Goðasteinn - 01.09.2004, Blaðsíða 187
Goðasteinn 2004
Látnir 2003
ingin kom með dráttarvélunum, var hún einnig þátttakandi þar, þannig að hún var
við hlið bónda síns eins og hann, bóndi og bústólpi gagnvart sínu búi, - jörðinni,
þar sem hún fæddist og öll gleði hennar var tengd. Húsmóðir á Kálfsstöðum,
þaðan sem fjallasýnin var hvað fegurst og hljómkviða vorsins með sínum lífs-
boðskap hljómaði. Trú hennar, fullvissa og von tengdust þannig páskunum og
vorinu, sem kirkjan hennar lifði fyrir og sunnudagurinn með inessu boðaði.
Hingað til kirkjunnar í Akurey sótti hún með fjölskyldu sinni styrk og
endurnæringu og eins var útvarpsmessan henni helg, þar sem hún naut þeirrar
stundar að heyra bænina, sönginn og orðið. Hún signdi börnin sín til svefns á
kvöldin með fyrirbæn og sumarbörnin fundu hlýju hennar og kærleika og nutu
þess að eiga sumardvöl hjá þeim.
Tíminn leið. Sonur þeirra, Guðmundur Þorsteinn flutti til útlanda 1989 og
eignaðist sitt heimili í Sviss með Anek Walter og eiga þau eina dóttur. Kristrún
Hrönn flutti að Tungu í Fljótshlíð 1991 þar sem hún eignaðist sitt heimili með
manni sínum Hrafni Óskarssyni og eiga þau fjögur börn. Hin börnin þeirra,
dæturnar þrjár, bjuggu með foreldrum sínum heima og stóðu að búskapnum með
þeim.
Arið 1990 greindist Lilja með parkinsonsveiki, sem hún tókst á við heima hjá
sér, með stuðningi eiginmanns og barna. Án nokkurs fyrirvara var Gísli kallaður
frá bústörfunum í miðjum önnum heima á Kálfsstöðum 30. ágúst 2002.
Lilja tókst á við þann missi með þeim orðum, að hún hefði verið viss um að
vera á undan. Það varð ekki langt á milli þeirra. Hún lést á sjúkrahúsi Suðurlands
á Selfossi 8. apríl, þar sem hún hafði dvalið veik af völdum krabbameins frá 1.
febrúar. Útför hennar fór fram frá Akureyjarkirkju 19.4. 2003.
Si: Halldór Gunnarsson
Ragnar Marteinsson, Meiri-Tungu
Ragnar Marteinsson fæddist í Hallstúni í Holtum,
þann 19. des. 1913 og var því á nítugasta aldursári er
hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Marteinn Ein-
arsson ættaður úr Holtum og Guðríður Einarsdóttir
sem var Skaftfellingur að uppruna. Hann var yngstur
í hópi fjögurra systkina sem öll eru nú látin. Þau
voru: Sigurður f. 1899, Sigríður f. 1901 og Guðjón f.
1903. Foreldrar hans fluttust frá Hallstúni að Litlu-
Tungu þegar hann var tíu ára gamall, þar sem þau
bjuggu búi sínu þar til faðir hans andaðist 1930. Þá hætti móðir hans búskap og
fluttist til Reykjavíkur ásamt Sigríði dóttur sinni, en þar höfðu bræður hans sest
-185-
L