Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 60

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 60
 62 Vöxtur félagslega leiguíbúðakerfisins Þrátt fyrir framboð viðbótarlána til lágtekjuhópa, lék eigi að síður nokkur vafi á því að það næði til sömu markhópa og hið eldra kerfi hafði gert. Þá setti síhækkandi markaðsverð á almennum fasteignamarkaði alvarlegt strik í reikninginn, því alvarlegra sem eignabóla veltiára hinnar nýbyrjuðu þúsaldar þandist meira út. Eftir 2004, þegar 90% lán Íbúðalánasjóðs stóðu öllum til boða án tekjumarka, varð hins vegar æ ljósara að lágtekjufólk átti í raun sífellt minni möguleika á að fóta sig á húsnæðismarkaði. Í þann mund sem uppstokkun nýrra húsnæðislaga var að koma til framkvæmda 1999- 2000, lét félagsmálaráðuneytið gera könnun á þörf fyrir leiguhúsnæði, eins og hún var metin hjá sveitarfélögunum (Félagsmálaráðuneytið, 2000). Mörg þeirra töldu vaxandi þörf á leigu­ húsnæði eftir að félagslega eignaríbúðakerfinu var lokað. Þetta hefur reynst rétt mat, því á þeim árum sem liðin eru frá aldamótum hefur hlutur leiguíbúa undir félagslegum formerkjum og einnig búseturéttaríbúða aukist talsvert, eins og fram kemur í töflu 3. Fjöldi leiguíbúða sveitarfélaga nærfellt tvöfaldaðist frá 1999 til 2007 og fjöldi náms- mannaíbúða rúmlega það, enda átti sér stað mikil uppbygging íslenska háskólakerfisins á tímabilinu. Fjöldi búseturéttaríbúða fjórfaldaðist á tímabilinu og munar þar bæði um tilkomu húsnæðissamvinnufélags eldri borgara, Búmanna og einnig um verulega fjölgun slíkra íbúða á Akureyri. Í Reykjavík starfrækir Búseti einnig leiguíbúðir innan sérstaks leigufélags. Ef litið er til allra félagslegra íbúða, þ.e. bæði eignaríbúða og leiguíbúða, er hins vegar ljóst að hlutur félagslegs húsnæðis 2007 var orðinn mun rýrari en hann hafði verið árið 1999, því þetta hlutfall hafði fallið úr 10,7% af öllu íbúðarhúsnæði á landinu 1999 í aðeins 6,5% árið 2007. Mikilvæg forsenda fyrir uppbyggingu hins nýja stofns félagslegra leiguíbúða og bú­ seturéttaríbúða, er komið hefur í stað verkamannabústaðanna og síðar eignaríbúðakerfisins, er tilkoma húsaleigubóta frá og með árinu 1995. Hlutur þeirra hefur stöðugt farið vaxandi, eða úr 324 milljónum króna árið 1995 í 1605 milljónir króna árið 2007 (á verðlagi ársins 2007) (Félagsmálaráðuneytið, 2008). Tafla 3 Fjöldi félagslegra leiguíbúða og búseturéttaríbúða 1999 og 2007 Athugasemdir: Tölur fyrir 2007 eru fengnar af heimasíðum byggingaraðilanna eða með svörum þeirra við tölvupóstum greinarhöfundar. Fjöldi íbúða í eigu samtaka fatlaðra er að nokkru áætlaður af greinarhöfundi. Heimild: Félagsmálaráðuneytið 2000 (tölur frá 1999). 1999 2007 Leiguíbúðir sveitarfélaga 2289 4546 Samtök fatlaðra 679 (825) Nemandagarðar 706 1662 Búseturéttaríbúðir 374 1192 Félagslegar íbúðir samtals 4048 8229
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.