Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Page 9

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Page 9
 11 Guðmundur Ævar Oddsson er sá að einsleitni viðmiðunarhópa – svipuð menntun, störf og laun fjölskyldu og vina – aflagar í grundvallaratriðum „huglæga úrtakið― sem maður alhæfir út frá um þjóðfélagið í heild sinni og byggir á huglæga stéttarstöðu. Fyrir vikið hafa einstaklingar tilhneigingu til þess að sjá sig í n.k. „millistöðu― þar sem við- miðunarhópar þeirra eru tiltölulega einsleitir (Smits o.fl., 1998) og samanstanda af einstakl- ingum sem eru bæði fyrir ofan þá og neðan m.t.t. efnahagsstéttar, menntunar, tekna o.s.frv. (Bott, 1957). Huglæg stéttarstaða endurspeglar því sambland hlutlægrar stéttarstöðu og „hugmynda jafnaðar og samlyndis sem almennt ríkir meðal fjölskyldumeðlima, vina og sam- starfsmanna, [þar sem hlutlæg stéttarstaða] er síuð í gegnum aflagandi linsu viðmiðunar- hópa― (Kelley og Evans, 1995: 158). Í ljósi þessa er tilgáta mín sú að niðurstöður þessarar rannsóknar eigi eftir að sýna „millistéttar-tilhneigingu― um allt stéttakerfið. Gögn og aðferðir Gögnin sem notast er við í þessari rannsókn koma úr íslenskri spurningakönnun sem gerð var símleiðis á tímabilinu desember 2008 til janúar 2009. Spurningakönnunin var framkvæmd af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Miðlun viðskiptalausnir ehf. Úrtakið er lýsandi fyrir íslenskumælandi landsmenn á aldrinum 18 til 75 ára. Upphaflegt úrtak var 1524 einstaklingar og þar af tóku 798 þátt. Brúttósvörun er því 52%. Endanlegt úrtak var 1381, þ.e. þegar búið var að draga frá þá sem voru nýlega látnir, veikir, erlendir ríkisborgarar, staddir erlendis eða könnunin átti ekki við. Nettósvörun spurningakönnunarinnar er þ.a.l. 58%, sem er vel við unandi miðað við alþjóðlegar rannsóknir á stéttavitund (Kelley og Evans, 1995). Í töflu 1 má sjá svörun eftir aldri, búsetu og kyni miðað við upphaflegt úrtak. Ekki reyndist unnt að fá upplýsingar um brottfall eftir téðum bakgrunnsþáttum miðað við endanlegt úrtak. Eins og sjá má er lítil kerfisbundin skekkja í svörun m.t.t. aldurs og búsetu. Hins vegar var þátttaka nokkuð betri meðal kvenna (56%) en karla (49%). Þrátt fyrir að algengara sé að grafist sé fyrir um huglæga hlið stéttarkerfa með hjálp eigindlegra rannsóknaraðferða hafa margar merkar megindlegar rannsóknir verið gerðar á þessu viðfangsefni, sér í lagi með notkun spurningakannana (t.d. Jackman og Jackman, 1983; Marshall o.fl., 1988; Wright, 1997). Ástæðan fyrir því að spurningakönnunum er beitt í þessum tilvikum, sem og í þessari rannsókn, er að draga má á grunni þeirra almennar ályktanir um þýðið og bera saman undirhópa. Slíkt er oftast ógerningur með eigindlegum rannsóknar- aðferðum á borð við vettvangsrannsóknir (t.d. Fantasia, 1988, 1995) eða djúpviðtöl (Savage o.fl., 2001). Þess slags rannsóknaraðferðir eru betur til þess fallnar að rannsaka vel skilgreinda hópa með tiltölulega fámennu úrtaki. Með þetta að leiðarljósi varð spurningakönnun fyrir val- inu í þessari rannsókn.

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.