Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 32

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 32
 34 Bjarnhéðinsdóttir], 1917c: 41). Áskorun fundarins vegna hinna nýstofnuðu bjargráðanefnda var send bæði til stjórnvalda og bæjarstjórnar Reykjavíkur, og gekk út á að bæta tveimur konum við í nefndirnar og skipa framvegis slíkar nefndir báðum kynjum. Í framhaldi af hinum fjölmenna fundi og áskorun hans sendi stjórn Kvenréttindafélagsins Bjargráðanefnd Alþingis bréf sem hefst á eftirfarandi orðum: „Vér konur höfum furðað oss mjög á því að í öllum dýrtíðarráðstöfunum Alþingis, landsstjórnar og bæjarstjórnar, skuli konurnar ekkert vera kvaddar að þessum málum“. Stjórnin rökstyður mál sitt ítarlega og setur fram þá tillögu að „sett verði sérstök nefnd skipuð bæði færum húsmæðrum eða hússtjórnarkennslukonum og karlmönnum, sem bæði landsstjórnin og hinar dýrtíðarnefndirnar geti snúið sér til, þegar um einhver þau mál er að ræða, sem nánast snerta heimilin“ ([Bríet Bjarnhéðinsdóttir], 1917d: 57- 58). Framhald málsins varpar áhugaverðu ljósi á ráðandi hugmyndir um þegnrétt kvenna og þær þversagnir sem hann hvíldi á. Málið var tekið fyrir á Alþingi þar sem bjargráðanefnd efri deildar tók málinu vel en það var hins vegar fellt í neðri deild (Kristín Ástgeirsdóttir, 2002: 159). Bríet sat sjálf í bæjarstjórn á þessum tíma og lagði þar fram tillögu í samræmi við áskorun Kvenréttindafélagsins. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar þann 16. ágúst 1917. Miklar umræður urðu um málið, einkum tillögu Bríetar, og var breytingartillaga lögð fram við hana. Málinu lyktaði með að svohljóðandi tillaga frá Knud Ziemsen borgarstjóra var samþykkt: Bæjarstjórnin ályktar að kjósa 5 manna nefnd, er skipuð sé konum, til þess að leiðbeina heimilum um sparnað í dýrtíðinni og hagnýtingu matvæla og eldsneytis. Nefndin skal því aðeins skipuð, að þær konur utan bæjarstjórnar, sem bæjarstjórnin kýs, vilji taka að sér kauplaust það starf, sem nefndarmönnum er ætlað (Fundargerð bæjarstjórnar Reykjavíkur 16. ágúst 1917). Konurnar neituðu hins vegar að taka sæti í nefndinni. Hún átti að vera launalaus og þeim þótti ljóst að hún væri valdalaus (Auður Styrkársdóttir, 1998; Kristín Ástgeirsdóttir, 2002). Þarna kristallast þau átök sem áttu sér stað um samfélagslegt hlutverk kvenna og þær þversagnir sem konurnar urðu að takast á við. Þær krefjast þess að vera taldar með og teknar með, þær vilja samvinnu við karla og rökstyðja hlutdeild sína að hluta til með tilvísan í þekkingu sína og hæfni sem húsmæðra. Alþingi hafnaði ósk þeirra, eins og fyrr segir. Mótleikur bæjarstjóra var hins vegar að skipa kauplausa og valdalausa kvennanefnd sem konurnar höfnuðu þátttöku í. Hér er tekist á um forsendurnar fyrir þegnrétti kvenna og hvernig hann skuli skilgreindur. Konurnar vísa í hagsýni kvenna og segja má að bæjarstjóri hafi nýtt sér þau rök til að halda þeim jaðarsettum og valdalausum; þær áttu jú að kenna fólki að spara. Tekist er á um eftir hvaða farvegi umræðan eigi að renna. Andstaða kvennanna og viðleitni þeirra til að skilgreina sjálfar forsendurnar fyrir þátttöku sinni mætir andstöðu og þær verða undir í þeim átökum. Réttindabarátta kvenna er vörðuð hugmyndafræðilegum átökum á borð við þessi þótt þau hafi borið mismunandi hátt eftir tímabilum. Eftir fyrsta áfanga borgaralegra réttinda um 1915 tók að myndast gjá innan kvenna- hreyfingarinnar. Annars vegar voru konur sem studdu ráðandi orðræðu sem vegsamaði húsmóður- og móðurhlutverkið, og hins vegar voru þær sem töldu að konur ættu jafnframt því rétt á hlutdeild í opinberu lífi. Um 1930 hafði húsmæðrahugmyndafræðin náð undirtökunum.

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.