Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2004, Side 40
38
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2004
Um formannavísur Gísla Stefánssonar
Formannavísur þessar eru kveðnar
af Gísla Stefánssyni árið 1908 en
hann hafði þá fáum árum fyrr
byggt myndarlegt íbúðarhús inn-
an við Drympurnar á Hellissandi.
Húsið nefndi hann Berurjóður.
Kefsararnir hafa notað kjallara-
veggi þessa húss sem enn eru að
nokkru uppistandandi sem fjárrétt
fram á síðustu ár. Kona Gísla var
Petrea Gróa Pétursdóttir. Gísli var
oddviti hreppsnefndar Neshrepps
utan Ennis í nokkur ár. Svo sem
sjá má af formannavísunum hefur
hann verið góður hagyrðingur.
Þeir hafa verið átta formennirn-
ir sem róið hafa úr Keflavíkinni á
vertíðinni veturinn 1908. Trúlega
hafa þeir flestir róið áttæringum
og því um sjötíu sjómenn á bát-
unum. Fyrstur er nefndur Guð-
mundur Guðmundsson á Selhól.
Hann flutti inn í Rif og var
þekktur sem Guðmundur f Rifi.
Afi skipstjóranna Sævars og Krist-
ins Jóns í Rifi og systra þeirra.
Næstur er Guðbjörn Grímsson í
Fögrubrekku. Formaður í Kefla-
vík í mörg ár. Eitt af afabörnum
hans á Hellissandi er Heimir
Gíslason. Þá kemur Loftur Lofts-
son sem átti heima á Bjölluhól.
Hann fórst með öllum mönnum
sínum, níu manns, í Keflavíkur-
lendingu 9. febrúar 1909. Það
Samantekið af Skúla Alexanderssyni
hörmulega slys átti sér stað fyrir
augum þorpsbúa sem margir
höfðu safnast saman á bökltunum
og gátu engum vörnum við kom-
ið en dæmdir til að vera sjónar-
vottar þessa harmleiks. Ekki hef-
ur orðið slys síðan í Keflavíkur-
lendingu.
Dagóbert Hansson á Stóru-
Hellu er næst nefndur. Hann var
einn í skipshöfn Lofts Loftssonar
og fórst með honum. Með Lofti
fórust einnig tveir hálfbræður
Dagóberts, Sigurður og Hjörtur
Magnússynir og einnig tengdafað-
ir hans Guðmundur Hákonarson.
Kristján Gilsson í Vinaminni-
Innra. Hann er afi Kristjáns Jóns-
sonar á Hellissandi sem var skip-
stjóri í Rifi og síðast á m/b Þor-
steini og langafi Halldórs Krist-
jánssonar, bankastjóra Landsbank-
ans. Þá kemur að Elímundi Og-
mundssyni í Dvergasteini. Hann
átti stóran barnahóp. Einn úr
þeim hópi var Ólafur sagnfræð-
ingur sem er höfundur ritsafnsins
Sögu Neshrepps utan Ennis og
Breiðuvíkurhrepps, Jöklu hinnar
nýju, sem í eru bækurnar Kirkjur
undir Jökli og Undir bláum sólar-
sali.
Svo kemur eini aðkomuformað-
urinn, Sveinn Jónsson úr Skáleyj-
um. Skáleyjaskipið hét María,
stór sexæringur. Gísli hleður
hann lofi. Hafi Sveinn átt lofið
skilið 1908 átti hann það enn bet-
ur ári seinna. Þegar hann var að
koma í verið á Maríu það ár og
var kominn út undir Hellissand
skall á norðvestan þreifandi bylur
og byrgði landsýn. Hann ákvað
að sigla til baka. Lítill bátur með
þremur mönnum hafði verið hon-
um samferða. Þeim mönnum
bjargar hann yfir í Maríu af miklu
snaræði. Siglt var í hvassviðri og
stórsjó og ekki var landsýn fyrr en
þeir sáu Eyrarfjall. Sveinn ákveð-
ur að reyna landtöku á Hallbjarn-
areyri sem honum tókst. I annan
stað náði Sveinn lendingu í Kefla-
vík rétt á undan Lofti sem getið er
hér að framan sem þar fórst með
áhöfn sinni. Síðastan telur Gísli
sjálfan sig og lætur lítið yfir sér.
Hann var dugnaðarmaður og góð-
ur formaður. Hann lést 49 ára
gamall veturinn 1910. Banamein
hans var blóðeitrun sem hann
fékk eftir að hafa látið taka úr sér
tönn. Nú hefur sonarsonur Gísla,
Árni Emanúelsson fest rætur á
Hellissandi. Hann keypti íbúðar-
húsið Artún í Keflavíkinni og hef-
ur endurbyggt það. Frá honum er
komin myndin af Gísla og for-
mannavísurnar.
Ósfqim sjómönnum og aðstandendum þárra um [andadt
tiífiamingju með daginn.
Starfsfóíj ijastar efif.
Nastar ehf.
Vatnagörðum 10 - 104 Reykjavík
Sími: 562-9000 - fax: 562-9001
tölvupóstur: nastar@nastar.is
Hastar
North~Atlantic Star
Otflutningur á sjávarafurðum