Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 73

Íslenska þjóðfélagið - 01.05.2010, Síða 73
 75 Sigrún Ólafsdóttir og Jón Gunnar Bernburg hlutfall). Þegar gögnin eru takmörkuð við þá þátttakendur sem eru með gild svör á öllum frum - og fylgibreytum er fjöldi svarenda á Íslandi 847, samanborið við 991 í Þýskalandi og 1229 í Bandaríkjunum. Alls voru um það bil 12% svarenda á Íslandi með ógild svör, 10% í Þýska- landi og 7% í Bandaríkjunum. Aðeins er unnið með gögn frá svarendum sem hafa gild svör við þeim spurningum sem unnið er með hér. Hlutfall ógildra svara er tiltölulega lágt í þessum gögnum og því er lítil hætta á alvarlegri bjögun niðurstaðna (Allison, 2009). Til að tryggja sambærileika milli landa var farið í samstarf við rannsóknarteymi sem sér um gagnasöfnun fyrir The International Social Survey Programme (ISSP) í hverju þátt- tökulandi. Könnun okkar er ekki hluti af ISSP, en samstarf við þá stofnun tryggir gæði gagn- anna og hjálpaði til við að velja rannsóknarstofnun í hverju landi sem sá um gagnaöflun. Persónulýsingar Könnunin fór þannig fram að í upphafi fékk hver þátttakandi af handahófi eina af þremur persónulýsingum. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að nota slíkar lýsingar frekar en að spyrja beint um fordóma, þar sem almenningur í þróuðum iðnríkjum hefur lært hvernig viðhorf eru ásættanleg og veit að ekki er við hæfi að vera með fordóma gagnvart geðrænum vandamálum. Þriðjungur þátttakenda fékk persónulýsingu á einstaklingi með geðklofa- einkenni (Persónulýsing A), annar þriðjungur fékk lýsingu á einstaklingi með þunglyndisein- kenni (Persónulýsing B) og síðasti þriðjungurinn fékk lýsingu á einstaklingi með astma- einkenni (Persónulýsing C; samanburðarhópur). Mikilvægt er að nota samanburðarhóp, en rannsóknir hafa sýnt að sumir einstaklingar eru neikvæðir í garð annarra án þess að nokkrum einkennum sé lýst (Martin o.fl. 2007). Rannsóknarteymi með fulltrúa frá hverju þátttökulandi valdi að nota astma til saman- burðar, þar sem það er líkamlegur sjúkdómur sem ólíklegt er að svarendur í nokkru landanna hafi neikvæð viðhorf gagnvart. Ekki kemur fram í lýsingunum hvort um greindan sjúkdóm sé að ræða. Persónulýsingarnar má finna í viðauka 1. Þegar þátttakendur höfðu fengið að heyra persónulýsinguna fengu þeir spurningar um viðbrögð og viðhorf þeirra gagnvart hinum tilbúna einstaklingi, til að mynda um hvert þeir töldu vera eðli vandamálsins, hvernig bæri að bregðast við, hvort þeir vildu búa við hliðina á viðkomandi og svo framvegis. Að sjálfsögðu er erfitt að mæla neikvæð viðhorf nákvæmlega eins og þau birtast í samfélaginu, en þessi tækni hefur marga kosti fram yfir aðrar aðferðir sem mæla neikvæð viðhorf. Í fyrsta lagi er skýrt hvaða sjúkdóm einkennin eiga við, enda er ekki verið að vísa til geðrænna vandamála almennt heldur sértækra einkenna sem tengjast ákveðinni sjúkdómsgreiningu. Í öðru lagi er einstaklingnum lýst án þess að hann sé greindur með nafngreindan sjúkdóm, sem er nær þeim veruleika sem mætir almenningi í samfélaginu. Í þriðja lagi gerir þessi aðgerð okkur kleift að mæla þekkingu svarenda á einkennunum og jafnframt hvernig þeir stimpla þau. Þar með er unnt að meta áhrif bæði einkenna og stimplunar á neikvæð viðhorf gagnvart einstaklingnum í persónulýsingu. Mælingar: Háðar breytur Við mælum fjórar víddir neikvæðra viðhorfa: hefðbundna fordóma, neikvæðar tilfinningar, félagslega fjarlægð og ógn/hættu (Martin o.fl., 2000). Hefðbundnir fordómar eru mældir með fjórum spurningum: hvort svarandi telji einstaklinginn óútreiknanlegan, ekki eins gáfaða/n og aðra, ekki eins duglega/n og aðra og hvort hann telji að ekki sé hægt að treysta honum (Ísland
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.