Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 3

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 3
 Íslenska þjóðfélagið, 1. árgangur 2010, 5-26. Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands 5 Stéttavitund Íslendinga í kjölfar efnahagshruns Guðmundur Ævar Oddsson Missouri-háskóla Útdráttur: Markmið þessarar greinar er að skoða stéttavitund Íslendinga í kjölfar efna- hagshrunsins haustið 2008. Gögnin sem liggja til grundvallar koma úr nýlegri íslenskri spurningakönnun og úr Alþjóðlegu lífsgildakönnuninni fyrir árið 2005. Gögnin eru greind út frá kenningu Max Webers um þjóðfélagsstéttir og kenningum um viðmiðun- arhópa. Niðurstöðurnar benda til þess að stéttavitund á Íslandi sé töluvert mikil. Flestir kannast við stéttarheiti og eru fúsir til þess að segja til um hvaða þjóðfélagsstétt þeir tilheyra. Að sama skapi eru Íslendingar talsvert meðvitaðir um eigin stéttarstöðu. Þessu ber vitni sterk jákvæð fylgni huglægrar stéttarstöðu og efnahagsstéttar annars vegar og einstaklingstekna, heimilistekna og menntunar hins vegar. Í samræmi við kenningar um viðmiðunarhópa benda niðurstöðurnar til þess að Íslendingar hafi ríka tilhneigingu til að sjá sig í „millistétt―. Þá hafa Íslendingar meiri „millistéttarsýn― á eigin stéttarstöðu og sjá hana almennt hærra í stéttarkerfinu en flestar aðrar þjóðir. Loks er það ætlunar- verk þessarar greinar að hjálpa til við að endurvekja íslenskar stéttarannsóknir. Lykilorð: Stéttavitund ■ efnahagshrun ■ þjóðfélagsstéttir ■ stéttarstaða ■ millistétt Abstract: The purpose of this paper is to tap Icelanders‘ class awareness in the wake of the 2008 economic collapse, using recent Icelandic survey data and 2005 World Values Survey data. The data are analyzed using a synthesis of Weber’s theory of class and reference group theory. Contrary to popular belief, Icelanders are class-aware. Most recognize and understand class terms, and are willing to assign themselves to a class. Icelanders also have fairly strong awareness of their class position, evidenced by a strong relationship between subjective class and economic class, on the one hand, and subjective class and class indicators, on the other. Consistent with reference group theory, a subjective ‗‗middle class‘‘ tendency is revealed across the class structure. Icelanders also have more of a ‗‗middle class‘‘ view of their class position and see it, on average, as higher than people in most other countries. Lastly, this article is meant to help reinvigorate class analysis in Iceland. Keywords: Class awarness ■ economic collapse ■ class position middle class ■ Iceland

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.