Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 8

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 8
 10 útskýringar á hugtakinu „efnahagsstétt―, þá deilir fólk í sömu efnahagsstétt svipuðum lífs- möguleikum, en þeir ákvarðast af sambærilegri markaðsstöðu (Weber, 1978). Til þess að efnahagsstétt myndi þjóðfélagsstétt þarf, hins vegar ákveðna félagslega lokun vegna tak- markaðs félagslegs hreyfanleika innan og milli kynslóða. Þetta kallast stéttarmyndun og er m.a. lýst í samsetningarkenningu (e. structuration) Giddens (1973). Einnig reikna ég með því að þeir sem neðar eru í stéttakerfinu séu viljugri til þess að svara spurningum um huglæga stéttarstöðu. Sem fyrr segir taldi Weber (1978) að öreigar hefðu skýrasta sýn á stéttakerfið sökum stéttarstöðu sinnar. Þessari kennisetningu deilir Weber með Marx (1972) og Durkheim (1933), auk fjölda annarra merkra fræðimanna, s.s. DuBois (1996) og Bourdieu (1977). Hins vegar geri ég jafnframt ráð fyrir því að „einstaklingsvæðing stéttakerfisins― (Beck, 1992; Scott, 2002) dragi úr tengslum huglægrar stéttarstöðu og hlutlægrar stéttarstöðu. Nánar tiltekið: Aukin einstaklingsvæðing veldur því að sjálfsmynd fólks veltur meira á ákvörðunum þess en síður á stéttarstöðu (Beck, 1992). Að sama skapi breytir aukin einstaklingsvæðing því samhengi (e. context) sem fólk upplifir sig sjálft í (Irwin, 2008). Ekki er þó hægt að sannreyna hvort stéttakerfið íslenska sé einstaklingsvæddara en áður út frá þeim gögnum sem liggja til grundvallar þessari rannsókn, enda einungis um eina mælingu á ákveðnum tímapunkti að ræða. Frekari rannsóknir þarf til að kanna haldbærni tilgátunnar. Íslendingar hafa engu að síður ávallt verið miklir einstaklingshyggjumenn (Stefán Ólafsson, 2003), auk þess sem einstaklingshyggju hérlendis hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár (Axel Hall o.fl., 2002). Þetta kemur meðal annars fram í minnkandi „stéttakosningu“ samkvæmt Alford-kvarðanum á árunum 1983 til 2003 (Ólafur Þ. Harðarson, 2004). Hafa ber þó í huga að Alford-kvarðinn, sem sýnir muninn á hlutfalli verkafólks sem kýs vinstri flokka og hlutfalli millistéttarfólks sem kýs vinstri flokka, er býsna grófur mæli- kvarði (Manza o.fl., 2005). Hann getur þó gefið ákveðna vísbendingu um langtíma þróun. Tilgáta mín er eftirfarandi: Aukin einstaklingsvæðing breytir því samhengi sem fólk upplifir sig sjálft í, á þann veg að þegar dregur úr áhrifum stéttakerfisins hafa félagsleg tengsl við fjölskyldu, vini og samstarfsmenn meiri mótandi áhrif á stéttavitund þess. Eftir því sem síðarnefndu áhrifin aukast verða einstaklingar síður líklegir til þess að taka tillit til stétta- kerfisins. Þetta gerir einstaklinga hneigðari til þess að (Levy, 1991: 63): [1] taka einungis tillit til síns nánasta félagslega umhverfis til að skilja hvað gerist og hvers vegna, [2] útskýra félagslega hegðun með vísun í einstaklingseinkenni, sér í lagi tilhneigingar einstaklinga og skapgerðareinkenni, [og] [3] virða að vettugi félagslega sköpun ójafnaðar, mismununar og formgerðarhindrana. Eftir þessum sömu nótum held ég því fram að bæði nánasta félagslega umhverfi og stéttarstaða hafi áhrif þegar fólk er spurt hvaða þjóðfélagsstétt það tilheyrir. Þetta er í sam- ræmi við kenningar um viðmiðunarhópa (Bott, 1957; Lockwood, 1966; Merton, 1968; Stouff- er o.fl., 1949), sem kveða á um að nálægir samferðamenn hafi mikil áhrif á sýn fólks á eigin stöðu í þjóðfélaginu (Evans og Kelley, 2004: 4): Þetta er sérstök „brjóstvitsaðferð― – tilhneiging til þess að sjá þjóðfélagið út frá alhæf- ingum byggðum á eigin reynslu og kunnuglegum ímyndum í fjölmiðlum. Kjarni málsins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.