Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 38

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 38
 40 en konur eru stærsti hópur opinberra starfsmanna. Vextir hækka, tekjur hins opinbera lækka og skuldaaukning eykst sem iðulega kallar á stórfelldan niðurskurð í velferð og þjónustu (Katrín Ólafsdóttir, 2010). Minnkandi velferð og opinber þjónusta bitnar svo aftur verr á konum en körlum sem bera meginþunga fjölskylduábyrgðar (sjá t.d. Bryndísi Jóhannsdóttur, 2010). Skerðingar á fæðingarorlofi tóku gildi vorið 2010 (Fæðingarorlofssjóður, 2009). Hætt er við að þær ýti undir hefðbundna verkaskiptingu og í ágúst 2010 voru komnar fram vísbend- ingar um að körlum sem taka fæðingarorlof fækki umtalsvert milli ára (Anna Sigríður Einarsdóttir og Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, 2010). Eins og fram kom hér að framan er kynjabil í stjórnmálum minnst á Íslandi í skýrslu WEF. Það voru einmitt stjórnmálin sem komu Íslandi í fyrsta sæti árið 2009. Það skýrist af auknum fjölda kvenna á Alþingi og í ríkisstjórn árið 2009 þegar konum fjölgaði á þingi í 43% en höfðu verið 32% eftir kosningarnar 2007. Í minnihlutaríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, sem tók við völdum á Íslandi í febrúar 2009, voru konur helmingur ráðherra. Það er þekkt tilhneiging að vinstri flokkar styðja kynjajafnrétti í meira mæli en aðrir flokkar og eru tilbúnari að rýma til fyrir konum. Styrkleiki þeirra á þjóðþingum hefur því bein áhrif á kynja- hlutföll (Kenworthy og Malamy, 1999). Að sama skapi fjölgar kvenráðherrum þegar vinstri flokkar og miðjuflokkar eru við stjórn (Mateo Diaz, 2005; Stevens, 2007). Í sögulegu sam- hengi sést þetta vel á Íslandi. Fæð kvenna í stjórnmálum á síðustu áratugum tengist sterkri stöðu Sjálfstæðisflokksins, enda þótt flokkurinn hafi verið á undan mörgum öðrum flokkum að kjósa konur á þing. Hrunið og fylgistap Sjálfstæðisflokksins í kjölfarið eiga því beint og óbeint þátt í að veita konum brautargengi í íslenskum stjórnmálum (Þorgerður Einarsdóttir og Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, 2009). Í sveitarstjórnarkosningunum vorið 2010 jókst hlutur kvenna um fjögur prósentustig frá kosningunum 2006, eða úr 36% í 40% (Úrslit sveitarstjórnarkosningar 29. maí 2010). Breytingin var skref fram á við þótt hún hafi ekki verið eins mikil og í alþingiskosningunum árið áður. Þrátt fyrir sterkari pólitíska stöðu kvenna eru ýmis önnur kynjatengsl í svipuðum farvegi og fyrr. Einungis tvær konur voru skipaðar í skilanefndir bankanna eftir hrun, eða um 13%, en sú nefndaskipan var tilefni þeirra mótmæla Kvenréttindafélagsins sem fjallað var um hér í upphafi. Karlar eru áfram í forystu í efnahagslífinu og við stjórnun bankanna. Vísbendingar eru um að konum í stjórnum fyrirtækja hafi fækkað eftir hrun (Lilja Móses- dóttir, 2009). Frá maí 2009 til maí 2010 hafði fyrirtækjum á almennum vinnumarkaði með kynjablandaðar stjórnir fækkað úr 15% í 14% (Hlutdeild kvenna í atvinnulífinu, 2010). Konur voru 23% stjórnarmanna og stjórnarformanna í fyrirtækjum árið 2009 og 19% framkvæmda- stjóra, og hafði þetta ekkert breyst frá því árið áður (Tillaga til þingsályktunar 2010). Rannsóknir benda til þess að fyrirtæki sem hafa stjórnarfólk af báðum kynjum sýni betri arðsemi en þau félög sem hafa einsleitar stjórnir (Margrét Sæmundsdóttir, 2009; Smith o.fl., 2005). Kynjaskekkjan í fjölmiðlum virðist á svipuðum slóðum og fyrr. Í rannsókn Önnu Lilju Þórisdóttur fyrir kosningarnar 2009 kom í ljós að karlar í framboði fengu talsvert meiri um- fjöllun í dagblöðum en konur og voru nær einráðir sem álitsgjafar í aðdraganda kosninganna. Þó voru konur í framboði jafn virkar og karlar við greinaskrif í dagblöðum. Niðurstöðurnar staðfesta fyrri rannsóknir og sýna að þegar hlutur kvenna er orðinn um 25-30% viðist ákveðn- um þolmörkum vera náð (Anna Lilja Þórisdóttir, 2010). Breytt kynjahlutföll á þingi og í sveitarstjórnum er tvímælalaust vísbending um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.