Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Qupperneq 10
12
Tafla 1 Svörun eftir búsetu, aldri og kyni
Skýringar: (1) Taflan sýnir svörun miðað við upphaflegt úrtak, þ.e.a.s. brúttósvörun. (2) Tafl-
an sýnir prósentutölur en fjöldatölur eru í sviga.
Í þessari grein er háða breytan fengin með spurningu um „huglæga stéttarstöðu― (Centers,
1949), sem mikið er notast við í alþjóðlegum rannsóknum.
Huglæg stéttarstaða: Þessi spurning er lítillega breytt útgáfa af spurningunni sem lögð
var fyrir í Alþjóðlegu lífsgildakönnuninni árið 2005 (Jackman og Jackman, 1983; World Valu-
es Survey, 2005a): Talað er um þjóðfélagsstéttir á borð við undirstétt, verkalýðsstétt, neðri
millistétt, efri millistétt og yfirstétt. Til hverrar af eftirtöldum þjóðfélagsstéttum myndir þú
segja að þú tilheyrðir?
Undirstétt
Verkalýðsstétt
Neðri millistétt
Efri millistétt
Yfirstétt
Eins og oft vill verða með spurningar af þessu tagi völdu fáir svarendur undirstétt eða
yfirstétt. Fyrir vikið er í ítarlegri greiningu notast við stéttalíkan með þremur stéttum (Edlund,
2003; Yamaguchi og Wang, 2002). Þriggja stétta líkanið samanstendur af efri millistétt, neðri
millistétt og verkalýðsstétt. Svarendur er völdu yfirstétt eru kóðaðir í efri millistétt og þeir
sem völdu undirstétt eru kóðaðir í verkalýðsstétt.
Efnahagsstétt: Efnahagsstéttarbreytan er fengin úr einföldustu útgáfu Erikson, Gold-
thorpe og Portocarero stéttalíkansins, sem samanstendur af þjónustustétt, millistétt og verka-
lýðsstétt (Edlund, 2003; Erikson og Goldthorpe, 1992). Notast er við starfsheiti samkvæmt
íslenska starfsflokkunarstaðlinum ÍSTARF 95 (Hagstofa Íslands, 1994) til að raða fólki í efna-
Upphaflegt úrtak Taka ekki þátt Þátttakendur
Búseta
Höfuðborgarsvæði 100 (937) 48,6 (455) 51,4 (482)
Landsbyggð 100 (587) 46,2 (271) 53,8 (316)
Aldur
40 ára og eldri 100 (793) 40,5 (366) 53,8 (427)
39 ára og yngri 100 (731) 51,1 (360) 50,8 (371)
Kyn
Karlar 100 (765) 51,1 (391) 48,9 (374)
Konur 100 (759) 44,1 (335) 55,9 (424)
Samtals 100 (1524) 47,6 (726) 52,4 (798)