Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 5

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Blaðsíða 5
 7 Guðmundur Ævar Oddsson segja til um hvaða þjóðfélagsstétt þeir tilheyra og hvort svör viðmælenda komi heim og saman við félagslegar aðstæður þeirra (Evans, 1996). Skýran greinarmun verður að gera á hugtakinu „stéttavitund― og hinu vel þekkta og um- deilda hugtaki „stéttarvitund― (e. class consciousness). Í þrengstu merkingu hugtaksins ætti einungis að tala um stéttarvitund þegar aðstæður verkalýðsstéttarinnar kalla fram samvitund sameiginlegra hagsmuna í krafti pólitísks umboðs (Engels, 1975; Lukacs, 1975; Marx, 1963). Ennfremur er stéttarvitund ekki einstaklingsbundið fyrirbrigði eins og Georgy Lukacs, sá sem ber mesta ábyrgð á útbreiðslu hugtaksins, lagði mikla áherslu á (Lukacs, 1975). Grundvallar- atriði er að stéttavitund er einungis frumstig stéttarvitundar (Giddens, 1973; Mann, 1973). Nánar tiltekið: Ef fólk er ekki meðvitað um þjóðfélagsstéttir getur það ekki samsamað sig á- kveðinni þjóðfélagsstétt og öðlast stéttarvitund. Hvað sem því líður er ekki grundvöllur fyrir því að leggja þessi tvö hugtök að jöfnu (Scott og Marshall, 2005). Með öðrum orðum: Að vera meðvitaður um þjóðfélagsstéttir er ekki það sama og hafa stéttarvitund. Áður en við vindum okkur í niðurstöðurnar mun ég gefa yfirlit yfir innlendar rannsóknir og afleidd gögn sem varpa ljósi á hið íslenska samhengi þessarar greinar. Í kjölfarið mun ég sýna hvernig sambland kenningar Webers um þjóðfélagsstéttir og kenninga annarra fræði- manna um viðmiðunarhópa útskýrir huglæga stéttarstöðu. Þá reifa ég tilgátu um tengsl ein- staklingsvæðingar og aukinna áhrifa viðmiðunarhópa á huglæga stéttarstöðu. Loks mun ég lýsa þeim gögnum og aðferðum sem ég notast við í þessari rannsókn. Fræðilegur bakgrunnur Innlendar rannsóknir Íslandi hefur jafnan verið lýst af leikum og lærðum sem miklu jafnaðarþjóðfélagi (t.d. Helgi Gunnlaugsson og Galliher, 2000). Sumir fræðimenn hafa jafnvel lýst Íslandi sem einstaklega jöfnu og „stéttlausu― þjóðfélagi (Tomasson, 1980). Þó að fyrsta lýsingin sé ekki fjarri lagi, standast seinni tvær ekki gagnrýna skoðun (t.d. Stefán Ólafsson, 1981, 1982). Hins vegar hefur goðsögnin um hið „stéttlausa― íslenska samfélag verið býsna lífseig meðal landans, þrátt fyrir að rannsóknir sýni að raunveruleikinn er annar (t.d. Sigurjón Björnsson o.fl., 1977; Þor- björn Broddason og Webb, 1975). Dóra S. Bjarnason (1974) kemst að þeirri niðurstöðu að Íslendingar vilji ekki viður- kenna tilvist stéttaskiptingar á Íslandi þrátt fyrir vitneskju þeirra um mismunandi aðstöðu fólks og efnahag (Dóra S. Bjarnason, 1974). Þorbjörn Broddason og Webb (1975) sýna fram á margvíslegan ójöfnuð hérlendis en draga ekki í efa staðhæfingar Dóru S. Bjarnason (1974) um veika stéttavitund meðal Íslendinga. Viðmælendur Sigurjóns Björnssonar og félaga (1977) héldu því almennt fram að Ísland væri stéttlaust þjóðfélag og túlkuðu ekki efnahagslegan mis- mun sem vísbendingu um stéttaskiptingu. Að mati Sigurjóns og félaga (1977) virðist sem Ís- lendingar trúi ekki á tilvist stéttaskiptingar í þjóðfélaginu. Þá heldur Tomasson (1980) því fram að jafnaðarandinn sé helsta menningararfleifð Íslendinga og byggir þessa staðhæfingu sína aðallega á því að Íslendingar sýna lítinn mannamun í samskiptum sín á milli. Á þessum grundvelli dregur Tomasson (1980) þá ályktun, líkt og ofangreindir fræðimenn, að stéttavit- und sé hverfandi meðal Íslendinga. Á hinn bóginn hefur Stefán Ólafsson (1981, 1982, 2003) bent á það að gera verði greinarmun á þjóðfélagsstétt (efnahagslegri stöðu) og þjóðfélagsstöðu (virðingarstöðu) (Chan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.