Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Page 52

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Page 52
 54 ingarfélag sjálfstæðra verkamanna (Morgunblaðið 1946, 22. janúar, bls. 2). Árið 1932 voru, að frumkvæði Framsóknarflokksins, sett sérstök lög um byggingarsamvinnufélög og starfsemi þeirra (Stjórnartíðindi 1932, lög nr. 71) sem mótuði samvinnufélagaforminu skýran farveg í íslenskum húsnæðismálum til næstu áratuga. Húsnæði það sem íslensku byggingarsamvinnu­ félögin byggðu var eingöngu eignarhúsnæði, sem einnig stingur í stúf við leigu- eða hlutar­ eignaryrirkomulag húsnæðissamvinnufélaga og leigufélaga á hinum Norðurlöndunum. Tafla 1 gefur til kynna að hlutfall eigin húsnæðis sé mun hærra á Íslandi en í nokkru nágrannalanda okkar um þessar mundir. Hlutur félagslegs húsnæðis er að sama skapi með því allra lægsta sem þekkist í þessum löndum. Geta má þess að hlutfall eigin húsnæðis í Finnlandi hefur lækkað um 6% frá því fyrir efnahagskreppuna þar í landi upp úr 1990 (Bengtsson, 2006b). Tafla 1 Eignarform húsnæðis í löndum Norður- og Vestur-Evrópu. Hlutfallstölur Heimildir: Whitehead og Scanlon, 2007:9,148, Bengtsson, 2006b:161,221. Nýleg gögn skortir fyrir Ísland og eru tölur því áætlaðar af greinarhöfundi. Eigið hús- næði Búsetu- réttur Almenn leiga Félagsleg leiga Annað Samtals Austurríki 55 20 25 100 Danmörk 52 17 21 100 England 71 11 18 100 Finnland 62 1 17 16 4 100 Frakkland 57 20 17 6 100 Holland 54 11 35 100 Írland 81 11 8 100 Ísland 85-88 um 1 7-10 um 5 100 Noregur 64 14 18 4 100 Svíþjóð 40 19 21 20 100 Þýskaland 46 49 6 100

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.