Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Page 48

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Page 48
 50 Inngangur Þróun þéttbýlis og fjölbreyttari verkaskiptingar hófst ekki að marki á Íslandi fyrr en á síðasta fjórðungi 19. aldar; árið 1880 bjuggu aðeins um 7% landsmanna í nokkrum smáþorpum (Hagstofa Íslands, 1997). Þróunin varð hins vegar hröð eftir að hún komst á nokkurt skrið, því hálfri öld seinna, árið 1930, bjuggu 56,5% landsmanna í þéttbýli (Hagstofa Íslands, 1997). Á fyrstu áratugum 20. aldar voru húsnæðisaðstæður íslensks almennings í hinu ört vaxandi þéttbýli við sjávarsíðuna um margt bágbornar og jafnvel heldur verri en annars staðar á Norðurlöndum. Þá ályktun dró í það minnsta einn af fyrstu hagfræðingum Íslendinga, Gunnar Viðar, í formála að skýrslu bæjarstjórnar Reykjavíkur um rannsókn á húsnæðis­ aðstæðum almennings er fram fór í Reykjavík sumarið 1928 (Bæjarstjórn Reykjavíkur, 1930). Annar úr hópi fyrstu hagfræðinga hérlendra, Héðinn Valdimarsson, sat í bæjarstjórn Reykjavíkur á þriðja áratugnum sem fulltrúi Alþýðuflokksins og flutti þar umbótatillögur í húsnæðismálum (Þorleifur Friðriksson, 2007). Árið 1928, þá orðinn alþingismaður, flutti hann frumvarp til laga um byggingu verkamannabústaða í hinum upprennandi kaupstöðum, bæjum og þorpum landsins. Frumvarpið náði þó ekki fram að ganga á því þingi, en var samþykkt, nokkuð breytt, sem fyrstu lögin um verkamannabústaði vorið 1929. Á næstu árum hófust byggingar verkamannabústaða víða um land, hæst bar byggingar Byggingarfélags alþýðu í vesturbæ Reykjavíkur. Þetta markar upphaf samfelldra íbúðabygginga á félagslegum grundvelli á Íslandi. Húsnæði er stór þáttur í útgjöldum fjölskyldna og er snar þáttur í öryggi þeirra. Þetta er því mikilvægt rannsóknarefni félagsfræðinga, en því hefur verið lítill gaumur gefinn að undanförnu hér á landi. Þessi grein hefur að markmiði að fjalla um það hvernig félagslegum aðgerðum á sviði húsnæðismála hefur undið fram á Íslandi og bera jafnframt saman þróun hér á landi við stöðu mála í nálægum löndum. Þá verður leitast við að svara spurningum um þátt stjórnmálaflokka, verkalýðshreyfingar og pólitískrar hugmyndafræði í þróun félagslegs húsnæðis. Greinin hefst á almennri umræðu um félagslega húsnæðisstefnu og velferðarríkið og fjallar síðan um eftirfarandi þróunarþætti íslenskra húsnæðismála: Upphaf verkamanna­ bústaðanna og hæga þróun þeirra, innreið samráðsstefnunnar á sjöunda áratugnum, upp­ stokkun húsnæðismála á tíunda áratugnum, lokun félagslega húsnæðiskerfisins 1999 og viðbótarlán sem valkost og loks tilurð félagslega leiguíbúðakerfisins eftir árþúsundamótin. Félagslegt húsnæði og velferðarríkið Sé litið út fyrir landsteina Íslands blasir við að félagslegar íbúðabyggingar hófust víða í nokkrum mæli eftir lok heimsstyrjaldarinnar fyrri, þegar það hafði sýnt sig að áður viðteknar markaðsáherslur dugðu lítt við lausn aðsteðjandi húsnæðisvanda friðartímans. Fljótlega eftir 1920, er ný efnahagsuppsveifla hófst í heiminum, var hvarvetna í meginatriðum horfið aftur til fyrri stefnu. Á kreppuárunum eftir 1930 fóru samt nokkur ríki, einkum Svíþjóð undir stjórn fyrstu ríkisstjórnar jafnaðarmanna, að beita sér fyrir félagslegum íbúðabyggingum, bæði sem félagslegum umbótum og jafnframt sem atvinnuskapandi aðgerð gegn hinni aðsteðjandi heimskreppu. Þetta var mjög í anda þeirrar nýju hagfræðistefnu sem æ síðan er kennd við John Maynard Keynes og varð ráðandi um meginstraum hagfræðihugsunar næstu áratuga á Vesturlöndum (Harloe, 1995; Waldén, 1996; Bengtsson, 2006a).

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.