Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 54

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Side 54
 56 Tafla 2 Bygging verkamannabústaða 1931-1990 og félagslegra eignaríbúða 1990-1999 Athugasemdir: (1) Íbúðir byggðar af Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar á árunum 1966- 1980 eru í heimild þeirri sem notuð var taldar með verkamannabústöðum. (2) Félagslegar eignaríbúðir ná einnig yfir verkamannabústaði. (3) *Miðast við lok hvers tímabils. Heimildir: Jón Rúnar Sveinsson, 2000:103, Hagstofa Íslands, 1997:376-377, Hagstofa Ís- lands, 2010; Húsnæðisstofnun ríkisins, 1992, 1993, 1994a, 1995a, 1996, 1997, Íbúðalánasjóð- ur, 2002. Innreið samráðsstefnunnar Fyrstu 10-15 árin eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar einkenndust hvarvetna af mikilli endur­ uppbyggingu ýmissa grunngerðarþátta og ekki síður af pólitískum sviptivindum. Vinstri flokkar tóku mjög víða sæti í ríkisstjórnum og róttækra hugmynda um áætlanabúskap og þjóðnýtingu gætti langt inn í raðir jafnaðarmannaflokka á Vesturlöndum (Power, 1993; Balchin, 1996). Á árum síðari heimsstyrjaldarinnar hafði mjög reynt á öfluga efnahagsstýringu flestra Evrópuríkja og áherslan verið lögð á sem mest framleiðslumagn. Þessar aðferðir nýttust eftir lok styrjaldarinnar einnig við enduruppbygginguna og var þeim ekki síst óspart beitt við að framleiða íbúðarhúsnæði fyrir barnmargar fjölskyldur. Lykilorðið var húsnæðisframleiðsla því fljótlega þróuðust aðferðir fjöldaframleiðslu sem nýttar voru í hverju landinu á fætur öðru til að ná fram metnaðfullum markmiðum um fjölda þeirra stöðluðu íbúða sem fullgerðar yrðu á hverju ári. Frá Úralfjöllum til Atlantshafs teygðust til himins ný íbúðahverfi með kassalaga stórhýsum í þráðbeinum röðum, sem byggð voru með færanlegum byggingarkrönum. Sú aðferð náði til Reykjavíkur um 1970, þegar lengsta íbúðarhús á Íslandi var byggt í Efra- Bygging félagslegra eignaríbúða Íbúðabygg- ingar alls Hlutfall félagslegra eignaríbúða Fjöldi íbúða alls* Hlutfall félags- legra eignríbúða af öllu húsnæði* 1930-40 211 5320 4,0% 23057 0,9% 1940-50 360 7893 4,6% 31058 1,8% 1951-60 396 11371 3,5% 39612 2,4% 1961-70 769 13353 5,8% 51695 3,4% 1971-80 1850 20810 8,9% 70777 5,1% 1981-80 2119 15019 14,1% 91077 6,3% 1991-00 1254 13562 9,2% 104805 6,6% Samtals 6959 87387 8,0%

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.