Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Qupperneq 51

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Qupperneq 51
 53 Jón Rúnar Sveinsson Upphaf verkamannabústaðanna Það heiti sem notað var um helsta form félagslegra íbúðabygginga hér á landi, „verkamanna­ bústaðir“, felur í sér skýra viðmiðum um það fyrir hverja húsnæðið var byggt. Þetta heiti var við lýði hér á landi til ársins 1990, er tekið var upp heitið „félagslegar eignaríbúðir“, því viðmiðunin við verkamenn þótti þá ekki lengur samrýmast breyttum hugsunarhætti og víð- tækara hlutverki félagslegra íbúðabygginga. Fyrirmyndir erlendis frá blasa skýrt við, því á þeim áratugum sem þéttbýlismyndun var að hefjast hér á landi höfðu byggingar leiguhús­ næðis fyrir tilstuðlan eða kröfu verklýðshreyfingar eða verkalýðsflokka víða í Evrópu komist vel á legg. Þekktastar og mestar að umfangi voru Gemeindebauten í Vínarborg á árunum eftir fyrri heimsstyrjöldina. Alls risu af grunni um 64.000 íbúðir í eigu borgarinnar á árunum 1919- 1930 (Brantenberg, 1996). Ekki þarf að efa að t.d. fordæmi frá Vínarborg hafi haft áhrif á Héðin Valdimarsson og stuðningsmenn hans þegar hafist var handa við smíði fyrstu verka- mannabústaðanna á Íslandi. Guðmundur J. Guðmundsson, verkalýðsleiðtogi, sem ólst upp í verkamannabústöðunum við Hringbraut, slær því t.d. föstu í ævisögu sinni að fordæmið frá Vínarborg hafi verið mjög mikilvægt fyrir Héðin Valdimarsson. Guðmundur segir: „Finnbogi [Rútur Valdemarsson] kenndi mér allt um verkamannabústaði, hvernig þeir hefðu komist á, að Héðinn hefði fengið fyrirmyndina frá Vínarborg, en ekki frá Norðurlöndunum.“ (Ómar Valdimarsson, 1990:55). Vart fer heldur hjá því að öflugt starf danskra byggingarfélaga, er tengdust þarlendri verkalýðshreyfingu, hafi einnig haft áhrif á Héðin, sem var við nám í Danmörku árin 1911-1917 (Lind og Møller, 1994; Matthías Viðar Sæmundsson, 2004). Verkamannabústaðirnir íslensku skáru sig úr erlendum fyrirmyndum sínum að því leyti að ekki var um að ræða leiguíbúðir. Þegar fyrstu lögin um verkamannabústaði voru sett árið 1929 og byggingar verkamannabústaða hófust næstu ár á eftir, lék aldrei neinn vafi á því að um væri að ræða íbúðir til eignar. Um þetta atriði var hvorki rætt – né deilt – við setningu laganna, útleiga íbúðanna sem byggðar voru kom ekki til umræðu (Alþingistíðindi 1929B: 3320-3486). Eigi að síður voru verkamannabústaðirnir frá upphafi markaðir þeirri samfélagshyggju og félagshyggju sem frumkvöðlar þeirra aðhylltust. Þannig voru frá upphafi settar skorður við sölu íbúðanna á almennum markaði. Einnig vekur athygli að á fyrstu árunum voru aðstæður við rekstur verkamannabústaðanna um margt líkar þeim sem ríkt hefðu ef um leiguíbúðir hefði verið að ræða. Þannig tíðkaðist það hjá bæði Byggingarfélagi alþýðu og Byggingar- félagi verkamanna í Reykjavík að mánaðarlegar greiðslur fyrir hverja íbúð voru innheimtar af skrifstofu félagsins og samtímis voru innheimt gjöld af öðrum kostnaðarliðum við rekstur húsnæðisins (Héðinn Valdimarsson, 1934). Í rauninni var þarna um að ræða hliðstætt fyrir­ komulag og gilt hefði um leiguíbúðir. Eignarhald húsnæðisins var þó óumdeilanlega í hönd­ um íbúanna, en ekki í höndum félagasamtaka eða sveitarfélaga. Upprunalegt félagsform verkamannabústaðanna var raunar samvinnuform, samkvæmt fyrstu lögunum frá árinu 1929. Sú breyting á upphaflegu frumvarpi Héðins Valdimarssonar kom inn í frumvarpið á vegferð þess á Alþingi fyrir tilstilli Framsóknarflokksins (Stjórnar­ tíðindi 1929, lög nr. 45). Einungis eitt byggingarfélag í hverju sveitarfélagi átti rétt á lánum úr Byggingarsjóði verkamanna og kom það ákvæði inn í lög um verkamannabústaði í upphafi valdatíma „stjórnar hinna vinnandi stétta“, þ.e. Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, eftir að Sjálfstæðismenn í Reykjavík höfðu reynt að stofna annað byggingarfélag er nefnt var Bygg­
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.