Goðasteinn - 01.09.2004, Page 128
Goðasteinn 2004
á morgnana að blekið var frosið í blekbyttunum. Upphitun var þá með olíuofni
sem stundum sló niður í svo allt fylltist af reyk, eða hann varð olíulaus svo hlaupa
varð til Ola í Austurbænum til að bjarga málunum. Sama var hvernig á stóð, hvort
hann varð að hlaupa úr mjöltum eða öðrum verkum, alltaf var hann tilbúinn að
sinna þörfum skólans. Þá minntist hann Guðna í Vesturbænum og umhyggju hans
fyrir nemendum og velferð skólans, sem m.a. lýsti sér í því að fylgjast grannt með
veðri og vara við ef óveður var í aðsigi og sagði að seint yrði fólkinu á Krossi á
fyrri hluta síðustu aldar fullþakkað. Arni sagði að þessir fjórir vetur í skólanum á
Krossi væri sú eina formlega menntun sem hann hefði notið um dagana og hefði
dugað sér vel. Þá lýsti hann upphafi skólaksturs, þegar Erlendur faðir hans fékk
afturhluta af rútu sem hann breytti í boddy og setti á Chevrolettvörubíl sinn til
aksturs skólabarna. Síðan fékk hann fljótlega „Rússajeppa“ sem tók við. Þá
minntist Arni starfa sinna við skólann, þar sem hann annaðist skólaakstur meira
og minna um 25 ára skeið.
Milli atriða sungu nemendur eins og áður í kirkjunni undir stjórn Guðrúnar A.
Björnsdóttur kennara.
Að lokum tók til máls Helga Þorsteinsdóttir skólastjóri og sagði nú komið að
kveðjustund. Aður en einkunnir yrðu afhentar vildi hún biðja þá starfsmenn
skólans sem hefðu unnið honum af mikilli samviskusemi í allt að 25 ár að koma á
svið og taka við viðurkenningu sem smá þakklætisvotti fyrir farsælt starf. Þetta
voru þau Laufey Hauksdóttir matráðskona á Skíðbakka og skólabílstjórarnir
Helgi Helgason og Rós Oskarsdóttir í Vatnshól. Því næst voru allir þeir sem höfðu
einhvern tíma unnið við skólann, kallaðir upp og þeim afhent blóm í þakkarskyni.
Þá voru nemendum afhentar einkunnir.
Síðan sagði Helga Þorsteinsdóttir skólastjóri: „Þá er komið að lokaþætti þessa
dags, síðasta skóladags Grunnskóla Austur Landeyja . I dag er skólastarf í þessum
húsakynnum á enda runnið, og segi ég skólastarfinu lokið".
Hér á eftir fer ræða sem undirritaður flutti í Gunnarshólma þennan dag:
Skólaminningar
Kæru nemendur, gömlu sveitungar og aðrir gestir. Eg vil í upphafi þakka fyrir
að vera boðið hingað á þessi skólalok hér í Gunnarshólma, sem jafnframt eru
ákveðin þáttaskil í skólastarfi í okkar kæru sveit. Mér hefði að vísu verið meir að
skapi að skólinn væri búinn að sprengja utan af sér rammann og væri að færa út
kvíarnar, en eigi má sköpum renna og breyttir tímar og breyttar áherslur eru hluti
af lífinu sjálfu. Vonandi verða þessar breytingar öllum til góðs.
-126-