Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 50

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 50
 52 2008). Rit ungversk-breska félagsfræðingsins Jim Kemeny hafa haft einna mest mótandi áhrif í þessum efnum (Kemeny, 1981, 1992, 2002).1 Kemeny hefur um þriggja áratug skeið greint mun húsnæðiskerfa ólíkra landa, fyrst undir marxískum formerkjum en í seinni tíð í anda félagslegrar mótunarhyggju. Áherslur Kemenys hafa verið á sundurleitni (divergence) húsnæðiskerfa og hefur hann á þeim áratug sem nú er að líða m.a. rannsakað hin tiltölulega stóru og samfelldu leigukerfi landa eins og Hollands, Þýskalands, Sviss og Austurríkis og borið þau saman við sérhópalausnir leigukerfa flestra engilsaxnesku landanna.. Kemeny hefur verið afar gagnrýninn á sjálfseignarstefnu í húsnæðismálum allt frá því að fyrsta bók hans um húsnæðismál, The Myth of Homeownership, kom út árið 1981 (Kemeny, 1981). Hann benti m.a. sérstaklega á þá staðreynd að ríki sem búa við lökust velferðarkerfi eru oft þau lönd sem lagt hafa mikla áherslu á sjálfseignarstefnu í húsnæðismálum. Þekktur rannsakandi velferðar­ kerfa, Francis G. Castles, hefur sýnt fram á tölfræðilega marktækt samband hvað þetta varðar (Castles, 1998). Sterkasta rannsóknarhefðin hefur þó verið sú sem leggur áherslu á samleitni (con­ vergence) húsnæðiskerfa í átt að svipuðum húsnæðislausnum, í seinni tíð einkum í áttina að auknu vægi markaðsafla. Breski félagsfræðingurinn Michael Harloe er þekktasti fulltrúi þessa viðhorfs (Harloe, 1995). Samleitnikenningar innan húsnæðisrannsókna eiga rætur í ákveðinni þróunarhyggju sem oft hefur gætt innan félagsvísinda og ekki síður innan marxískrar hugs­ unar. Skýr samleitnikenning um þróun húsnæðismála kemur t.d. fram strax á sjöunda áratug liðinnar aldar hjá fræðimanni eins og David Donnison (Donnison, 1967) og síðar hjá hinum þekkta formgerðar-marxista Manuel Castells (1977). Á allra síðustu árum beittu fræðimenn kenningum um vegartryggð (path dependence) á þróun húsnæðiskerfa og húsnæðistefnu ólíkra þjóðríkja. Vegartryggðarkenningar byggja í einföldustu mynd á setningunni „sagan skiptir máli“ og beina sjónum að því hvernig flókin tæknikerfi og söguleg þróunarferli mótast og skilyrðast af upphafsstöðu viðkomandi kerfis. Dæmi um þetta er hvernig tölvutækni dagsins í dag býr enn að einhverju leyti við þá hugbúnaðarþróun sem átti sér stað á fyrstu áratugum tölvutækninnar. Oftast er þó tilfært hvernig hið svonefnda QWERTY-lyklaborð ritvéla frá 19, öld er enn við lýði, þó svo að önnur niðurröðun bókstafanna væri mun heppilegri (Diamond, 1997; Mahoney, 2000). Ljóst má vera að húsnæðiskerfi mismunandi landa eru mjög skýrt dæmi um vegartryggð. Í upphafi þess áratugar sem nú er að líða beitti norrænn fræðimannahópur (sem greinarhöfundur tók þátt í) vegartryggðarkenningunni til þess að greina hina mjög svo ólíku húsnæðisþróun Norður­ landaríkjanna fimm. Þar kom í ljós að fyrri húsnæðisstefna og formgerð fyrirliggjandi húsnæðismarkaðar og húsnæðisforða bindur hendur stjórnvalda hverju sinni við innleiðingu breytinga og nýjunga á sviði húsnæðismála (Bengtsson, 2006b; Jón Rúnar Sveinsson, 2006). Á Íslandi einkenndust húsnæðislausnir eftirstríðstímans lengi af öflugri sjálfsbjargar- og séreignarstefnu. Hér á landi voru það einkum ýmis samfélagsöfl – fjölskyldan, ættingjar og byggingarsamvinnufélög – sem leystu meginhluta húsnæðisvandans. Ríkisafskipti af hús- næðismálum voru hér minni og komu seinna til sögunnar en í nálægum löndum. Jaðarstaða húsnæðismála í íslenska velferðarríkinu var þannig áberandi og það var fyrst um 1990 að uppbygging félagslegs húsnæðiskerfis að skandinavískri fyrirmynd hófst hér á landi (Jón Rúnar Sveinsson, 1992; Húsnæðisstofnun ríkisins, 1994b). Þá hafði nýfrjálshyggjan hafist til vegs og valda sem leiðandi hugmyndafræði víða um heim, en sú stefna hóf einmitt göngu sína með einkavæðingu mikils hluta félagslega húsnæðiskerfisins í Bretlandi.

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.