Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 79
81
Sigrún Ólafsdóttir og Jón Gunnar Bernburg
Mynd 2. Áhrif þess á ógn að telja þunglyndisástandið stafa af geðsjúkdómi: Myndin sýnir
líkindi þess að svarandi telji að einstaklingur með þunglyndiseinkenni sé líklegur til að beita
ofbeldi (stjórnbreytur fá meðalgildi í útreikningum).
Útreikningar eru birtir á myndum 2 og 3 sem sýna líkindi þess að svarandi telji mjög eða
frekar líklegt að einstaklingurinn beiti aðra ofbeldi. Þessar niðurstöður sýna vel hvernig svar-
endur sem aðhyllast læknisfræðilegar skýringar eru mun líklegri til þess að telja þunglyndan
einstakling vera hættulegan öðrum. Til skýringar kemur fram á mynd 2 að líkindi þess að
svarandi í Bandaríkjunum telji þunglyndan einstakling vera hættulegan eru um 14% ef hann
telur ástandið ekki stafa af geðsjúkdómi en líkurnar eru mun hærri, um 40%, ef hann telur að
um geðsjúkdóm sé að ræða.
Samanburður milli landa
Við höfum sett fram þá tilgátu að viðhorf til geðrænna vandamála ættu að vera neikvæðari í
Bandaríkjunum en í hinum löndunum tveimur (tilgáta 3). Við prófum þessa tilgátu með því að
meta samvirkniáhrif (e. interaction effects) sem metur hvort áhrif geðrænu einkennanna (þ.e.
miðað við astmahópinn) á neikvæð viðhorf séu marktækt ólík milli landa.
Niðurstöður fyrir samvirkniáhrifin eru birtar í töflu 1 (með ská– og feitletruðum töl-
um) og segja til um hvort marktækur munur sé á neikvæðum viðhorfum milli landa, að teknu
tilliti til samanburðarhópsins (astmahópsins), læknisfræðilegra skýringa og persónueinkenna
svarenda. Niðurstöðurnar styðja tilgátu okkar að verulegu leyti, en þær benda til þess að
neikvæð viðhorf til einstaklinga með geðklofa séu neikvæðari í Bandaríkjunum en í hinum
löndunum tveim. Til skýringar sýna niðurstöður fyrir hefðbundna fordóma (líkan 1) að í
Bandaríkjunum kallar geðklofalýsingin á um 1,6 fleiri stig en astmalýsingin, en í hinum
löndunum tveimur er munurinn minni, rúmlega 1,0 (1,04 á Íslandi og 1,08 í Þýskalandi).
0,04
0,09
0,14
0,09
0,19
0,4
0
0,05
0,1
0,15
0,2
0,25
0,3
0,35
0,4
0,45
Ísland Þýskaland Bandaríkin
Svarandi telur ástandið ekki stafa af geðsjúkdómi
Svarandi telur ástandið stafa af geðsjúkdómi