar sem gefa bara möguleika á já eða nei svari. Þannig gefst sjúklingi tækifæri til að fá frekari útskýringu á efninu, verkinu eða öðru því sem hvílir á honum. Og ferlið hefst aftur, með sama viðfangsefni eða nýju. Staldraðu við Endursagnaraðferðin krefst þjálfunar til að ná tökum á henni. Æfðu þig með því að nota aðferðina með fjölskyldumeðlimi eða vinum, viðfangsefnið getur verið hvað sem er. Prófaðu að vera bæði í hlutverki kennarans og nemandans. - Tókst þér að forðast að láta nemandann eða sjúklinginn upplifa að hann væri í prófi? - Hvernig leið þér í hlutverki nemandans/sjúklingsins? - Hvaða orðalag fannst þér best að nota? Af hverju? Af hverju ætti að nota endursagnaraðferðina? Endursagnaraðferðin er gagnreynd aðferð í sjúklingafræðslu þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi hennar, meðal annars þannig að afdrif sjúklinga eru betri þegar aðferðin er notuð. Rannsóknir og kerfisbundnar samantektir hafa verið gerðar á mörgum mismunandi sjúklingahópum til dæmis krabbameinssjúklingum (Choi og Choi, 2021), sjúklingum í líknarþjónustu (Ryan-Madonna et al., 2019), skurðsjúklingum (Seely o.fl., 2022), konum í mæðravernd (Cheng o.fl., 2023), sjúklingum á bráðamóttöku (Hesselink o.fl., 2022), hjartabiluðum (Howie-Esquivel og Bidwell, 2023) og sjúklingahópum með langvinna sjúkdóma (Dinh o.fl., 2016). Aðferðin hefur einnig verið notuð í fjarheilbrigðisþjónustu (Morony o.fl., 2018). Áhrif á sjúkrahúsþjónustu hafa verið jákvæð, til dæmis eru vísbendingar um fækkun á endurinnlögnum (Dinh o.fl., 2016; Howie-Esquivel og Bidwell, 2023) en mikilvægasti árangurinn snýr að sjúkl- ingunum sjálfum. Sýnt hefur verið fram á að aðferðin bætir skilning og hjálpar fólki að muna atriði til dæmis eftir útskriftarfræðslu um sjálfsumönnun, þar með talið lyfjatöku (Caplin og Saunders, 2015; Dinh o.fl., 2016; Marks o.fl., 2022). Notkun aðferðinnar eykur traust og ánægju sjúklinga með því að gefa þeim tækifæri til að spyrja spurninga og ræða áhyggjur sínar. Þannig má koma í veg fyrir eða leiðrétta misskilning (Caplin og Saunders, 2015; Kornburger o.fl., 2013; Miller, 2016). Enn fremur virðist notkun aðferðarinnar auka skilning sjúklinga á ástandi sínu, meðferðarheldni, trú á eigin getu, færni við sjálfsumönnun og heilsulæsi (Choi og Choi, 2021; Dinh o.fl., 2016) og auka sjálfstraust umönnunaraðila (Ryan-Madonna o.fl., 2019) Hverjum og hvenær gagnast endursagnaraðferðin? Þótt ákveðnir hópar fólks séu líklegri en aðrir til að eiga erfitt með að meðtaka upplýsingar er ráðlagt að nota endursagnaraðferðina með öllum sem verið er að fræða, sjúklingum jafnt sem að- standendum (Agency for Healthcare Research and Quality, 2024) enda er ekki hægt að gefa sér fyrir fram að sumir skilji og meðtaki fræðslu betur en aðrir. Dæmi um aðstæður þar sem viðeigandi er að nota endursagnaraðferðina er í fræðslu um sjálfsumönnun (lífsstílsbreytingar, lyfjameðferð, vöktun einkenna, viðbrögð við breytingum á líðan eða einkennum), bæði með sjúklingum og aðstandendum en frekari dæmi má sjá hér að neðan: Hvenær á að nota endursagnaraðferðina? Alltaf þegar mikilvægar upplýsingar eru veittar, til dæmis um: - Sjúkdómsgreiningu, meðferðarmöguleika eða meðferð. - Meðferðaráætlun. - Lyf, lyfjanotkun og helstu aukaverkanir. - Vöktun einkenna. - Breytingar á lífsstíl. - Notkun tækja, aðferða eða tækni í meðferð. - Framhald meðferðar og næstu skref. - Hvenær, hvert og við hvern á að hafa samband næst eða þegar aðstoðar er þörf Hvernig verður endursagnaraðferðin hluti af vinnustaðamenningu? Það er brýnt innan hjúkrunar að bæta starfshætti er tengjast skipulagningu og framkvæmd sjúklingafræðslu í heild sinni. Eins og við allar breytingar í starfi hjúkrunarfræðinga þurfa stjórnendur að beita aðferðum við innleiðingu nýrra starfshátta sem eru líklegar til árangurs. Í þessari grein er fjallað sérstaklega um endursagnaraðferðina en hvernig hægt er að innleiða notkun hennar í klínísku starfi er utan við efnistök greinarinnar. Þó má nefna að þótt endursagnaraðferðin hljóti að teljast frekar einföld og auðveld í notkun og krefjist ekki annars en færni af hálfu heilbrigðisstarfsmanna hafa komið fram gagnrýnisraddir og efasemdir um fýsileika eða gagnsemi þess að nota aðferðina. Helsta gagnrýnin felst í því að ekki sé tími til þess að nota aðferðina en ekki verið sýnt fram á að sú staðhæfing eigi við rök að styðjast. Reyndir notendur endursagnaraðferðarinnar segja að um ein mínúta bætist við viðtalstíma (Bodenheimer, 2018) en betri skilningur og aukin fylgni sjúklinga við leiðbeiningar spari tíma þegar til lengri tíma er litið. Aðrir nefna að sjúklingi geti fundist niðurlægjandi að vera beðinn um að endurtaka efnið eða verkið sem farið var yfir, aðferðin geti valdið sjúklingum kvíða og tilfinningu um stimplun (stigma). Ein rannsókn hefur þó sýnt að sjúklingar velja endursagnaraðferðina fram yfir hefðbundna fræðslu þar sem aðferðinni er ekki beitt (Kemp o.fl., 2008). Síðast en ekki síst hefur því verið haldið fram að erfitt sé fyrir heilbrigðisstarfsfólk að breyta vinnulagi sínu (Bodenheimer, 2018; Tafla 2. Dæmi um orðalag sem er ekki dæmandi þegar heilbrigðisstarfsmaður notar endursagnaraðferðina 1. Ég vil vera viss um að ég hafi útskýrt nógu vel hvers vegna þú þarft að taka þetta lyf, getur þú útskýrt það fyrir mér með þínum eigin orðum? 2. Til þess að ég geti verið viss um að ég hafi útskýrt nægilega vel fyrir þér … langar mig að biðja þig um að segja mér hvers vegna það gagnast þér að taka þetta lyf. 3. Nú höfum við farið yfir … Hvað ætlar þú að segja fjölskyldu þinni þegar þú kemur heim varðandi breytingar sem hafa verið gerðar á lyfjunum þínum? 4. Ég vil vera viss um að ég hafi útskýrt þetta nógu vel, getur þú sagt mér og sýnt mér hvernig þú ætlar að skipta á sárinu þegar þú kemur heim? 5. Nú hef ég farið yfir þrjú einkenni sem þú þarft að fylgjast með heima og hvað þú átt að gera ef þau verða mikil. Má ég biðja þig um að fara yfir þessi einkenni og segja mér hvenær og við hvern þú hefur samband ef þörf er á?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.